Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 44

Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 44
FÖSTUDAGUR 2. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Jöklarútan sat föst í hálfan … 2. Þýfi úr gagnaverum falið … 3. Maðurinn var íslenskur … 4. Munur á að taka forhúðina … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rokkkór Íslands býður upp á óraf- magnaða tónleika í Salnum í Kópa- vogi í kvöld kl. 20 og flytur blöndu af þekktum rokklögum frá ýmsum ára- tugum. Með kórnum spila þeir Sigur- geir Sigmundsson, Ingólfur Magnús- son og Þorvaldur Kári Ingveldarson. Rokkstjóri er Matthías V. Baldursson. Ljósmynd/Eva Ágústa Rokkkór Íslands rokkar í Salnum  Norræna húsið hitar upp fyrir HönnunarMars með hönnunar- sýningunni Inn- blásið af Aalto: með sjálfbærni að leiðarljósi. Á henni er tekin fyr- ir húsgagnahönn- un og önnur innanhússhönnun finnska arkitektsins Alvars Aalto sem og valin verk eftir hönnuði undir áhrifum frá Aalto. Hönnun eftir og innblásin af Aalto  Hljómsveitin Moses Hightower heldur tónleika á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu í kvöld og ann- að kvöld kl. 21. Hljómsveitin gaf í fyrra út plötuna Fjallaloft og mun leika lög af henni sem og lög af fyrri hljómplötum sínum, Annarri Móse- bók og Búum til börn. Moses Hightower leikur tvö kvöld í röð Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum suð- austantil á landinu. Él austanlands og með norðurströndinni. Frostlaust með suðurströndinni, annars frost að 5 stigum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan- og norðanátt, víða 8-15 m/s, en 15-20 í vindstrengjum suðaustantil. Dálítil él austan- og norð- anlands. Frost 1 til 6 stig, en lengst af frostlaust syðst á landinu. VEÐUR Haukar standa vel að vígi á toppi Dominos-deildar karla í körfuknattleik eftir sigur á Stjörnunni, 80:73, í tuttugustu umferðinni í gærkvöld. Þeir eru fjórum stigum á undan ÍR og Tindastóli en ÍR-ingar töp- uðu fyrir Grindavík suður með sjó. Keflavík tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með því að leggja Njarð- víkinga að velli í granna- slag. »3 Haukar í góðri stöðu á toppnum „Ég hef ekki gefið landsliðinu mikinn gaum um langt skeið enda nánast ekkert verið í kringum það síðustu fjögur árin. Það hefur lengi verið markmið mitt að vinna mér sæti í landsliðinu en því miður ekki tekist. Geir vildi gefa öðrum tækifæri. Nú er spurning hvaða hugmyndir Guð- mundur hefur í þessum efn- um. Ég vonast alltaf eftir að fá tækifæri til að sýna hvað í mér býr,“ segir Daníel Freyr Andrésson, markvörður sænska hand- knattleiks- liðsins Ri- coh. »4 Vonast eftir að fá tæki- færi til að sýna mig Það verður við ramman reip að draga hjá Anítu Hinriksdóttur þegar hún keppir í fyrsta sinn í 1.500 metra hlaupi á stórmóti, á HM innanhúss í Birmingham á Englandi í kvöld. Hlaupið verður í undanriðlum í kvöld, kl. 19.48, og níu hlauparar keppa svo í úrslitahlaupinu annað kvöld. Gen- zebe Dibaba frá Eþíópíu er sig- urstranglegust í greininni. »1 Aníta glímir við öfluga hlaupara í kvöld ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í gærdag var plasthýsi tekið af sundlauginni í Ásgarði í Garðabæ, en nú sér fyrir endann á miklum endurbótum sem þar hafa verið gerðar. Gamla útilaugin sem er 25 metra löng var endurbyggð frá grunni auk þess að útbúnir eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, vaðlaug, gufubað og nýir útiklefar. Þá verður í Ásgarði góð aðstaða fyrir fatlað fólk; sérútbúnir búningsklefar og lyftur við laugarbakka. 