Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 Loftpressur - stórar sem smáar Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Listahátíðin Ferskir vindar, sem haldin er annaðhvert ár í Garði, hlaut í gær Eyrarrósina sem árlega er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Eliza Reid for- setafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhenti verðlaunin við athöfn í Nes- kaupstað. Að Eyrarrósinni standa í samein- ingu Listahátíð í Reykjavík, Byggða- stofnun og Air Iceland Connect og var þetta í 14. sinn sem verðlaunin voru veitt. Sú hefð hefur skapast að afhend- ing verðlaunanna fari fram í höf- uðstöðvum verðlaunahafa síðasta árs. Það var ástæða þess að Eyrar- rósin var afhent í Egilsbúð í Nes- kaupstað, þar sem handhafi við- urkenningarinar 2017 var þungarokkshátíðin Eistnaflug. Mireya Samper, myndlistarkona og stofnandi Ferskra vinda, veitti verðlaununum viðtöku. Þeim fylgir fjárstyrkur, tvær milljónir króna, auk verðlaunagrips sem hannaður er af Friðriki Steini Friðrikssyni vöru- hönnuði. Tvö önnur menningarverkefni sem voru tilnefnd til Eyrarrósarinnar að þessu sinni hlutu 500 þúsund króna peningaverðlaun: Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreks- firði og samtímalistasýningin Rúll- andi snjóbolti sem sett er upp hvert sumar á Djúpavogi. Þrjú önnur menningarverkefni voru tilnefnd, tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, á Ísafirði; alþjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Not- hern Wave), haldin í Snæfellsbæ, og LungA skólinn sem starfræktur er á Seyðisfirði. Erlendir og innlendir listamenn Í umsögn dómnefndar sem ákvað að Ferskir vindar hlytu verðlaunin segir: „Aðstandendur Ferskra vinda hafa ekki bara sýnt metnað í verki við skipulag hátíðarinnar heldur seiglu og úthald sem hefur skilað sér í við- burði sem hefur gildi bæði fyrir Reykjanes og íslenskt menningarlíf.“ Mireya Samper var lukkuleg eftir afhendinguna í gær og sagði það stórkostlegan heiður fyrir Ferska vinda að hljóta Eyrarrósina. „Þessi viðurkenning er uppskera fyrir gott starf,“ sagði hún. Ferskir vindar er alþjóðleg hátíð sem haldin hefur verið í Garði annað hvert ár frá árinu 2010 og var síðast haldin frá 16. desember síðast- liðnum til 17. janúar. Á hátíðina er hverju sinni boðið 40 til 50 lista- mönnum úr hinum ýmsu listgreinum og af fjölmörgum þjóðernum. Er- lendir listamenn dvelja og vinna í Garði í um fimm vikur og sýna þar afrakstur sinn. Aðstandendur Ferskra vinda leitast við að koma á sem nánustum tengslum við íbúa bæjarfélagsins, meðal annars með samstarfi við skólana með ýmsum uppákomum og beinni þátttöku nemenda. Öll dagskrá hátíðarinnar er ókeypis og opin almenningi, þar á meðal kynningar á listafólkinu og verkum þess, opnar vinnustofur, myndlistarsýningar, gjörningar, tónleikar og fleira. Erfitt en gefandi „Mér finnst þetta framtak, Eyrar- rósin, vera einstaklega vel heppnað og vekja athygli á því sem vel er gert á landsbyggðinni,“ sagði Mireya. „Það vekur athygli á flottum menn- ingarviðburðum um allt land. Mér þótti hin verkefnin öll svo fín að ég trúði því varla að við myndum hljóta Eyrarrósina.“ Mireya stofnaði til hátíðarinnar á sínum tíma og viðurkenndi fúslega að þetta væri umfangsmikið verkefni. Þegar hún var spurð að því hvað keyrði hana áfram við að halda hátíð- inni úti, sagði hún erfitt að svara því. „Það er best að segja að það sé ástríða. Þetta er ákveðin bilun, að standa í þessu, en ástríðan lætur mann halda áfram. Þetta getur verið erfitt og rosalegur barningur en er líka gefandi, eins og það að sjá hvern- ig margir listamannanna sem koma hreinlega blómstra. Þeir segjast end- urfæðast hér. Það er stórkostlegt að upplifuna orkuna meðan hátíðin er í gangi – og svo trúum við því að við séum að hafa góð áhrif á samfélagið og gera eitthvað sem skiptir máli. Til dæmis með því að skapa og skilja eft- ir listaverk, auðga anda íbúa og opna augu og hjörtu unga fólksins. Sú upp- skera er dásamleg.