Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 36
Ég var í miklu bulli á
þessum tíma
„Ég horfi með miklu þakklæti á tíma-
bilið 2016. Ég var í miklu bulli á þess-
um tíma, ekki það að ég hef aldrei
drukkið eða slíkt, en ég hugsaði illa
um sjálfan mig og var í ömurlegu
formi, sérstaklega andlega. Ég væri
ekki á þeim stað sem ég er í dag ef ég
hefði fengið að spila tímabilið 2016.
Ég lagði mikið meira á mig eftir það
tímabil og áttaði mig betur á þessu
öllu saman,“ segir Sindri Kristinn
Ólafsson, markvörður knatt-
spyrnuliðs Keflavíkur. »4
ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 121. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Sigurður óskaði eftir fresti
2. Tekur afsökunarbeiðnina til baka
3. Meiðyrðamál gegn Sigmundi …
4. Mamma hefði ekki þurft að …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríó Tómasar Jónssonar kemur
fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld
kl. 20.30 og flytur tónlist eftir Tómas
í opnum útsetningum. Tómas leikur á
Fender Rhodes-píanó og hljóðgervla,
Rögnvaldur Borgþórsson á gítar og
Magnús Trygvason Elíassen trommar.
Leika lög Tómasar í
opnum útsetningum
Vortónleikar
Söngsveitar
Hveragerðis verða
haldnir í kvöld kl.
20 í Hveragerðis-
kirkju. Þema tón-
leikanna er í anda
sjötta áratugarins
og sérlegur gest-
ur verður sópran-
söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú. Stjórnandi er Margrét S. Stef-
ánsdóttir og Esther Ólafsdóttir leikur
á píanó, Ian Wilkinson á básúnu og
Örlygur Benediktsson á saxófón og
klarínett.
Diddú gestur Söng-
sveitar Hveragerðis
Hljómsveitin Miðausturlandahrað-
lestin kemur fram á tónleikum vor-
dagskrár Jazzklúbbsins Múlans á
Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, annað
kvöld kl. 21. Hljómsveitin leikur bræð-
ing af djassi og austurlenskri tónlist
og verða þjóðlög frá Búlgaríu, Arabíu,
Ísrael og Íslandi flutt í
bland við lög
eftir Avishai
Cohen, Dha-
fer Youssef
og meðlimi
sveitarinnar.
Miðausturlandahrað-
lestin á Múlanum
Á miðvikudag Suðvestan 3-8 og smáskúrir eða él, en þurrt og
bjart veður á N- og NA-landi. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast suðaustan-
lands. Víða vægt næturfrost.
Á fimmtudag Suðlæg átt, 8-15 m/s með rigningu eða slyddu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt, 5-13 m/s. Skúrir eða él, einkum
suðvestan- og vestanlands. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Það lítur ekkert allt of vel
út með hann. Við verðum að
koma honum undir læknis-
hendur um leið og við kom-
um heim og fá mat þeirra á
stöðunni,“ sagði Arnar Pét-
ursson, þjálfari handknatt-
leiksliðs ÍBV, spurður um
ástandið á örvhentu skyttu
liðsins, Agnari Smára Jóns-
syni. Fór Agnar af leikvelli
meiddur gegn Potaissa
Turda í Rúmeníu í fyrradag.
»3
Óvissa um fram-
haldið hjá Agnari
„Ég verð í Gautaborg og þar er lið í b-
deildinni sem gæti komið til greina.
Ég ímynda mér þó að erfitt sé að fara
frá KR, sem er að mínu mati
skemmtilegasta sviðið á Íslandi, yfir í
b-deild á Norðurlöndum. En ég held
öllu opnu og kem til með að kíkja á
hlutina,“ segir Darri Hilmarsson, sjö-
faldur Íslandsmeistari í körfubolta,
sem yfirgefur KR í sumar. »2
Óvíst að Darri spili
körfubolta í Svíþjóð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Lúðrasveit verkalýðsins mun sam-
kvæmt venju spila í árlegri kröfu-
göngu verkalýðsfélaganna í dag en
sveitin var stofnuð árið 1953 og hef-
ur verið stór hluti af kröfugöngu
verkalýðsins frá stofnun. „Þetta er
stærsti dagurinn hjá okkur á hverju
ári,“ segir Rannveig Rós Ólafsdóttir,
formaður stjórnar Lúðrasveitar
verkalýðsins og þverflautuleikari.