800 milljóna króna framkvæmd Áformað er að aðstaðan, sem hul- unni hefur nú verið svipt af, verði tekin í gagnið formlega þann 19. apríl næstkomandi – það er á sumar- daginn fyrsta – en nú er aðeins frá- gangurinn eftir í þessum fram- kvæmdum. Alls hefur verið varið 800 milljónum króna til þessara framkvæmda, sem hófust fyrir hálfu öðru ári. „Í raun er þetta ný sundlaug og aðstaðan verður alveg fyrsta flokks,“ segir Kári Jónsson, íþrótta- fulltrúi Garðabæjar. Fyrir er í bæjarfélaginu sundlaug á Álftanesi, þekkt meðal annars fyrir tilkomu- mikla rennibraut og góða leik- aðstöðu fyrir börn. Sundlaugin í Ás- garði, sem er hluti af íþróttamiðstöð bæjarins, er hins vegar frekar hugs- uð fyrir fólk sem kemur til þess að slappa af eða fá sína góðu hreyfingu sem sundið er. Iðandi mannlíf „Gamla sundlaugin var barn síns tíma, tekin í notkun árið 1989. Að- sóknin hefur verið mikil, eða um 120 þúsund gestir á ári og vonandi verð- ur sú tala hærri þegar nýja laugin er komin í gagnið,“ segir Kári. Í íþróttamiðstöðinni í Ásgarði er jafnan iðandi líf. Húsið er opnað klukkan hálfsjö á morgnana og þar eru æfingar í ýmsum greinum fram á tólfta tímann á kvöldin. „Skólarnir hafa tímann á morgn- ana og fram eftir degi en svo hefjast æfingar á vegum Stjörnunnar síð- degis. Iðkendur sem hingað koma á degi hverjum til æfinga eru í kring- um 1.000 sem er mjög gott á allan mælikvarða,“ segir Kári. Hann bæt- ir við að börn og ungmenni í Garða- bæ, það er aldurinn 5 til 18 ára, séu líka dugleg að nýta sér svokallaða hvatapeninga sem eru styrkur til þess að stunda íþróttir eða skipulagt tómstundastarf. Styrkir af þessum toga bjóðist nú víðast hvar á landinu og reynslan sé hvarvetna góð. Kári telur jafnframt til greina koma að stuðningur þessi nái til fleiri, svo sem eldra fólks, enda geti það aukið lífgæði sín og bætt heilsu með reglu- legri hreyfingu eða þátttöku í fé- lagsstarfi. Heilsustefna í Vetrarmýri Í Garðabæ stendur nú fyrir dyr- um bygging íþróttahúss í Vetrar- mýri nærri Vífilsstöðum. Bærinn mun í ár veita alls um 300 milljónir króna til þessa verkefnis en útboð framkvæmda fer fram nú á vor- dögum. Framkvæmdir hefjast síðan í haust. Alls verður þessi bygging um 11.200 fermetrar að grunnfleti og undir þaki verður knattspyrnu- völlur af löglegri stærð og aðstaða fyrir ýmislegt fleira og má þar nefna góðan þreksal og klifurvegg sem príla má um. „Í nýju íþróttahöllinni verður hugsað fyrir almenningsíþróttum og til dæmis að úr Vetrarmýrinni geti fólk lagt upp í gönguferðir um fal- legt umhverfið á þessum slóðum, til dæmis við Vífilsstaðavatnið og í Heiðmörk. Raunar hefur verið gert margt hér í Garðabæ á und- anförnum árum í krafti þeirrar heilsustefnu sem bærinn setti til efl- ingar því að fólk geti stundað hreyf- ingu. Þar nefni ég til dæmis mjög gott göngustíganet sem hér liggur um fallegt umhverfi. Þá er meðal Ís- lendinga hefð fyrir því að fara í sund. Og allt svona hefur áhrif; heilsu- stefna og virk þátttaka í félagsstarfi og hreyfingu hefur góð áhrif á bæj- arbrag og gerir mannlífið skemmti- legra,“ segir Kári að síðustu. Hulu svipt af sundlauginni  Ásgarðslaugin í Garðabæ senn opnuð að nýju Morgunblaðið/Sigurður Bogi Íþróttir Kári Jónsson, íþróttafulltrúi í Garðabæ, við Ásgarðslaug sem opnuð verður fljótlega eftir miklar end- urbætur. Myndin var tekin þegar grindur sem héldu uppi plasthýsi sem var yfir útilauginni voru fjarlægðar í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.