Morgunblaðið - 02.03.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 02.03.2018, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 Beðið eftir strætó Óvissan getur verið mikil, kemur hann, kemur hann ekki, er hann nýfarinn? Spurningarnar eru margar og neminn sem beið við Hlíðarhjalla í Kópavogi beið og beið. Hari Það er sársauka- fullt að horfa til baka og rifja upp þann glæsta tíma þegar ís- lenskir snillingar af- sönnuðu allar kenn- ingar í fjármálum með staðreyndum í uppgjörum íslenskra banka. Til að styðja afsönnun staðreynda nutu íslenskir banka- menn dyggilega stuðnings alþjóðlegra endurskoð- unarfyrirtækja. Stjórnendur fjár- málafyrirtækjanna voru allir sem gljáfægðir hlandkoppar þar sem þeir fóru um. Þeir, sem til þeirra sáu, töldu að glæsimenn og konur væru innan fata, en það kom svo í ljós að fólkið var ekki í neinum fötum. Allt var ein stór blekking. Áritanir endurskoðenda voru marklausar. Verðlaunaðar árs- skýrslur bankanna voru lygaþvæla með fægðri áferð. Endurskoð- endur hafa enn ekki borið ábyrgð gagnvart hluthöfum, sem kusu þá til trúnaðarstarfa. Hvar varst þú? Sá Íslendingur er vart til, sem ekki veit hvar hann var, þegar for- sætisráðherra tilkynnti þjóðinni að á liðnum árum hefði þjóðin lifað í blekkingu. Þjóðin hafði verið blekkt af bankastjórum, stjórn- armönnum í fjármálafyrirtækjum, ólæsum fjölmiðlum, endurskoð- endum og starfsmönnum fjármála- fyrirtækja. Ávarp forsætisráðherra var vís- bending um að erfiðir tímar kynnu að vera framundan. Flestir muna hvar þeir voru, þá er þeir hlýddu á ávarp forsætisráð- herra. Sá er þetta ritar var í sjónvarpssal þegar þessi fordæma- lausa ræða var flutt. Ég viðurkenni að ég var sem lamaður. Var það virkilega svo að allur minn versti grunur var réttur? Var virkilega svo að allar vísbend- ingar af fjármálamarkaði væru að- eins lítill hluti þess sem var und- irliggjandi? Neyðarlög Það er eins og að aðeins eitt lifi úr þessari ræðu; „Guð blessi Ís- land“. Það merkilega við þessa ræðu var að í henni var greint frá fyrirhugaðri setningu neyðarlaga. Ég held að þessi þjóð geri sér ekki grein fyrir hvaða þýðingu það hafði að vernda innistæður í bönk- um. Það var ekki aðeins að al- menningur gat haldið áfram að greiða fyrir vöru og þjónustu. Fyrirtæki gátu greitt laun. Bæj- arfélög gátu greitt fyrir þjónustu. Samfélagið, sem var um margt lamað, gat starfað. Það var hægt að halda uppi greiðslumiðlun til útlanda fyrir vöru og þjónustu. Það var séð til þess að ríkissjóður og orkufyr- irtæki gætu greitt af lánum. Það var full ástæða til að ætla að til greiðslufalls kynni að koma hjá þessum stóru lántakendum með ófyrirsjáanlegum áhrifum á lífs- kjör fólks. Það var mikil mildi að erlend skuldsetning ríkisins var innan viðráðanlegra marka þegar bank- arnir hrundu. Það var ekki svo gott með einstaklinga. Skuldsetn- ing einstaklinga hafði aukist úr 20% af ráðstöfunartekjum í 200% af ráðstöfunartekjum á 28 árum, fram til 2008. Það er um 8,2% á ári, sem veldur tíföldun á skuld- setningu á þessu árabili. Það var greinilega grunur um að ekki væri allt með felldu því rammi neyðarlaganna varð til snemma árs 2008. Vísbendingar Vissu stjórnendur Fjármálaeft- irlitsins að Glitnir banki hf. var búinn að innleysa lán vegna Mile- stone hjá Morgan Stanley vorið 2008? Vissu stjórnendur Fjármála- eftirlitsins að Kaupþing hf. var búið að innleysa lán Eglu hf. hjá City Bank vorið 2008? Þegar bankarnir voru búnir að innleysa þessi lán og með eigin hlutabréf að veði, þá voru bank- arnir óstarfhæfir þar sem eig- infjárhlutfall þeirra var komið nið- ur fyrir lögboðið hlutfall. Þetta bar endurskoðendum að ganga úr skugga um við gerð milliuppgjörs þann 30. júní 2008. Endurskoðendur eru sem dýr- lingar. Þeir þrá að syndga. Endur- skoðendur Kaupþings hf. létu sig hafa það að skrifa í milliuppgjöri Kaupþings hf. þann 30.06. 