Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 34

Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018 Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af » Enski gamanleikarinn, grínistinn og handrits-höfundurinn John Cleese, sem öðlaðist frægð með grínhópnum Monty Python, flutti uppistand sitt Last Time to See Me Before I Die, eða Síðasta tækifærið til að sjá mig áður en ég dey, í þrígang í Eldborgarsal Hörpu í liðinni viku, 17., 18. og 19. maí. Eftir Cleese liggja margir sígildir gamanþætt- ir og gamanmyndir og á sýningunni deildi hann sögum og minningum með áhorfendum frá yfir 40 ára löngum ferli með sínum einstaka hætti. John Cleese með uppistand í Hörpu Grínverjar Björgvin Franz Gíslason, Þórhallur Sigurðsson/Laddi, Sigríður Rut Thorarensen og Edda Björgvins létu sig ekki vanta á uppistandið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Óhætt er að segja að Andri Björn Ró- bertsson hafi landað áhugaverðu hlutverki í nýjustu sýningu Kon- unglega óperuhússins í London. Raunar fer hann með tvö hlutverk í óperunni Lessons in Love and Vio- lence eftir George Benjamin; annars vegar er hann vitni og hins vegar vit- stola maður. Í síðarnefnda hlutverk- inu veldur hann töluverðum usla á sviðinu: „Það má segja að hlutverkið bæti örlitlum léttleika inn í þessa annars dökku og hræðilegu sögu. Bú- ið er að steypa kónginum af stóli og kem ég inn á svið, snarbilaður maður utan af götu, til að lýsa mig réttbor- inn konung og upplýsi að það hafi verið enginn annar en kötturinn minn Felicity sem sagði mér það,“ upplýsir Andri. „Það fer ekki vel fyrir óða manninum því ráðgjafi hins nýbak- aða og unga konungs notar tækifærið til að kenna honum hvernig á að fást við svona tilvik. Er söguhetja mín óð- ara kyrkt með sippubandi og síðan skotin í hausinn, en ekki fylgir sög- unni hvað verður um köttinn Feli- city.“ Lessons in Love and Violence er nýjasta verk George Benjamnin og er hann einnig stjórnandi sýning- arinnar. Verkið, sem frumsýnt var á fimmtudag í þarsíðustu viku, byggist á atburðum sem gerðust snemma á 14. öld þegar Játvarði II Englands- konungi var bolað frá völdum. „Sennilegt er talið að Játvarður hafi átt í ástarsambandi við aðalsmanninn Piers Gaveston og að það hafi átt þátt í að eiginkona Játvarðs, Ísabella af Frakklandi, og jarlinn Roger Morti- mer lögðu á ráðin um að bæði myrða Gaveston og hrifsa til sín völdin,“ segir Andri Björn og bætir glettinn við: „Það er svo sannarlega meira „violence“ en „love“ í þessari óperu.“ Sníður verkið að söngvurunum Óperan hefur verið nokkur ár í smíðum og fékk Andri Björn ör- lagaríka símtalið frá umboðsmanni sínum árið 2015. Hann hafði þá áður sungið hlutverk í tveimur upp- færslum í Linbury Theatre, B-sviði Konunglega óperuhússins, og landað ýmsum verkefnum s.s. í Aix-en- Provence og hjá Óperunni í Zürich. „Ég var í London að búa mig undir að halda heim á leið þar sem fjölskyldan býr í Norðaustur-Englandi, þegar umboðsmaðurinn minn hringir og segir mér að Konunglega óperuhúsið hafi haft samband og að George Ben- jamin vildi endilega fá að heyra í mér fyrir nýja óperu sem hann væri að skrifa,“ segir Andri sem beið ekki boðanna. „Ég fór beinustu leið í neð- anjarðarlestina og heim til hans á það sem ég hélt að yrði bara stuttur fund- ur. Þremur tímum síðar var ég búinn að syngja heilmikið fyrir Benjamin og hann búinn að skrifa upp margar blaðsíður af glósum. Viku síðar var mér boðið hlutverkið.“ Það var leikstjóri sýningarinnar, Katie Mitchell, sem benti Benjamin á Andra en hún og Andri höfðu unnið saman að óperuuppfærslu í Aix-en- Provence. Aðspurður hvað það hafi verið sem Mitchell og Benjamin sáu í honum segir Andri að hann gruni að góðir samstarfshæfileikar hafi haft eitthvað um það að segja. „Þegar við kynntumst fyrst bað hún mig að missa ekki þetta þægilega viðmót sem allt of margir óperusöngvarar virðast, að hennar mati, eiga það til að missa snemma á ferlinum. Þá leggur Mitchell mikla áherslu á leik- listarhlutann og líkaði það sem ég gerði í þeim efnum. Loks hefur Ben- jamin mjög sérstakan smekk fyrir röddum. Hann byrjaði vinnuna við þessa óperu með því að finna hentuga söngvara, og skrifaði síðan rullurnar með hverja rödd í huga svo að þær fengju að hljóma sem best.“ Gæti verið tímamótaverk Spurður um áferð óperunnar segir Andri að Benjamin hafi samið nú- tímalegt en fallegt verk. „Hann lærði í Frakklandi undir leiðsögn Olivier Messiaen og má greina þess merki, en svo finnst manni stundum eins og tónlistin minni á Ravel og Debussy, stundum á Britten og jafnvel Berlioz inn á milli. Tónlistin er líka mjög leik- húsvæn og dramatísk, og Benjamin veit alveg upp á hár hvernig á að gera áhorfendur lafhrædda.“ Uppsetningin er í nútímalegum stíl og er sagan um Eðvarð sögð í gegn- um ímyndaða skandinavíska kon- ungsfjölskyldu. „Skandinavísku áhrifin sjást í sviðsmyndinni og fata- valinu, og virka mjög vel með þessu viðfangsefni.“ Sýningin hefur fengið mjög góða dóma og grunar Andra að Lessons in Love and Violence muni, þegar fram í sækir, verða ein af höfuðóperum okk- ar tíma. „Hann hefur samið tvær aðr- ar óperur og hefur sérstaklega önnur þeirra náð miklum vinsældum og er sett á svið víða um heim ár hvert. Ég held að þessi nýjasta ópera muni fara sömu leið, og grunar að George Ben- jamin gæti reynst eitt af stærstu óp- erutónskáldum okkar tíma.“ „Bassar þykja oft orðnir bestir í kringum fimmtugt“ Efnilegur Heppni, rétt eins og hæfileikar, hafði sitt að segja með að koma Andra í Konunglega óperuhúsið í London. Hann byrjaði ungur að syngja.  Það var stór stund fyrir Andra Björn Róbertsson að stíga á svið Kon- unglega óperuhússins í London í nýju verki eftir George Benjamin  Hann er kominn langt í óperuheiminum, þrátt fyrir ungan aldur og á mikið inni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.