Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 37
Hallgrímskirkja Gestir skoðuðu listsýninguna Votiv í anddyri kirkjunnar á hvítasunnudag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon » Inga S. Ragnarsdóttir opnaði sýn-ingu sína Votiv - áheit í fordyri Hallgrímskirkju á hvítasunnudag að lokinni hátíðarmessu og er sýningin á vegum Listvinafélags Hallgríms- kirkju. Á þýsku er orðið „Votiv“ notað yfir áheit eða fórnargjöf en fórn- argjafir hafa verið hluti ólíkra menn- ingarheima í aldanna rás og veittu Ingu innblástur við gerð sýning- arinnar. Skúlptúrar hennar eru festir á veggi og taka mið af fórnargjöfum fyrri alda. Sýningin Votiv - áheit var opnuð í fordyri Hallgrímskirkju í fyrradag Ánægð Á meðal gesta við opnun sýningarinnar í Hallgrímskirkju voru þau Svava Björnsdóttir og Kristinn Hrafnsson. Opnun Listakonan Inga S. Ragnarsdóttir og Rósa Gísladóttir sýningarstjóri voru ánægðar við opnun sýningarinnar. Listunnendur Þau Gísli Andrésson, Ingibjörg Einarsdóttir, Jón- ína Marteinsdóttir og Hörður Ragnarsson voru við opnunina. Gaman Broddi Þorsteinsson og Hjördís Þorgilsdóttir skoðuðu sýningu Ingu S. Ragnarsdóttur í anddyri Hallgrímskirkju. MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018 Nýr stór humar Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja ICQC 2018-20 Sýningargestir Guðrún Sig- urjónsdóttir og Jóhannes Gunn- arsson. Enskir leikhúsgagnrýnendur virð- ast lítt hrifnir af leikhúsuppfærslu hinnar vinsælu skáldsögu Paula Hawkins, The Girl on the Train, eða Stúlkan í lestinni, sem einnig hefur verið kvikmynduð, í leikhús- inu West Yorkshire Playhouse í Leeds. Hafa þeir m.a. skrifað að sýningin sé álíka spennandi og há- annatími í miðju verkfalli lestar- starfsmanna og álíka heillandi og samloka í söluvagni Bresku járn- brautalestanna, British Rail. Gagnrýnandi The Telegraph gef- ur aðeins eina stjörnu af fimm mögulegum og segir leiksýninguna „glæpsamlega lélega“ og að hún geti orðið þess valdandi að fólk fari aldrei aftur í leikhús. Gagnrýnandi The Guardian er ekki eins neikvæð- ur og gefur þrjár stjörnur en segir þó að verkið sé tilbreytingarlaust. Dagblaðið The Times birti harðan dóm um sýninguna og gaf verkinu eina stjörnu, líkt og The Telegraph. Gagnrýnandi The Times líkir sýn- ingunni við lestarslys og segir hana skelfilega langdregna. Gagnrýnendur breska ríkis- útvarpsins og dagblaðsins York- shire Post bera lof á frammistöðu aðalleikkonunnar, Jill Halfpenny, en eru, líkt og flestir gagnrýn- endur, ósáttir við verkið í heild og telja það misheppnaða aðlögun á skáldsögunni. Annar gagnrýnandi Yorkshire Post var hins vegar já- kvæður og gaf sýningunni fjórar stjörnur, að því er fram kemur í út- tekt BBC. Kvikmyndin sem gerð var eftir skáldsögunni, frá árinu 2016, hlaut einnig heldur dræmar viðtökur gagnrýnenda á heildina litið en í henni fór Emily Blunt með aðal- hlutverkið. Líkt við lestarslys Ljósmynd/Richard Davenport Lestarslys? Jill Halfpenny í leikritinu Stúlkan í lestinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.