Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 6

Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Rithöfundar og þeir sem geta hugsað skapandi um málefni líð- andi stundar; sett þau í nýtt sam- hengi og varpað þannig nýju og kannski óvæntu ljósi á samtímann eru mjög mikilvægt fólk. Nú er ég ekki endilega að segja að allir höf- undar eigi að stíga inn á það svið en okkur er nauðsynlegt að rýnt sé í umhverfi okkar á gagnrýninn og skapandi hátt,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, nýr formaður Rit- höfundasambands Íslands. Margt er í deiglu á vettvangi sambands- ins en stóra verkefnið er þó jafn- an, segir formaðurinn, að tryggja að afkoma höfunda sé þannig að þeir geti lifað af vinnu sinni. Sköpunarverk séu ekki ókeypis „Því miður er býsna algengt að líta svo á að skapandi störf skuli helst vera ólaunuð. Að minnsta kosti mjög illa launuð. Þau viðhorf verða að breytast,“ segir Karl Ágúst. „Hugmyndir og orð eru dýrmæt þó ekki séu þau áþreifanleg. Í því liggur kannski skýringin á því hvers vegna mörgum finnst að sköpunarverk listamanna eigi að vera ókeypis. Fólk verður að líta öðruvísi á þessi mál og sömuleiðis þarf auk- inn skilning stjórnvalda, því sumir höfundar njóta starfslauna og ým- issa styrkja sem ráða miklu um af- komuna. Flestir geta aðeins sinnt rithöfundarstarfinu sem aukabú- grein með öðru sem auðvitað dreifir kröftum og athygli.“ Starfsumhverfi höfunda hef- ur mikið breyst á undanförnum árum. Sú var tíðin að bókin – blað- síður milli tveggja harðspjalda – var helsta formið sem höfundar fengust við. Núna eru gáttirnar hins vegar fleiri. Má þar benda á að í dag sinna höfundar til dæmis handritagerð fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndagerð sem er vax- andi atvinnugrein. Einnig hönnun tölvuleikja, sem byggjast á hug- myndaheimi, söguþræði og per- sónum. Hugverkin fæst í nýtt form „Drifkraftur þessa alls er skapandi hugsun sem við leggjum aldrei of mikla rækt við, hvort sem er í skólum eða annarsstaðar. Vissulega eru bækur sem slíkar ekki jafn áberandi og var og sala þeirra hefur minnkað. Hugverkin hafa hins vegar færst í nýtt form, til dæmis dafna sviðslistir á Ís- landi vel um þessar myndir,“ seg- ir Karl Ágúst, leikari til áratuga. Best er hann sennilega þekktur úr Spaugstofunni, hvar hann átti stóran þátt í allri handritagerð. Það helst síðan í hendur við rithöfundarferilinn sem er orðinn langur og verkin mörg. „Ég gekk í Rithöfunda- samband Íslands árið 1983 og hef verið félagi síðan. Sat mörg ár í stjórn og hef tekið virkan þátt í starfi sambandsins, sem hefur verið lifandi afl í þjóðfélaginu og beitt sér í ýmsum mikilvægum málum. Hér í Gunnarshúsi við Dyngjuveg er líka öflugt starf, þetta er félagsheimili okkar og vettvangur ýmissa viðburða, upp- lestra og annars. Já, ég er alltaf eitthvað að skrifa og skapa - ég get ekki annað. Að undanförnu hef ég talsvert verið að grúska í ýmsum hugmyndum og drögum sem ég á frá fyrri tíð. Þetta eru til dæmis smásögur, leikrit og sjón- varpshandrit, gjarnan drög að ýmsu sem ég á hálfunnið frá fyrri tíð. Ætli flestir höfundar eigi ekki svona sitt lítið af hverju í sarp- inum,“ segir Karl Ágúst sem enn sinnir leiklistinni, en stígur þó sjaldnar á svið en áður. Áhugaverðar bækur „Það síðasta sem ég sendi frá mér opinberlega var leikritið Í skugga Sveins sem sýnt var í Gafl- araleikhúsinu í vetur; gam- ansöngleikur sem byggður er á Skugga-Sveini Matthíasar Joch- umssonar. Ég var þar meðal leik- ara og held að sjálfsögðu áfram að leika ef áhugaverð hlutverk og verkefni bjóðast,“ segir Karl Ágúst sem um þessar mundir er að glugga í ýmsar áhugaverðar bækur. Nefnir þar meðal annars Sperðil, gamanleik eftir séra Snorra Björnsson á Húsfelli sem mun vera elsta varðveitta leikrit sem samið er á íslensku. Var skrifað seint á 18. öld þó mönnum beri ekki saman um nákvæman ritunartíma þess. „Sperðill er áhugavert leikrit sem endur- speglar ýmislegt úr evrópskri leikhúsmenningu fyrri alda. Og samt veit enginn hvernig séra Snorri kynntist þeim menningar- straumum og það gerir leikritið mun forvitnilegra en ella væri.“ Samtíminn séður í óvæntu ljósi, segir formaður Rithöfundasambands Íslands Morgunblaðið/Valli Rithöfundur „Já, ég er alltaf eitthvað að skrifa og skapa – ég get ekki annað,“ segir Karl Ágúst. Dýrmætar hugmyndir  Karl Ágúst Úlfsson er fædd- ur 1957. Hann útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1981 og lauk meistaragráðu í leikritun og handritagerð frá Ohio Uni- versity 1994. Hefur skrifað handrit að um 500 leiknum sjónvarpsþáttum, 20 leikrit, um 100 þýðingar á leikritum, skáldsögum, smásögum, ljóð- um og barnabókum og fleira.  