Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 41

Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 Stockfish Kvikmyndahátíðin Stockfish hófst í gær í Bíó Paradís og er fjöldi kvik- mynda á dagskrá hennar. Frekari upplýsingar á stockfishfestival.is. Red Sparrow Rússnesk ballettdansmær, Dom- inika Egorova, lendir í slysi sem endar dansferil hennar. Hún er neydd til þess að ganga í svokall- aðan Spörfuglaskóla í heimlandi sínu þar sem efnilegt ungt fólk hlýt- ur njósnaþjálfun og er kennt að nota líkama sína og hugarorku sem vopn í þágu ríkisins. Egorova reyn- ist frábær nemandi og verður hættulegsti „spörfugl“ leyniþjón- ustunnar. Leikstjóri er Francis Lawrence og helstu leikarar eru Jennifer Lawrence, Joel Edgerton og Matthias Schoenaerts. Metacritic: 56/100 Rotten Tomatoes: 62% Steinaldarmaðurinn „Stop-motion“-mynd sem gerist á steinöld. Segir af frummanninum Dug og aðstoðarfrummanni hans Hognob sem sameina ættbálk sinn gegn hroðalegum óvini, Lord No- oth, og bronsaldarborg hans, sem ógna heimkynnum þeirra. Leik- stjóri er Nick Park. Metacritic: 68/100 Rotten Tomatoes: 81% Bíófrumsýningar Spörfugl, steinaldar- menn og Stockfish Stórhættuleg Jennifer Lawrence og Joel Edgerton í Red Sparrow. »Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Stockfish var sett í gær í Bíó Paradís og var opnunarmyndin An Ordinary Man með Heru Hilmarsdóttur og Ben Kingsley í aðalhlutverkum. Hera mætti á opnunina með leikstjóra kvikmyndarinnar, Bandaríkjamann- inum Brad Silberling, og var glatt á hjalla. Hátíðin stendur yfir í tíu daga eru 19 kvik- og heimild- armyndir á dagskrá auk stuttmynda. Stockfish-kvikmyndahátíð hófst í Bíó Paradís með sýningu á An Ordinary Man Morgunblaðið/Hanna Stockfish Elsa María Ólafsdóttir, Páll Kristinn Pálsson og Jóhann Ágúst Jóhannsson. Í sviðsljósinu Hera Hilmarsdóttir leikkona og Brad Silberling leikstjóri. Gestir Elena Ferrari og Andrei Abdul létu sig ekki vanta. Gaman Sigurbjörn Einarsson og Ingibjörg Alda Guðmundsdóttir mættu og voru hin kátustu. Málverk Pablos Picasso, Femme au Béret et à la Robe Quadrillée (Mar- ie-Thérèse Walter), var slegið hæst- bjóðanda á uppboði hjá Sotheby’s í fyrrakvöld fyrir 69,4 milljónir dala, með gjöldum, rúma sjö milljarða króna. Verkið hafði verið metið á 35 milljónir dala og var selt óþekkt- um kaupanda símleiðis. Erlendir listrýnar segja uppboðs- vertíð vorsins fara vel af stað með þessari sölu, þótt verkið sé vart hálfdrættingur ef miðað er við dýr- ustu Picasso-verkin, Les Femmes d’Alger ("Version O"), sem var selt fyrir um 180 milljónir dala fyrir þremur árum og Le Rêve sem kost- aði 155 miljónir dala árið 2013. Verk eftir Picasso halda áfram að höfða til efnaðra safnara því hann málaði fimm af tíu dýrustu verkunum sem boðin voru upp að þessu sinni. Þetta verk Picasso af stúlku með Alpahúfu var málað árið 1937 og sýnir hjákonu og músu listamanns- ins, Marie-Thérèse Walter, sem hann hafði kynnst um áratug fyrr. Það hafði aldrei verið á markaði fyrr, sá sem seldi verkið nú keypti það af dánarbúi Picassos. Verk eftir Picasso verðmætast Dýrt Málverk Picassos af stúlku með Alpahúfu kostaði um sjö milljarða kr. AFP Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Jensen JN8020 umgjörð kr. 18.900,- ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.