Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 16
Birkiskáli II Skálinn mun eflaust nýtast gestum í Vatnaskógi vel. Hann mun
hýsa gistirými og þjónustusal. Biskup Íslands vígir skálann á sunnudag.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Á morgun, sunnudag, verður Birki-
skáli II í Vatnaskógi vígður formlega
af biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurð-
ardóttur.
Ársæll Aðalbergsson, framkvæmda-
stjóri KFUM, segir mikla þörf hafa
verið á nýjum skála. „Með nýja skál-
anum erum við bæði að auka þægindi
og öryggi. Í þessu húsi er líka meira en
gisting, skálinn hýsir einnig þjónustu-
sal þar sem við ætlum okkur að halda
kvöldvökur og sinna tómstundum.“
Birkiskáli I var vígður um aldamótin
en áður var einnig gisting í Gamla
skála sem var tekinn í notkun árið
1943. Gistingu hefur nú alfarið verið
hætt í Gamla skála en húsið verður
áfram nýtt undir samverustundir og
kvöldvökur.
Fyrsta skóflustunga Birkiskála II
var tekin árið 2007 og hefur verkefnið
tekið mun lengri tíma en búist var við,
að sögn Ársæls. „Við höfum einbeitt
okkur að því að steypa okkur ekki í
skuldir, sérstaklega þar sem við byrj-
uðum á byggingunni rétt fyrir hrun.“
Samkvæmt greinargerð um fram-
kvæmdir og fjármögnun skálans var
byggingarkostnaður rúmar 178 millj-
ónir. Ársæll segir verkefnið þó hafa
tekist vel fjárhagslega og að þau í
Vatnaskógi hafi fengið mikinn stuðn-
ing frá fyrirtækjum, einstaklingum og
hinu opinbera í þeim efnum.
„Við erum ofboðslega glaðir og það
ríkir mikil gleði í okkar herbúðum ef
það má orða það þannig.“ Sumarið
verður líklega annasamt í Vatnaskógi
en Ársæll segir allt stefna í að flestir
flokkar í Vatnaskógi verði fullir þetta
sumarið og því mikil not fyrir nýja
skálann.
Nýr skáli í Vatnaskógi
vígður á sunnudaginn
11 ár tók að byggja skálann Aukin þægindi og öryggi
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Vestmannaeyjabær og Íslenskar
heilsulindir, dótturfyrirtæki Bláa
lónsins, hafa gert
með sér sam-
komulag um að
kannaður verði
möguleiki á því
hvort reist verði
heilsulind og sjó-
sundsaðstaða auk
tengdra mann-
virkja í Vest-
mannaeyjum.
Þetta kemur fram
í tilkynningu sem
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, sendi frá sér í gær.
Í tilkynningu segir m.a. að Vest-
mannaeyjabær hafi um nokkurt
skeið unnið að frumkönnun á því
hvort nýta megi orku, sem verður til
við byggingu nýrrar sorpbrennslu,
sem upphitun baðlóns og heilsulind-
ar. Þá segir ennfremur að verði nið-
urstaða fýsileikakönnunar jákvæð
séu líkur á því að fjárfest verði í
verkefninu, en vinnuheiti verkefn-
isins er „Lavaspring Vestmanna-
eyjar“.
Aðspurður segir Elliði að það sé
afar ánægjulegt þegar stór ferða-
þjónustufyrirtæki líta til Vest-
mannaeyja þegar fjárfest er í nýjum
verkefnum.
Vestmannaeyjar góður kostur
„Vestmannaeyjar hafa verið að
byggjast hratt upp sem áfanga-
staður ferðamanna. Það er því mikið
gleðiefni þegar stórir fagaðilar á
borð við Íslenskar heilsulindir sjá
Vestmannaeyjar sem vænlegan
kost,“ segir Elliði sem kveðst bjart-
sýnn á að hægt verði að koma verk-
efninu á stofn án fjárhagslegrar að-
komu Vestmannaeyjabæjar.
Elliði segir að verkefninu svipi að
sumu leyti til samnings sem bærinn
gerði við afþreyingarfyrirtækið
Merlin fyrr á þessu ári. „Samstarfið
við Merlin er verkefni sem mun
valda straumhvörfum í ferðaþjón-
ustu hérlendis. Við horfum nú til
þess að samstarfið við Íslenskar
heilsulindir verði sambærilegt,“ seg-
ir Elliði en samningur Vest-
mannaeyja og Merlins snérist um
uppsetningu hvalagriðlands auk
fiska- og sjófuglasafns í Vest-
mannaeyjum.
Heilsulind Vestmannaeyjabær skoðar nú möguleikann á heilsulind og bað-
lóni. Verkefnið er unnið í samstarfi við dótturfyrirtæki Bláa lónsins.
Skoða möguleika á
heilsulind í Eyjum
Elliði
Vignisson
Icelandair fór í sitt fyrsta áætl-
unarflug til Kansas City í Bandaríkj-
unum síðdegis í gær. Borgin er með-
al þeirra fimm í Norður-Ameríku
sem Icelandair bætir við leiðakerfi
sitt í vor. Hinar eru Baltimore,
Cleveland, Dallas og San Francisco.
Alls flýgur Icelandair til 23 borga í
Norður-Ameríku í ár.
