Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
skammti. Farið er að huga að upp-
byggingu á iðnaðarhverfinu í Bygg-
görðum en þar gætu enn fleiri íbúar
rúmast í framtíðinni. Einn viðmæl-
enda nefndi að þar væri hægt að
byggja íbúðir fyrir fimm hundruð
manns en þá færu íbúar bæjarins yf-
ir fimm þúsund.
Skiptar skoðanir um þéttingu
Yngri kjósendur vilja þó margir
sjá enn frekar hugað að uppbygg-
ingu, ekki síst á svæðunum við Aust-
urströnd og í kringum Eiðistorg,
miðbæjarsvæði bæjarins. Þessi
áhugi er ekki síst vegna þess að
skortur hefur verið á minni íbúðum
og þær íbúðir sem byggðar hafa ver-
ið hafa þótt í dýrari kantinum.
Á þessu kjörtímabili voru
kynntar tillögur um framtíðar-
skipulag miðbæjarsvæðisins en þær
mættu andstöðu margra íbúa. Óhætt
er að segja að mjög skiptar skoðanir
eru um frekari þéttingu byggðar
meðal kjósenda, í það minnsta ef
marka má umræður í facebookhópi
íbúa bæjarins.
Morgunblaðið/Hari
Seltjarnarnes Við Gróttu er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarbúa og ferðamenn sækja þangað í auknum
mæli. Bæjarbúar geta valið úr fjórum framboðum í sveitarstjórnarkosningunum á laugardaginn næsta.
Mikið byggt en marg-
ir vilja byggja meira
Seltirningar ánægðir með þjónustu en minni íbúðir vantar
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Kjósendum á Seltjarnarnesi standa
fjórir valkostir til boða þegar þeir
ganga að kjörborðinu á laugardag,
Sjálfstæðisflokkurinn, Fyrir Sel-
tjarnarnes, Viðreisn/Neslisti og
Samfylkingin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið með hreinan meirihluta í bæj-
arstjórn frá því Seltjarnarnes fékk
kaupstaðarréttindi árið 1974. Nú ber
svo við að nýtt framboð, Fyrir Sel-
tjarnarnes, er mikið til skipað fólki
sem fylgt hefur flokknum að málum
auk þess sem varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins er oddviti Við-
reisnar/Neslista.
Tap á rekstri í fyrra
Seltjarnarnes hefur þótt með
best reknu bæjarfélögum landsins
en tilurð nýja framboðsins er engu
að síður óánægja með fjármála-
stjórn bæjarins. Skuldahlutfall bæj-
arins er 59% sem er hið lægsta með-
al sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu. Rekstrarniðurstaða síðasta
árs var hins vegar neikvæð um 99
milljónir króna.
Ánægja með þjónustu
Flestir Seltirnirningar sem
rætt var við telja að bjartir tímar
séu fram undan og í árlegri könnun
Gallup kemur fram mikil ánægja
með þjónustu sveitarfélagsins. Út-
svar er hið lægsta á landinu, leik-
skólagjöld með þeim lægstu en tóm-
stundastyrkir með þeim hæstu.
Bent er á að verið sé að byggja
hjúkrunarheimili í bænum og vilji sé
til að byggja nýjan leikskóla. Unnið
er að stækkun og betrumbótum á
íþróttahúsinu en íþróttaaðstaða þyk-
ir að öðru leyti ágæt.
Þónokkuð hefur verið byggt á
undanförnum misserum og fjölgaði
íbúum um 4,4% á kjörtímabilinu en
slíkt heyrir til tíðinda í bæ þar sem
byggingarland er af skornum
Safnatröð Nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í notkun í ár.
Morgunblaðið/Hari
Bygggarðar Þarna gæti risið 500 manna byggð í stað iðnaðarsvæðis.
„Mikið af
þessu tengist
því að ég er al-
inn upp á
Seltjarnarnesi
og hef enn
sterk tengsl
við bæinn.
Þetta er mitt
bæjarfélag,“
segir Jón von
Tetzchner,
fjárfestir og frumkvöðull, sem
talsvert hefur fjárfest á Seltjarn-
arnesi undanfarin ár. Jón hefur
keypt húsnæði á Eiðistorgi og
komið þar fyrir starfsemi á sínum
vegum. Þá hefur hann stutt við
bakið á íþróttafélaginu Gróttu.
Knattspyrnuvöllur bæjarins heitir
eftir netvafra Jóns og kallast Vi-
valdi-völlurinn.
Jón segir í samtali við Morgun-
blaðið að það hafi vissulega verið
gott tækifæri til kaups þegar
hann fékk augastað á Eiðistorgi.
„Það var þarna tómt húsnæði og
ég hugsaði að það væri betra að
nýta það eitthvað. Umhverfið á
Nesinu er frábært fyrir nýsköp-
un. Þetta er alveg niður við sjóinn
og þarna er mjög fallegt,“ segir
hann.
Á Eiðistorgi er húsnæði Jóns
rekið undir merkjum Innovation
House og þar gefst sprotafyrir-
tækjum tækifæri til að taka flug-
ið. Þá keypti Jón húsnæði þar sem
Íslandsbanki var áður en hýsir nú
sjónvarpsstöðina Hringbraut. Að
auki er hann einn eigenda kaffi-
hússins og ísbúðarinnar Örnu sem
þykir hafa lífgað hressilega upp á
bæjarbraginn á Nesinu.
Jón kveðst hafa mikla trú á
Eiðistorgi. „Það er góð aðstaða
þarna í kring. Það er hægt að
labba og hjóla og það er stutt í
íþróttamiðstöðina. Á torginu er
svo Hagkaup, flottur pöbb í kjall-
aranum og allt sem þarf. Við höf-
um reynt að fá skemmtileg fyr-
irtæki þarna inn svo það væri
meira í gangi en var. Svo bættum
við kaffihúsinu við. Það styrkir
þetta frumkvöðlaumhverfi.“
Hvað finnst þér um hugmyndir
um að hressa þurfi upp á torgið,
hækka þakið eða breyta að öðru
leyti?
„Augljóslega mætti hressa upp
á torgið. Við erum opnir fyrir um-
ræðum um það.“
Hvernig líst þér á gamla bæinn
þinn að öðru leyti?
„Mér sýnist að þetta sé enn frá-
bær staður fyrir fólk til að búa á.
Hann býður upp á mikið, í það
minnsta meira en þegar bjó
þarna. Þá spiluðum við til dæmis
bara á malarvellinum! Ég er
ánægður með að Holtið sé enn þá
útisvæði og fólk getur líka farið
út í Gróttu. Það er mikið af góðri
aðstöðu á Nesinu.“
hdm@mbl.is
Jón von Tetzchner fjárfestir á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Hari
Eiðistorg Margir íbúar á Nesinu vilja breyta og bæta ásýnd torgsins.
Tækifæri fyrir ný-
sköpun á Eiðistorgi
Jón von
Tetzchner
SELTJARNARNES
Mosfellsbær
Seltjarnarnes
Íbúar á Seltjarnarnesi voru 4.575 þann 1. janúar 2018.
Útsvarsprósentan á Seltjarnarnesi er 13,7%.
56 frambjóðendur eru á þeim fjórum listum sem bjóða fram á Seltjarnar-
nesi, en 7 munu taka sæti sem bæjarfulltrúar eftir kosningar.
Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014 var 68,6%.