Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 11

Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • Sími 555 1516 (póstsendum) Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-15. Mikið af myndum á facebook Glæsile pils Verð 10.900 kr. • stærð 36-46 Opinn kynningarfundur í Þingsal 2 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 24. maí 2018, kl. 8:30-10:00 Hvað borða erlendir ferðamenn? – niðurstöður kannana Gallup og Maskínu Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Icelandic Lamb Hvers virði er að erlendir ferðamenn borði íslenskan mat? Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Hvernig er best að kynna matarauð Íslands fyrir erlendum ferðamönnum? Brynja Laxdal, framkvæmdastjóri Matarauðs Íslands Dagskrá: áhugasamir eru beðnir að skrá þátttöku á www.bbl . i s AÐGANGUR ÓKEYPIS Hvað borða erlendir FERÐAMENN? Sara Lind Þrúðardóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding VIÐBURÐURINN VERÐUR LIVE Á FACEBOOKSÍÐU BÆNDABLAÐSINS Fundarstjóri: Allt um sjávarútveg Atvinna Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta er hluti af því ferli sem hófst í vetur sem miðar að því að skerpa áherslu á kjarnastarfsemi og flug- rekstur félagsins,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, um ástæðu þess að félagið ákvað nú fyrir helgi að hefja sölu- ferli á Icelandair Hotels og öðrum fasteignum sem tilheyra hótel- rekstri félagsins. Björgólfur seg- ir að nú þegar fé- lagið sé í miðju endurskipulagn- ingarferli hafi verið tilvalið að hefja söluferli hótelrekstursins. Hann tekur þó fram að sala hótel- rekstursins sé ekki hluti af fjár- mögnun nýrra flugvéla heldur sé fyrirtækið eingöngu að einfalda reksturinn. „Þetta er ekki hluti af því að fjár- magna kaup á nýjum vélum, en líkt og ég hef áður sagt viljum við skerpa „fókus“ samsteypunnar sem hefur að okkar mati verið of breiður. Við höfum því verið að einfalda, sameina og samþætta fyrirtæki. Að setja hótelreksturinn til hliðar var því ákvörðun sem var tekin til að geta einblínt betur á flugreksturinn,“ segir Björgólfur. Endurskipulagi lýkur í haust Hingað til hefur rekstur ferða- þjónustufyrirtækjanna, Iceland Travel og Vita sem eru í eigu Ice- landair Group, verið gerður upp samhliða hótelrekstri félagsins. Björgólfur segir að þrátt fyrir það standi ekki til að selja þessi fyrir- tæki. „Við settum Vita undir flugrekst- urinn enda passaði það sölustarf- semi Icelandair vel. Þá erum við einnig að skoða hvernig Iceland Travel gæti fallið að því, en fram að þessu hefur Iceland Travel nær ein- göngu einbeitt sér að því að selja ferðir á Íslandi. Við teljum hins veg- ar að sú tækni og þekking sem í fyrirtækinu býr geri það að verkum að möguleikar til úvíkkunar starf- seminnar séu miklir. Ef vel tekst til gæti Iceland Travel nýst sem góður stuðningur við leiðarkerfi Icelandair í framtíðinni,“ segir Björgólfur. Spurður hvenær ráðgert sé að endurskipulagningu félagsins ljúki segir Björgólfur að hún muni klár- ast á næstu mánuðum. „Við erum að horfa til þess að þeg- ar líður á haustið, í síðasta lagi um næstu áramót, verðum við búin að ná utan um allt. Það má í rauninni segja að með þessari endurskipu- lagningu séum við að búa til nýtt fé- lag sem er klárt í að mæta þessari miklu samkeppni sem hefur verið á markaðnum síðustu ár,“ segir Björgólfur og bætir við að breyting- ar sem þessar taki tíma. „Það er ekkert einfalt að snúa stóru skipi, það mun alltaf taka sinn tíma en að þessu loknu tel ég okkur mjög vel í stakk búin til að mæta samkeppninni af krafti.“ Gríðarleg tækifæri hérlendis Þrátt fyrir að spár geri ráð fyrir að ferðamönnum muni fjölga minna á þessu ári segir Björgólfur að gríðarleg tækifæri séu í ferðaþjón- ustu hér á landi. Þá hafi vöxtur eft- irspurnar hér á landi verið of hraður undanfarin ár sem gerði það að verkum að fjölmörg illa fjármögnuð ferðaþjónustufyrirtæki litu dagsins ljós. „Það eru ennþá gríðarleg tæki- færi í hótelrekstri og ferðaþjónustu hérlendis, enda er eftirspurnin mjög mikil þó hún hafi tekið örlitla dýfu. Það er mitt mat að eftirspurnin síð- ustu ár hafi vaxið of hratt. Það hleypti inn á markaðinn fyrirtækj- um sem þola litla sem enga niður- sveiflu. Nú þegar ekki er vöxtur er það okkar verkefni að vinna hörðum höndum að því að lágmarka kostnað og bjóða samkeppnishæf verð,“ seg- ir Björgólfur. Icelandair vill setja flugrekstur í forgang  Býst við því að endurskipulagningu ljúki síðar á þessu ári Morgunblaðið/Eggert Icelandair Fyrirtækið ætlar sér að einblína enn frekar á flugrekstur og hef- ur af þeim sökum ákveðið að hefja söluferli á hótelrekstri sínum. Björgólfur Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.