Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er auðvitað hálfgert drauma- starf. Þar sem draumurinn um at- vinnumennskuna hjá sjálfum mér rann út í sandinn fyrir dágóðum tíma er þetta ágætisleið til þess að komast eitthvað nærri honum,“ seg- ir Pétur Hreinsson sem hefur verið ráðinn opinber fréttaritari um ís- lenska landsliðið á HM í Rússlandi fyrir alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA. Pétur hefur starfað á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is við góðan orðstír en hefur jafnframt lagt stund á þverfaglegt meistaranám í viðskipta- og stjórnmálafræði við viðskiptaháskólann í Kaupmanna- höfn, CBS. Þessa dagana er Pétur að klára lokaritgerð sína en heldur svo út til Rússlands 7. júní næst- komandi. „Þá hitti ég kollega mína í Moskvu og við tökum lokaundirbún- ing fyrir mótið. Svo fer ég suður á bóginn og hitti íslenska landsliðið þegar það kemur til Rússlands,“ segir Pétur. „Þetta verkefni er á vegum sam- skiptasviðs FIFA. Ég er einn af 32 liðsfréttariturum FIFA sem vill með þessu verkefni reyna að ná til sem flestra stuðningsmanna þar sem mikil áhersla er lögð á sam- skiptamiðla. Þess vegna verð ég með bæði twittersíðu og facebook- hóp á íslensku. Ég mun einnig skrifa einhverjar greinar eftir leiki á FIFA.com sem verða aðgengileg- ar á sex tungumálum. Svo birtast einhverjar færslur frá mér á sam- eiginlegum instagramaðgangi FIFA,“ segir Pétur. Hann segir að á mótinu sjálfu verði einnig mikil áhersla lögð á svokallað liveblog á vefsíðu FIFA. „Sérstakt liveblog verður fyrir hvern einasta leik í keppninni þar sem fréttaritarar frá hvoru liði um sig setja inn færslur á ensku nokkr- um dögum fyrir leik og meðan á leik stendur þar sem stuðningsmönnum verður gefinn kostur á að skyggnast á bak við tjöldin. Aðgengið sem við höfum er það besta sem völ er á á mótinu.“ Pétur verður sendur heim um leið og íslenska liðið og bindur því vonir við gott gengi. Nema hvað. „Þessir strákar koma manni endalaust á óvart og þess vegna er algjörlega ómögulegt að segja eitt- hvað til um hvernig þetta fer. Riðill- inn er geysilega sterkur en strák- arnir segja sjálfir að þeir séu ekkert að fara að mæta til leiks bara til þess að vera með. Ef lykilmenn ná að hrista af sér meiðslin er klárlega möguleiki á að komast upp úr riðl- inum. En þá mun allt þurfa að ganga upp.“ Pétur fékk drauma- starf á HM í Rússlandi Spenntur Pétur Hreinsson mun skrifa fréttir um íslenska landsliðið. Hér er hann með Herdísi dóttur sinni og lukkudýri heimsmeistaramótsins.  Opinber fréttaritari um íslenska landsliðið fyrir FIFA 21 DAGUR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ljóst er að umfang starfsemi ábyrgðasjóðs launa mun aukast á þessu ári miðað við síðasta ár og bú- ist er við því að kröfum til sjóðsins muni fjölga frá síðasta ári. Þetta kemur fram í nýútkominni árs- skýrslu Vinnumálastofnunar. Stærri þrotabú á þessu ári „Á þessu ári eru stærri þrotabú til afgreiðslu hjá sjóðnum en síðustu ár sem er ástæða þess að gert er ráð fyrir aukningu útgjalda á árinu 2018. Hámarksfjárhæð launa sem sjóður- inn ábyrgist hefur nú verið hækkuð í kr. 633.000 á mánuði vegna krafna frá og með júlí 2018,“ segir í árs- skýrslunni. Ekki fæst uppgefið um hvaða þrotabú er að ræða en sjóðurinn ábyrgist greiðslu launakrafna laun- þega og krafna lífeyrissjóða vegna lífeyrisiðgjalda við gjaldþrotaskipti. „Við sjáum fjölgun krafna til sjóðsins á síðustu mánuðum og nokkur stærri bú með fleiri starfs- menn en þau sem afgreidd hafa verið á síðustu árum. Undanfarin ár hafa lítil þrotabú að langmestu leyti verið til afgreiðslu hjá sjóðnum. Við gerum þó ekki ráð fyrir mikilli aukningu útgjalda á árinu 2018 miðað við síðasta ár,“ seg- ir Björgvin Steingrímsson, deildar- stjóri hjá ábyrgðasjóði launa. Greiðslur úr sjóðnum jukust í fyrra og námu 605 milljónum Heildargreiðslur sjóðsins í fyrra jukust frá árinu á undan og námu 605 milljónum kr. en á árinu 2016 voru þær 482 milljónir. Greiðslur vegna vangoldinna launa og slita á ráðningarsamningum voru 154 millj- ónir í fyrra og 315 milljónir króna voru greiddar úr sjóðnum vegna vangoldinna lífeyrissjóðsiðgjalda. „Alls fengu 270 launamenn greitt úr sjóðnum á árinu 2017 en gera má ráð fyrir að fjöldi launamanna á árinu 2018 verði á bilinu 400-500. Tekjur vegna úthlutana úr þrotabú- um voru 38 milljónir til sjóðsins á árinu 2017 en gert er ráð fyrir hærri fjárhæð á árinu 2018,“ segir í árs- skýrslunni. Skipting greiðslna úr sjóðnum vegna gjaldþrotaskipta eftir at- vinnugreinum leiðir í ljós að 140,9 milljónir voru vegna reksturs gisti- staða