“ Mireya sagði peningana sem fylgja verðlaununum hjálpa til við und- irbúning næstu hátíðar og við að greiða fyrir þá síðustu. „Fjáröflunin er alltaf þyngsti róðurinn. Undirbún- ingur næstu hátíðar er löngu hafinn og þetta skarast allt, síðasta hátíð og sú næsta. En nú er framhaldið óljóst hjá okkur þar sem Garður er að sam- einast Sandgerði. Það er ekki ljóst hvað bærinn muni heita og hvað þá hvernig grundvöllur hátíðarinnr verður, það á eftir að koma í ljós. En Ferskir vindar munu blása á einn eða annan hátt, einhversstaðar,“ sagði Mireya. „Uppskera fyrir gott starf“  Listahátíðin Ferskir vindar, sem haldin er í Garði, hlaut í gær Eyrarrósina sem veitt er fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni Menningarverðlaun Mireya Samper frá Ferskum vindum, fyrir miðju, með verðlaunin í gær. Með henni eru Vigdís Jakobsdóttur, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, og Eliza Reid, sem afhenti Mireyu verðlaunin. Þrátt fyrir að liðsmenn Rolling Stones hafi leikið saman í hálfa öld hafa félarnir stundum skotið föstum skeytum að hver öðrum. En nú hefur gít- arleikarinn Keith Richards beðið söngvarann Mick Jagger afsökunar á að hafa sagt í viðtali að Jagger þyrfti að fara í ófrjósemisaðgerð. Hann lét þau orð falla eftir að Jagger varð faðir í 8. sinn, 73 ára að aldri. „Maður getur ekki orðið pabbi á þessum aldri, greyið krakkarnir,“ sagði Richards þá en þykir það leitt og hefur beðið Jagger afsökunar. Biður Jagger afsökunar Jagger og Richards á sviði. Við sjáum tvö ung börn meðskærfjólubláan lit í bak-grunni. Skotið víkkar ogvið sjáum að þau eru stödd á móteli einhvers staðar í Bandaríkj- unum. Nánar tiltekið í Orlando, eins og bráðum verður ljóst, á ljótu fjólu- bláu vegahóteli rétt utan við Disney World í Flórída. Svona hefst kvik- myndin The Florida Project sem hefur verið tilnefnd til fjölda verð- launa og meðal annars til einna Ósk- arsverðlauna. Börn þessi eru óþekktarormar og eru í keppni um að hrækja á bíl nýja nágrannans. Áhorfendur fylgjast með þessum börnum og lífi þeirra rétt eins og við værum fluga á vegg, svo raunsæisleg er tilfinningin í myndinni. Börnin eru í raun óþol- andi, óalandi og óferjandi og það virðist enginn sérstaklega vera að fylgjast með þeim þegar þau gera hvert prakkarastrikið á fætur öðru og samskiptum þeirra við fullorðna og önnur börn. Við fáum sérstaklega að fylgjast með ferðum hinnar sex ára gömlu Moonee (Brooklynn Prince) á ferð um mótelið þar sem hún býr með móður sinni. Mótelið heitir The Magic Castle, alveg eins og Þyrnirósarkastalinn í Disney World, og þar býr samansafn fólks í hrörlegum herbergjum, við hliðina á matvöruverslun sem heitir Orange World og lítur út eins og appelsína og ísbúð sem heitir Twistee Treat. Þetta er hinn blákaldi bandaríski raunveruleiki, svona næstum það sem kallast hvítt rusl. Feitir Banda- ríkjamenn í þröngum, skærlituðum fötum, ljótt og smekklaust umhverfi og litirnir, allt er þetta fangað á 35 mm kvikmyndatökuvél og áhorfand- inn fær að upplifa þennan heim í Barnslegir töfrar í banda- rísku skítapleisi Bíó Paradís The Florida Project bbbmn Leikstjóri: Sean Baker. Aðalleikarar: Brooklyn Prince, Bria Vinaitte og Willem Dafoe. Bandaríkin, 2017. 111 mínútur. ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON KVIKMYNDIR Tilkynnt var í gær að plata norsku tónlistar- konunnar Sus- anne Sundfør, Music For People in Trouble, hlyti Norrænu tón- listarverðlaunin sem By:Larm- -tónlistarhátíðin veitir árlega. Þá hlutu tveir listamenn sérstaka heið- ursviðurkenningu fyrir plötur sín- ar, Yung Lean frá Svíþjóð fyrir plötuna Stranger og Kim Myhr frá Noregi fyrir You I Me. Forvalsnefnd hafi valið 12 nor- ræna listamenn og hljómsveitir til að keppa um verðlaunin, þar á með- al Íslendingana Björk Guðmunds- dóttur, Högna Egilsson og Ölvu Is- landia. Það var síðan alþjóðleg dómnefnd sem valdi sigurvegarann og þá sem hlutu sérstaka viður- kenningu. Tónlist Sundfør er sögð byggja á áhrifaríkum klasískum lögum auk tilraunamennsku og þótti dómnefnd platan einfaldlega best og á henni nyti „undursamleg rödd“ hennar sín vel. Plata Sundfør valin best á Norðurlöndum Susanne Sundfør

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.