Morgunblaðið - 22.05.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018
Gunnar Rögnvaldsson semskrifar litríkan óritskoðaðan
texta segir fum og fát hafa skollið
á evrusvæðið þegar stjórnarsátt-
mála nýrrar ríkisstjórnar í Róm
var lekið þar sem
boðuð var úrsögn
Ítalíu úr evru og
greiðslufall á
skuldum landsins
við ECB-seðla-
banka, fjár-
lagahalla af stærri
gerðinni og flört
við Rússland:
Höggbylgja þessi skall svo áBerlín-París-Brussel um
miðbik dagsins um miðja viku og
ekkert hljóð heyrðist nema lam-
andi þögn. Evrumenn með vasa-
klúta í norðri þraukuðu daginn
út, svo að markaðir myndu ekki
taka eftir neinu, já já, munandi
það að kauphallarviðskiptin í Par-
ís gáfu sig ekki fyrr en þýski her-
inn stóð 10 kílómetrum fyrir utan
borgina, afneitunin var slík. Um
kvöldið hófust þið vitið hvað, – jú
þægilegar vangaveltur um hvort
skyldi gert á undan, öskrað eða
grenjað. En ekkert gerðist, högg-
ið var algert
Næsta dag kom svo léttirinn.
Nýja ítalska ríkisstjórnin hafði
nefnilega stytt stjórnarsáttmálann
og klásúlan um evruúrsögn var
horfin, sáttmálinn þar með léttari
í tösku, og í stað hennar var kom-
ið þetta: „Ítalía mun mæta fram-
tíðinni með því að hverfa til tím-
ans fyrir Maastrichtsáttmálann,
sem er nálgun Ítalíu við þá tíma
þar sem sannar fyrirætlanir um
frið voru í gildi, og óskir um
bræðralag, samvinnu og samstöðu
hvöttu ESB-ríkin áfram.“
Það var þarna sem sótarinnhætti að hitta á skorsteinana
í norðri, því allt, já allt, var orðið
jafn sótsvart í Berlín-París og
Brussel samtímis, vegna þess að
„fyrir-Maastricht“ þýðir ekki bara
úrsögn úr evrunni, heldur esb
líka.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Góður rómur í Róm
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 6 léttskýjað
Akureyri 8 skýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 24 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 21 heiðskírt
París 21 skýjað
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 21 heiðskírt
Moskva 19 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 21 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 20 rigning
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 20 heiðskírt
Montreal 18 heiðskírt
New York 15 léttskýjað
Chicago 14 rigning
Orlando 25 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:50 22:59
ÍSAFJÖRÐUR 3:24 23:36
SIGLUFJÖRÐUR 3:05 23:20
DJÚPIVOGUR 3:12 22:36
Skráning fer fram á www.vmst.is
2018
Ársfundur
Vinnumálastofnunar
Framtíðarfærnispár
og þróun vinnumarkaðar
Fimmtudaginn 24. maí klukkan 13-15 á Hótel Natura
Dagskrá:
Ásmundur Einar Daðason
Ávarp ráðherra
Gissur Pétursson
Forstjóri fer yfir árið
Karl Sigurðsson
Færnispár á íslenskum vinnumarkaði
Sigurður Björnsson
Greining á samspili starfa,
menntunar og atvinnugreina
á vinnumarkaði, stöðumat
Margrét K. Sverrisdóttir
Samspil menntunar og tækni og
evrópskar menntaáætlanir
Guðrún Stella Gissurardóttir
Hlutverk ráðgjafa í breyttum heimi
Lokaorð
Fundarstjóri
Kristín Þóra Harðardóttir lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti
Erlendur ferðamaður slasaðist í
snjóflóði í Grænagarðsgili í Skut-
ulsfirði í gær. Þorkell Þorkelsson,
vaktstjóri hjá lögreglunni á Ísafirði,
segir að ekki hafi verið um mikið flóð
að ræða. Hann geti þó ekki fullyrt
hvernig líðan mannsins sé.
„Við vitum sáralítið, í rauninni
bara það að það var maður sem lenti
í flóði og slasaðist. Við fyrstu sýn
virkaði þetta þó ekki mikið flóð,“
segir Þorkell og bætir við að mað-
urinn hafi verið fluttur til frekari að-
hlynningar í Reykjavík. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var
maðurinn fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur í gær.
Ekkert er vitað um líðan manns-
ins að svo stöddu, en Þorkell segir að
maðurinn hafi ekki virst alvarlega
slasaður enda hafi honum tekist að
gera lögreglu viðvart. „Hann er far-
inn suður þannig að við vitum ekki
almennilega hvernig líðan hans er.
Hann lét samt sjálfur vita af sér og
það er auðvitað góðs viti. Fljótt á lit-
ið virkaði þetta ekkert stórt eða al-
varlegt,“ segir Þorkell sem veit ekki
hvort frekari fregnir af líðan manns-
ins eru væntanlegar.
Ekki er vitað hvert erindi manns-
ins var í gilinu, en samkvæmt upp-
lýsingum frá vitnum á vettvangi var
hann einn á ferð.
aronthordur@mbl.is
Ferðamað-
ur lenti í
snjóflóði
Grænagarðsgil Erlendur ferða-
maður slasaðist í snjóflóði.
Er ekki talinn
alvarlega slasaður
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson