Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018 Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Sýrlenski stjórn- arherinn náði í gær fullum yfir- ráðum yfir höf- uðborg landsins Damascus. Liðs- menn víga- samtakanna Ríki íslams hafa allir verið hraktir burt. Herinn náði m.a. flótta- mannabúðunum Yarmuk á sitt vald. Tilkynning hersins um fram- angreint var send út eftir að hund- ruðum vígamanna og ættmenna þeirra var heimilað að yfirgefa Yar- muk, að sögn mannúðarsamtakanna Syrian Observatory for Human Rights. Ríkisstjórnin neitar því að hafa samið um þetta við liðsmenn samtakanna. Aðeins hafi verið gert stutt vopnahlé til að hleypa bílalest með konum og börnum af svæðinu. Herinn með full yfir- ráð yfir Damascus SÝRLAND Yfirráð Náðu höfuðborginni. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Nicolas Maduro, forseti Venesúela, vann í gær forsetakosningar í land- inu með 68% atkvæða. Verður hann forseti landsins til ársins 2025. Kjör- sókn var sögulega lítil, aðeins 46%. Hafði meginandstæðingur Maduro, Henri Falcon, hvatt kjósendur til að sniðganga kosningarnar, en hann hlaut sjálfur 21% atkvæða. Maduro er fyrrverandi strætis- vagnastjóri og verkalýðsleiðtogi og var valinn eftirmaður Hugo Chavez, fyrrverandi forseta landsins, árið 2013 þegar hinn síðarnefndi féll frá. Þeir Maduro og Falcon höfðu mælst hnífjafnir í skoðanakönnunum í að- draganda kosninganna. Falcon sem er fyrrverandi liðsforingi í venesú- elska hernum, hefur nú sakað hið opinbera um að hafa keypt atkvæði til stuðnings Maduro. Af þessum sökum sé kjörið ólögmætt. „Fyrir okkur fóru aldrei fram neinar kosningar,“ sagði Falcon við fréttamenn þegar niðurstaða kosn- inganna lá fyrir. „Við þurfum að halda kosningar að nýju í Vene- súela,“ bætti hann við. Setja þrýsting á Maduro Kjör Maduro hefur vakið hörð við- brögð í alþjóðsamfélaginu. Þeirra varð raunar vart í aðdragandanum, þegar Bandaríkin, Kanada og Evrópusambandið lýstu því yfir, áð- ur en kjörið fór fram, að ríkin myndu ekki virða niðurstöðu kosninganna. Þar að auki hafa fjórtán ríki Lima- hópsins svonefnda, þ. á m. Argent- ína, Brasilía og Kanada, kallað sendiráðunauta sína heim frá Vene- súela í mótmælaskyni við kosning- arnar. Ríkin taka undir þær kenn- ingar að kosningarnar séu ólögmætar og setja þrýsting á Mad- uro með ákvörðunum sínum. Ennfremur voru erindrekar Venesúela í viðkomandi ríkjum boð- aðir á fund þarlendra yfirvalda. Fengu þeir þau skilaboð að kosning- arnar uppfylltu ekki alþjóðlegar kröfur um lýðræðislegt gagnsæi og hlutleysi. Venesúela hefur á undanförnum árum orðið fyrir mestu efnahags- hamförum í sögu ríkisins í kjölfar sósíalískrar stefnu Hugo Chavez. Venesúela er á barmi gjaldþrots og skortur er á mat og lyfjum í land- inu. Mikil óðaverðbólga hefur verið, átök eru tíð á götum úti, glæpatíðni há og viðbúinn er skortur á rafmagni og vatni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlar að landsframleiðsla muni halda áfram að skreppa saman á þessu ári og að verðbólga nái 13.800%. Bandaríkin grípa til aðgerða Venesúela hefur um árabil reitt sig á olíulindir sínar, en framleiðslan er nú í mestu lægð í þrjátíu ár, þrátt fyrir nýlegar hækkanir olíuverðs. Bandaríkin hafa í gegnum tíðina verið mikilvægur kaupandi olíu frá Venesúela. Mike Pompeo, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að kosninganiðurstaðan væri