Morgunblaðið - 01.05.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.05.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2018 skornirthinir.is LYT NS 4 SEASONS LE FLORIANS 4 SEASONS 100% vatnsheldir am sóli 22.995 ðir: 36-47 6 litir Vibr Verð: Stær OS LE FLORIA VATNSHELDIR SKÓR Ég er á lokametr-unum í listrænnirannsókn og doktorsverkefnið mitt fjallar um ákveðna nálgun í fríspuna í tónlist,“ segir Marta Hrafnsdóttir, söng- kona og tónlistarkennari, sem á 50 ára afmæli í dag. Doktorsverkefnið skrifar hún við Estonian Aca- demy of Music and Theatre í Tallinn, Eist- landi. „Mér finnst nærtækast að bera saman fríspuna og tónsmíðar þar sem frí- spuni er fluttur og búinn til á stað og stund þar sem ómögulegt er að breyta verkinu eftir á en tón- smíðar má endurskrifa og skoða þar til ásættanleg útkoma hefur náðst hjá tónskáldinu. Þótt tíma- ramminn sé ólíkur er hugsunin á bak við sköp- unina ekki svo ósvipuð. Ég er líka að skoða hvern- ig hægt sé að innleiða þessa aðferð í tónlistar- kennslu og helst alveg frá byrjun þegar nemandi fær hljóðfærið í hendurnar.“ Marta er stundakennari í Listaháskólanum þar sem hún hefur verið að kenna fríspuna og einnig kennir hún í Klettaskóla. „Það er alveg gríðarlega gefandi að kenna börnunum þar.“ Auk tónlistar hefur Marta mikinn áhuga á útivist. „Í allri sinni dýrð og formi, ég hef t.d. gaman af að fara í klifur með manni mínum og svo ferðumst við fjölskyldan mikið saman.“ Sambýlismaður Mörtu er Maxime Poncet, fjalla- og jöklaleið- sögumaður frá Frakklandi, og börn þeirra eru Lilja Louve, f. 2008, og Ylur, f. 2012. „Maðurinn minn á líka stórafmæli á árinu og við ætlum að halda upp á afmælið síðar. Svo verður mikið um stórafmæli innan fjölskyld- unnar og við ætlum að halda upp á þá áfanga í sumar á Mallorca. Í dag verð ég í faðmi nánustu fjölskyldu.“ Fjölskyldan Stödd í Vallon-Pont- Arc í fyrra. Kennir og skrifar um fríspuna Marta Hrafnsdóttir er fimmtug í dag E llert Eiríksson fæddist 1. maí 1938 á Járn- gerðarstöðum í Grindavík. Eftir and- lát föður Ellerts flutt- ist fjölskyldan til Keflavíkur. Þá var Ellert þriggja ára og hefur hann verið búsettur þar síðan. Ellert var í fyrsta útskriftar- hópnum úr Gagnfræðaskólanum í Keflavík, sem var fyrirrennari Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Hann hefur sótt fjölda námskeiða um dagana í stjórnun og vinnusálarfræði, jafnt erlendis sem innanlands. Eftir tvítugsaldur var Ellert yfir- verkstjóri Keflavíkurbæjar í átján ár, og vann tæpt ár hjá Astibach Con. í St. Paul í Bandaríkjunum. Ell- ert var sveitarstjóri Gerðahrepps á árunum 1982 til 1990 og Keflavíkur 1990 til 1994 eða þar til Keflavík sameinaðist Njarðvík og Höfnum undir Reykjanesbæ árið 1994. Ellert var því fyrsti bæjarstjóri Reykja- nesbæjar og gegndi því starfi til árs- ins 2002. Ellert var varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanes- kjördæmi í nokkur kjörtímabil og hefur setið á Alþingi. Hann hefur verið flokksbundinn sjálfstæð- ismaður alla tíð, en hann var aðeins 12 ára gamall þegar hann gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þar urðu störfin fjölmörg og naut flokk- urinn lengi krafta Ellerts. Hann var formaður kjördæmisráðs á Reykjanesi, formaður fulltrúaráðs í Keflavík, á sæti í nokkrum stjórn- um og ráðum á vegum hins opin- bera og hefur verið leiðbeinandi á stjórnunarnámskeiðum JC- hreyfingarinnar. Hann hefur einnig tekið þátt í störfum Lions- hreyfingarinnar. Árið 2016 var Ellert útnefndur fyrsti heiðursborgari Reykjanes- bæjar. Ellert er í dag stjórnarformaður Fiskmarkaðar Suðurnesja hf. og Reiknistofu fiskmarkaða hf. Áhugamál Ellerts í gegnum tíð- ina hafa verið mannleg samskipti, kartöflu- og matjurtarækt, slitlaga- gerð á þjóðvegum og hraðbrautum, vinabæjarsamskipti á erlendri grundu, körfubolti hjá Keflavík íþrótta- og ungmennafélagi þar sem hann hefur verið dyggur stuðningsmaður og síðast en ekki síst áskrifandi að Morgunblaðinu samfellt frá 1. des. 1960. Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri – 80 ára Útskrift Ellert, Guðbjörg Ágústa og Guðbjörg Ósk við útskrift hennar í fyrra frá Verzlunarskóla Íslands. Fyrsti heiðursborgari Reykjanesbæjar Akureyri Veigar Kári Sindrason fæddist 6. nóvember 2017. Hann vó 4.260 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Lilja Birna Stefánsdóttir og Sindri Magna- son. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.