Hún segir að haldið sé í hefðirnar í
lagavali sveitarinnar. Áður en gang-
an heldur af stað má heyra lög eins
og Sjá roðann í austri og Sjá hin
ungborna tíð. Internationalinn eftir
Eugène Pottier, alþjóðasöngur
verkalýðsins, er síðan ómissandi
hluti af göngunni: „Það sem við köll-
um Nallann, Internationalinn, lag
verkalýðsins. Það er alltaf spilað á
þessum degi, alls staðar. Seinustu ár
höfum við einnig oft spilað Maí-
stjörnuna en það er algjör krafa að
spila Nallann. Hann er spilaður al-
veg niður allt Bankastrætið og niður
að Ingólfstorgi til að sameina fólk,“
segir Rannveig.
Lúðrasveitin var formlega stofnuð
á fundi 8. mars 1953. Fimm sátu
stofnfundinn en stofnmeðlimir sveit-
arinnar voru 15 talsins.
Hljómsveitarmeðlimir eru í dag á
bilinu 35 til 45 og segir Rannveig að
margir eldri hljómsveitarmeðlimir
komi af og til aftur inn í sveitina eftir
að hafa tekið sér pásu.
Endurgjaldslaus frá stofnun
Eitt af upprunalegu markmiðum
sveitarinnar var að rukka ekki fé-
lagsgjöld og segir Rannveig sveitina
enn standa undir þeim gildum. „Eitt
af markmiðum lúðrasveitarinnar frá
stofnun var að veita fólki aðgang að
því að spila tónlist án endurgjalds.
Við rukkum ekki félagsgjöld og höf-
um aldrei gert. Þú getur bara komið,
beðið um að vera meðlimur og fengið
að spila með okkur. Svo höfum við
alltaf reynt að halda tónleikana, eina
til tvenna á ári, þar sem ekki er
rukkaður aðgangseyrir. Það er líka í
lögunum okkar að fólk getur notið
tónlistarinnar óháð efnahag,“ segir
Rannveig og bætir við að sveitin eigi
allt sitt undir styrkjum verkalýðs-
félagana.
Fyrsti kvenstjórnandinn
Karen Sturlaugsson, aðstoðar-
skólastjóri Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar, mun stýra sveitinni í
göngunni í dag en hún tók við sem
stjórnandi lúðrasveitarinnar um ára-
mótin. „Að því er ég best veit er
þetta fyrsti kvenstjórnandinn í
lúðrasveit fullorðinna, þessar stóru
lúðrasveitir hér á höfuðborgar-
svæðinu hafa ekki verið með kven-
stjórnanda,“ segir Rannveig en
þetta verður í fyrsta skipti sem Kar-
en stýrir lúðrasveitinni í göngunni 1.
maí en hún stýrði sveitinni fyrst á
tónleikum í apríl á þessu ári.
Blásið í lúðrana í yfir 60 ár
Algjör krafa að
spila Internation-
alinn 1. maí
Morgunblaðið/Hari
Stífar æfingar Lúðrasveit verkalýðsins á æfingu í gærkvöldi fyrir kröfugöngu verkalýðsins í dag. Lúðrasveitin var
formlega stofnuð á fundi 8. mars 1953, hljómsveitarmeðlimir eru í dag á bilinu 35 til 45.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árlegur viðburður Lúðrasveitin hefur verið ómissandi þáttur í kröfugöng-
unni og leitt baráttufólk áfram með takti og tónum 1. maí ár hvert.