fölsk. Hafa bandarísk stjórn- völd beitt Venesúela viðskiptaþving- unum og bannað innflutning á olíu frá ríkisolíufyrirtæki Venesúela, PDVSA. Von er á frekari þving- unum af hálfu Bandaríkjamanna. „Bandaríkin ásamt öðrum lýðræðislegum þjóðum standa með Venesúelsku þjóðinni. Við munum grípa skjótlega til viðskipta- og stjórnmálaaðgerða til að styðja við enduruppbyggingu lýðræðis í land- inu,“ sagði Pompeo í gær. Maduro þarf þannig á næstu árum að treysta í auknum mæli á banda- menn sína, Kína og Rússland. Talið er að vegna vantrúar hinna ýmsu ríkja á lögmæti forsetakosninganna sé leiðin grýtt fyrir Maduro á alþjóð- legum fjármálamörkuðum og á vett- vangi alþjóðastjórnmála. Viðurkenna ekki lögmæti forsetakjörsins í Venesúela  Maduro endurkjörinn forseti með 68% atkvæða  Kjörsókn með minnsta móti AFP Forseti Maduro fagnaði sigrinum með stuðningsmönnum sínum. Við hlið hans er forsetafrúin, Cilia Flores. Mörg ríki hafa lýst því yfir að niðurstaða kjörsins sé ólögmæt og hafa sendiráðunautar m.a. verið kallaðir frá Venesúela. Venesúela » Venesúelska þjóðin býr við bágan kost vegna sósíalískrar stefnu Chavez. » Handvalinn eftirmaður hans, Nicolas Maduro, hefur verið endurkjörinn forseti. » Fjöldi ríkja hefur lýst því yfir að þau viðurkenni ekki niður- stöðu kosninganna. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkin hygðust leggja á Írana „hörðustu refsiviðurlög sögunnar“, færu þeir ekki að kröfum Bandaríkja- manna í tólf liðum um eldflaugaáætl- anir Írana og þátttöku þeirra í átök- um í Mið-Austurlöndum. Varaði hann evrópsk fyrirtæki við því að eiga við- skipti við Írana. Hassan Rouhani, forseti Íran, sagði að önnur ríki létu ekki lengur stjórnast af stefnu Bandaríkjanna. „Þið eigið ekkert með að taka ákvarðanir fyrir hönd Írans og heimsbyggðarinnar. Lönd heimsins samþykkja ekki alræðisvald Banda- ríkjanna. Þau hafa sjálfstæði, hvert fyrir sig,“ sagði Rouhani. Evrópa í andstöðu við Trump Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna, sagði nýverið upp kjarnorku- samkomulaginu frá 2015. Þau Evr- ópuríki sem einnig stóðu að samkomulaginu lögðust gegn ákvörð- un Trumps. Evrópusambandið reynir nú að telja Írana á að halda sam- komulaginu á lífi, þrátt fyrir brott- hvarf Bandaríkjamanna. Kínverjar og Rússar hafa þar að auki gagnrýnt Trump og hyggjast áfram eiga viðskipti við Írana. AFP Kröfur Pompeo kynnti í gær kröfur Bandaríkjamanna til Írana um eld- flaugaáætlanir þeirra og þátttöku í átökum í Mið-Austurlöndum. Bandaríkin setja Írönum afarkosti Heilsugæslu- starfsmenn í Austur-Kongó hófu í gær til- raunabólusetn- ingar vegna Ebólu-faraldurs sem braust út í landinu nýverið. Heilsugæslu- starfsfólkið var meðal þeirra fyrstu sem voru bólusettir, en til- raunabóluefnið reyndist áhrifaríkt í takmörkuðum rannsóknum sem gerðar voru á því þegar faraldur- inn herjaði á Vestur-Afríku árin 2014-2016. 26 eru taldir hafa látist af völdum Ebólu-faraldursins sem hófst fyrr í þessum mánuði og tilkynnt hefur verið um 45 Ebólu-smit. Af þeim eru þrír heilsugæslustarfsmenn. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur faraldurinn ekki vera alþjóðlega lýðheilsuvá enn. Níu nágrannaríkj- um Kongó hefur þó verið tilkynnt að líklegt sé að faraldurinn berist þangað. Hefja bólusetningar vegna Ebólu Faraldur Ebólan lætur á sér kræla. AUSTUR-KONGÓ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.