Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
20%
af öllum
yfirhöfnum
Verð 18.980
Tilboðsverð
15.184
Jakka
peysur
Kr. 11.900.
Str. 4056
Opið í dag kl. 1116
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Skoðið LAXDAL.is/buxur
Skipholti 29b • S. 551 4422
BUXNAÚRVAL
Kr. 9.900,- Kr. 16.900,- Kr. 15.900,-
U
Fallegar útskriftargjafir
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélagið Blómaþing hefur
sett í sölu 37 nýjar íbúðir á Frakka-
stígsreit. Með því eru nær allar
íbúðir á reitnum komnar í sölu.
Söluverðmæti nýju íbúðanna er vel
á annan milljarð króna.
Reiturinn afmarkast af Lauga-
vegi, Frakkastíg og Hverfisgötu.
Blómaþing setti 23 íbúðir í sölu
um mánaðamótin nóvember og des-
ember. Þar af voru 8 íbúðir í nýju
bakhúsi/garðhúsi, Frakkastíg 8e, og
15 íbúðir í tveimur stigagöngum í
nýju fjölbýlishúsi á Hverfisgötu 58a
og 58b. Nokkrir íbúar hafa flutt inn
í íbúðirnar en um 25 íbúðir á reitn-
um hafa þegar verið seldar.
Nú bætast við 37 íbúðir í nýju
fjölbýlishúsi á Frakkastíg 8.
Þorsteinn Pálsson, stjórnarfor-
maður Blómaþings, segir íbúðirnar
kosta frá 41,9 milljónum króna.
Bílastæði fylgi með sumum þeirra.
Margar séu 55-68 fermetrar og
henti minni fjölskyldum og einstak-
lingum. Íbúðirnar snúa bæði að
Frakkastíg og inn að lokuðum
garði.
Fólk sem vill búa í miðborginni
Hann segir markhópinn fólk sem
vill búa í miðbænum. Þá henti íbúð-
irnar sem önnur eign fyrir fólk sem
býr á landsbyggðinni. Kaupendur á
öllum aldri hafi keypt íbúðir á
Frakkastígsreitnum. Íbúðirnar af-
hendist fullbúnar án gólfefna. Ís-
skápar fylgi sumum íbúðanna.
Þriðji og síðasti áfanginn í sölunni
verður þegar þrjár íbúðir í nýju
hornhúsi á Laugavegi 45a koma í
sölu í sumar. Alls verða 67 íbúðir á
reitnum. Frá þakíbúðunum er út-
sýni yfir miðborgina og út á sundin.
Bílakjallari er undir reitnum með
48 bílastæðum. Á jarðhæð verða
tveir veitingastaðir. Annar þeirra,
brugghúsið BrewDog, verður á
horni Frakkastígs og Hverfisgötu.
Áformað er að opna það í sumar.
Þorsteinn segir barnafjölskyldur
sjá kost í því að bakgarðurinn sé
lokaður með aðgangsstýringu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt götuhorn Fjölbýlishúsið er á horni Frakkastígs og Hverfisgötu.
Í miðborginni Blómaþing hefur sett upp sýningaríbúðir í fjölbýlishúsinu.
Setja 37 nýjar íbúðir á
Frakkastígsreit í sölu
Blómaþing
hefur næsta
áfanga í sölu íbúða
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að standa að gerð minningar-
reits um Sturlu Þórðarson á Staðarhóli í Saurbæ. Samið verður við undir-
búningsnefnd um aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis og eiganda Staðar-
hóls um verkefnið.
Málið á sér þá forsögu að fyrir fjórum árum var þess minnst að 800 ár
voru liðin frá fæðingu Sturlu. Undirbúningsnefnd hátíðarinnar sendi sveit-
arstjórn ýmsar hugmyndir um það hvernig mætti minnast hans áfram.
Talið er að bær Sturlu á Staðarhóli hafi staðið á bæjarhólnum og sá stað-
ur hefur verið talinn ákjósanlegur til að minnast hans. Sturla mun hafa
verið jarðsettur á Staðarhóli, við kirkju Péturs postula.
Minnast sagnaritarans á Staðarhóli
Allt um sjávarútveg