og veitingareksturs og 130,6 milljónir vegna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar. Kröfum hjá ábyrgðasjóði launa fjölgar á milli ára  Talið að greiða þurfi 4-500 launamönnum úr sjóðnum í ár Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég er að selja radarvara sem kosta 74.900 krónur og fékk 21 stykki inn í búð fyrir þremur vikum – þeir seld- ust allir á einum degi. Fyrir tveimur vikum fékk ég 30 stykki og þeir eru seldir. Þetta er eins og berjasala á haustin,“ segir Jónína Guðrún Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Nesra- díós, í samtali við Morgunblaðið, en þegar blaðamaður náði tali af henni laust eftir hádegi í gær var hún nýbúin að fá enn eina sendinguna í hús, alls 30 radarvara, og höfðu þá 12 þeirra selst á um einni klukkustund. Umferðarlagabrot kosta skilding- inn eftir hækkunina 1. maí síðastlið- inn. Sem dæmi má nefna að notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur kostar nú 40.000 krónur og getur of hraður akstur kostað við- komandi hálfan handlegginn. En ef ekið er t.a.m. á 160 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst kostar það ökumanninn 240.000 krónur. Jónína Guðrún segir hækkunina hafa ýtt undir sölu á bæði radar- vörum og handfrjálsum búnaði. „Frá áramótum hef ég sennilega selt um 150 stykki af Cobra- radarvörum sem kosta 12.900 krón- ur,“ segir hún og heldur áfram: „Hækkunin á sektunum ýtir undir þetta. Það sama á við bluetooth- símabúnaðinn. Ef þú þarft að borga 40 þúsund kall fyrir það eitt að hringja í mömmu þína á rauðu ljósi þá er enginn peningur í því að kaupa svona búnað.“ Spurð hvort radarvarar virki í raun kveður Jónína Guðrún já við. „Þessir dýru virka og þeir sjá lengra en flest. Inni í þeim er gagna- grunnur fyrir Evrópu sem hefur meðal annars staðsetningu á öllum hraðamyndavélum.“ Þá segir hún einnig algengt að erlendir ferða- menn kaupi radarvara hér á landi í þeim tilgangi að nota tækin í heima- landi sínu. Kaupa sumir þeirra fleiri en eitt tæki – sérstaklega þeir sem eru frá löndum þar sem radarvarar eru ólöglegir og því líkur á að lög- reglan geri þá upptæka. Oft of seint að bregðast við Ómar Smári Ármannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá umferðar- deild lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, segir suma radarvara virka við ákveðnar aðstæður á meðan önn- ur tæki virka illa eða ekkert. „En þegar við erum að mæla þá ertu kominn í skotlínuna áður en við kveikjum á radarnum. Um leið og kveikt er – þá er það orðið of seint fyrir þig að bregðast við,“ segir hann og bætir við að lögreglan taki því oft ökumenn með radarvara. Þá segir hann lögreglu geta mælt hraða ökumanna úr 4-5 km fjarlægð með radarbyssum sínum, en í þeim má einnig finna myndavél sem tekur mynd af ökutækinu. „Eins og berja- sala á haustin“  Mikil sala er í radarvörum og handfrjálsum búnaði  Dýrustu varar kosta um 75.000 kr. Morgunblaðið/Hari Tekinn Radarbyssur lögreglunnar eru mjög fullkomnar og taka meðal ann- ars mynd af því ökutæki sem skotið er á. Drægnin er allt að 4-5 kílómetrar. Stjórnarmenn VR voru blekktir með ósannindum frá formanni sín- um og lýstu yfir vantrausti á for- seta ASÍ á röng- um forsendum. Þetta kemur fram í harðorðri fréttatilkynningu sem Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ, sendi frá sér í gær í kjölfar þess að stjórn VR lýsti yfir vantrausti á hann í fyrradag. Í yfirlýsingu sem VR sendi frá sér í fyrradag kom fram að félagið treysti Gylfa ekki til að leiða kjara- viðræður við stjórnvöld eða Samtök atvinnulífsins fyrir hönd stétt- arfélagsins. Gylfi segist undra sig á þessu enda sé heimild til viðræðna og samninga við stjórnvöld alfarið í höndum miðstjórnar samtakanna en ekki forseta þeirra. Í tilkynningunni sem Gylfi sendi frá sér í gær bendir hann á tölvupóst sem Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR, sendi til stjórnarmanna VR á dögunum. Í tölvupóstinum sakar Ragnar Þór Gylfa um að hafa sent tölvupóst á miðstjórn og samn- inganefnd ASÍ þess efnis að Gylfi muni leiða viðræður við stjórnvöld án sérstaks umboðs frá aðild- arfélögum ASÍ. Gylfi segir að um verulega skrumskælingu á sannleik- anum sé að ræða, en Gylfi birti í gær umræddan tölvupóst máli sínu til stuðnings. Í tilkynningunni skorar Gylfi jafn- framt á Ragnar Þór að birta tölvu- póst merktan sér þar sem fram kem- ur að hann muni leiða viðræður við stjórnvöld án umboðs frá aðild- arfélögum. aronthordur@mbl.is Telur stjórnarmenn hafa verið blekkta  Gylfi svarar vantrausti stjórnar VR Gylfi Arnbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.