2008 að lán til stjórnenda og starfsmanna bankans að fjárhæð 36 milljarðar væru með sömu kjörum og til ann- arra viðskiptavina. Þessi lán voru með veði í hlutabréfum Kaupþings hf. en lántakendur voru að öðru leyti aðeins í ábyrgð fyrir 10% af lánsfjárhæðinni. Í ársbyrjun 2008 var erlend staða Seðlabanka Íslands jákvæð um 160 milljarða en erlendar skuldir íslensku bankanna voru 6.800 milljarðar. Engum gat dulist að lítið mátti út af bera svo að til greiðslufalls gæti komið hjá ís- lenskum bönkum. Lögfræðingur Kaupþings hf. og nú starfandi héraðsdómari lýsir markaðsmisnotkun Kaupþings hf. ágætlega í grein í Fréttablaðinu og játar sakir fyrir hönd þeirra sem að Kaupþingi stóðu: „Þegar verð hluta lækkaði í lok árs 2007 og í ársbyrjun 2008 var bankanum nokkur vandi á höndum að nýta sér ákvæði um veðköll bréfanna. Lánveitingar til starfs- manna byggðust á því að um lang- tímafjárfestingu væri að ræða á kaupum á allt að 9% af heildar- hlutafé félagsins, þar sem starfs- menn væru varðir fyrir fjárhags- legum skaða og gætu staðið af sér verðsveiflur á markaði. Umfangs- mikil sala starfsmanna þegar verðmæti hluta í félaginu fór lækkandi var í andstöðu við yf- irlýsta stefnu félagsins auk þess sem það hlaut að vera afar óheppi- legt fyrir bankann að starfsmenn væru með þeim fyrstu sem seldu hluti sína þegar verðið lækkaði. Bankinn ákvað því að nýta sér ekki ákvæði samningsins um veð- köll og fullvissaði starfsmenn þeg- ar í ársbyrjun 2008 að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að gengið yrði að þeim persónulega vegna skulda við bankann sem tengdust hlutafjárkaupum.“ Var eitthvert eigið fé í Kaup- þingi hf. á starfstíma bankans? Eða í SPRON banka, sem átti hlutabréf í Kistu hf. sem átti hlutabréf í EXISTA hf. sem átti hlutabréf í Kaupþingi hf.? Að auki var SPRON banki með víkjandi lán frá Kaupþingi hf. til þess að geta tekið þátt í þessari hring- ekju. Hluthafar Það er ástæða til að hvetja fólk til að eiga frjálsan sparnað. Sparnaður getur verið á öðru formi en bankainnistæðna. Hluta- fjáreign getur verið frjáls sparn- aður. Hlutabréf eru eðlileg í eiga- söfnum lífeyrissjóða. Hæstiréttur hefur dæmt að eigandi hlutabréfs eigi aðeins bréfið sjálft en ekki hlutdeild í sameign hlutafélagsins. Í markaðsmisnotkunarmálum sem dæmt hefur verið í hefur ekki þótt ástæða til að greiða fyrir rétti hluthafa til greiðslu skaðabóta úr hendi þeirra sem brotið hafa. Hluthafar eru því í raun rétt- lausir því þeim einkamálum, sem sótt hafa verið á hendur þeim er misfarið hafa með hlutafélög eða sparisjóði, hefur annaðhvort verið vísað frá, ellegar að stjórnendur hafa verið sýknaðir, þar sem heimska og vanþekking hafa verið taldar gildar ástæður til sýknu. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Endurskoðendur eru sem dýrlingar. Þeir þrá að syndga. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Eftirmæli um hrun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.