Hefur hlotið Edduverðlaun og Grímuverðlaun fyrir störf sín, sérstaka viðurkenningu Ís- lenskrar málnefndar og Ís- lensku menntaverðlaunin. Hver er hann? Nýjasti togari Samherja var form- lega nefndur Björg EA 7 við hátíð- lega athöfn á togarabryggjunni á Akureyri á laugardag. Við það tæki- færi var tilkynnt um 35 milljóna gjöf Samherja til Sjúkrahússins á Ak- ureyri (SAk) til að undirbúa og setja upp hjartaþræðingu þar á bæ. Kristján Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs, afhenti gjöfina og sagði að í framtíðarsýn SAk til 2021 væri sett fram það metnaðarfulla markmið að koma upp hjartaþræðingu við sjúkrahúsið. „Undirbúningur þessa viðamikla verkefnis er í gangi og kallar á mikla fjármuni. Við höfum ákveðið á þess- um tímamótum að færa Sjúkrahús- inu á Akureyri tíu milljónir króna að gjöf til að koma verkefninu af stað.“ Kristján tilkynnti jafnframt að til viðbótar mundi Samherji færa stofn- uninni 25 milljónir að gjöf þegar nauðsynleg tæki verða pöntuð. „Það er alveg ljóst að við höfum hæft fólk til að ljúka þessu metnaðarfulla verkefni farsællega og koma upp hjartaþræðingu við Sjúkrahúsið á Akureyri,“ sagði Kristján. Björg EA 7 er nýjasta skip Sam- herja. „Endurnýjun skipaflota Sam- herja og Útgerðarfélags Akureyr- inga er stórt skref í þá átt að festa Eyjafjarðarsvæðið í sessi sem eitt öflugasta útgerðar- og fisk- vinnslusvæði landsins,“ sagði Þor- steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, en skipið er nefnt í höfuð móður hans, Björgu Finnbogadótt- ur. Þorsteinn sagði ÚA eina tækni- væddustu fiskvinnslu landsins og framkvæmdir við nýja hátæknifisk- vinnslu væru hafnar á Dalvík. „Slík- ar vinnslur þurfa öflug skip og hafa verður í huga að oft eru veiðisvæðin langt frá Eyjafirði og veðurfarið oft erfitt. Slíkt skip liggur hér við land- festar,“ sagði Þorsteinn Már. Gefa 35 milljónir vegna hjartaþræðinga  Nýjasta togara Samherja gefið nafnið Björg  Tilkynnt um gjöf til SAk til að undirbúa og setja upp hjartaþræðingu Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Hjartnæmt Kristján Vilhelmesson tilkynnir um gjöfina til SAk. Til vinstri læknarnir Torfi Fjalar Jónasson og Gunnar Þór Gunnarsson sem tóku við gjöfinni. Aftast Björg Finnbogadóttir, en nýi togarinn heitir í höfuðið á henni. Um hundrað Vestfirðingar komu saman við Gilsfjarðarbrú um miðjan dag í gær á samstöðufundi, sem hald- inn var af grasrótarhreyfingu íbúa á Vestfjörðum til þess að minna stjórn- völd á þrjú stór hagsmunamál Vest- firðinga, raforkuöryggi, fiskeldi í sjó og bættar samgöngur. Segir hópur- inn sem stendur að fundinum að þessi þrjú mál séu „í biðstöðu eða í gíslingu ríkisstofnana“. „Við eigum ekki að una því að orð- um og fögrum fyrirheitum fylgi engar efndir, þetta snýst um það að við ætl- um að höggva á hnútinn. Við krefj- umst athafna í stað orða,“ segir Sig- mundur Þórðarson frá Þingeyri, sem var fundarstjóri. Guðrún Anna Finnbogadóttir, sjáv- arútvegsfræðingur frá Patreksfirði, og sr. Magnús Erlingsson frá Ísafirði héldu erindi á fundinum. Guðrún Anna er einnig með MA-gráðu í um- hverfisstjórnun og í ræðu sinni sagði hún að umhverfismál fjölluðu um að finna jafnvægi og að gera samfélögin sjálfbær, en ekki um að setja heilan landsfjórðung í formalín. Hún ræddi um Hvalárvirkjun og sagði eðlilegt að nýta þá orku sem byggi í nærumhverfinu til uppbygg- ingar í fjórðungnum. Þá sagði hún að- komu hins opinbera að laxeldi í sjó í Ísafjarðardjúpi hafa verið fálm- kennda. Þá fjallaði hún einnig um sam- göngumálin, mikilvægi vegar um Teigsskóg og þá stöðu sem kom upp í vetur er Breiðafjarðarferjan Baldur bilaði í þrjá mánuði. „Engin ferja var sett í afleysingar og atvinnulífið með öndina í hálsinum því stærstu fyrir- tækin lifa á að selja ferskan fisk. Sem betur fer voru veðurguðirnir okkur hliðhollir þessa erfiðustu mánuði árs- ins því ekki voru stjórnvöld að kippa sér upp við þetta,“ sagði Guðrún Anna. athi@mbl.is Mál í gíslingu ríkisstofnana  Samstöðufundur Vestfirðinga í gær Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Gilsfjörður Vestfirðingar komu saman og ítrekuðu kröfur sínar. Samstöðufundur » Aðstandendum fundarins finnst lítið hafa gerst síðan ráðherrar lofuðu því að rjúfa kyrrstöðu í mikilvægum mál- um í september sl. » Sérstök áhersla er lögð á bætt raforkuöryggi, framgang fiskeldis í sjó og samgöngu- bætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.