„Flugvöllurinn í Kansas City er sá
stærsti í Bandaríkjunum þar sem
ekkert beint flug til Evrópu er í boði.
Með nágrannaborgum er íbúafjöldi
svæðisins um fimm milljónir og Ice-
landair því að opna stóran spennandi
markað fyrir íslenska ferðaþjónustu
og styrkja tengiflug félagsins til og
frá Evrópu,“ segir í tilkynningu frá
Icelandair.
Kansas City er í miðjum Banda-
ríkjunum á mörkum ríkjanna Kan-
sas og Missouri. Saga borgarinnar
er oft tengd við „villta vestrið“.
Fyrsta flugið til Kansas
Icelandair bætir við fimm borgum í Norður-Ameríku
Ljósmynd/Icelandair
Kansas City Áhöfnin á Heklu Auroru, Boeing-vél Icelandair, ásamt Björg-
ólfi Jóhannssyni forstjóra fyrir fyrsta flugið til Kansas City í gær.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í bréfi sem Unnur Pétursdóttir, for-
maður Félags sjúkraþjálfara (FS),
og Kristján Hjálmar Ragnarsson,
formaður samninganefndar FS, hafa
ritað félagsmönnum, kemur fram að
FS telur að Virk –starfsendurhæf-
ingarsjóður hafi ákveðið að slíta
samstarfi við FS og muni FS því ekki
fylgja málum frekar eftir hvað varð-
ar endurnýjun gjaldskrár varðandi
þjónustu sjúkraþjálfara.
„Við hvetjum félagsmenn til að
vera áfram í góðum samskiptum við
VIRK og nú er það þannig að hver
um sig tekur afstöðu til þess hvort
hann vill vera í samstarfi við VIRK
með því að segja sig inn á ramma-
samning þeirra með þeim skilyrðum
og greiðslum sem þar koma fram,“
segir m.a. í bréfi þeirra Unnar og
Kristjáns Hjálmars.
Unnur sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að þótt FS væri ekki
lengur í samstarfi við Virk, þá þýddi
það ekki að ekki yrði áframhald á
samstarfi Virk við einstaka fé-
lagsmenn FS. „Formið breytist því
út af fyrir sig lítið sem ekkert, en
okkur þykir bara leitt hvernig hefur
kvarnast úr samstarfi félagsins við
Virk. Við vitum að stoðkerfisvanda-
mál eru önnur stærsta ástæðan fyrir
örorku og út frá því geri ég ráð fyrir
að það sé talsvert stór hluti skjól-
stæðinga Virk sem fara reglulega til
sjúkraþjálfara,“ sagði Unnur.
Hún segir að þetta breyti í raun
engu fyrir skjólstæðinga Virk, né að-
komu sjúkraþjálfara að samstarfinu
við Virk, en félagið verði ekki lengur
milligönguaðili í því að gæta hags-
muna félagsmanna og þess hvað
greitt sé fyrir þjónustu sjúkraþjálf-
ara.
Sjálfstætt starfandi verktakar
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Virk, segir að 1. maí í fyrra,
hafi greiðsluþátttaka Sjúkratrygg-
inga Íslands (SÍ) í sjúkraþjálfun ver-
ið stóraukin og það sem sjúklingarn-
ir þurftu að greiða hafi stórlækkað,
en fram til þess tíma hafi Virk greitt
hlut skjólstæðinga sinna í sjúkra-
þjálfun. Eftir breytingarnar hafi
Virk ákveðið að hætta sinni greiðslu-
þátttöku, en greiði samt sem áður
áfram ákveðið álag, samkvæmt
ákveðnum rammasamningi sem hver
og einn sjúkraþjálfari taki svo
ákvörðun um hvort hann vilji sam-
þykkja.
„Við erum að kaupa þjónustu af
sjúkraþjálfurum sem eru sjálfstætt
starfandi verktakar og við gerum þá
breytingu núna að við semjum við
hvern og einn. Við erum ekki að
semja við FS um kaup á þjónustu hjá
sjálfstætt starfandi verktökum,“
sagði Vigdís í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Það er talsverður hluti okkar
skjólstæðinga sem þarf á sjúkra-
þjálfun að halda, enda er sjúkraþjálf-
un mikilvægur þáttur í allri endur-
hæfingu. En ég bendi á að
sjúkraþjálfun er hluti af heilbrigðis-
þjónustu landsins og kostaður af
heilbrigðiskerfinu. Virk vísar ekki
skjólstæðingum sínum til sjúkra-
þjálfara, heldur gera læknar það. En
við óskum eftir samstarfi við sjúkra-
þjálfara vegna einstaklinga sem eru í
þjónustu okkar og við erum tilbúin
að greiða sjúkraþjálfurum fyrir það
samstarf, sem felur í sér aukna vinnu
fyrir sjúkraþjálfarann,“ sagði Vigdís
ennfremur.
Hver um sig eigi að semja við Virk
Framkvæmdastjóri Virk segir að sjúkraþjálfun sé hluti af heilbrigðisþjónustu landsins og læknar vísi
skjólstæðingum Virk í sjúkraþjálfun Félag sjúkraþjálfara hættir að hafa milligöngu um samninga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjúkraþjálfun Gauti Grétarsson í
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur.
Unnur
Pétursdóttir
Vigdís
Jónsdóttir
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að bjóða Datafarm lóðina Iðju-
velli 4 í Búðardal til afnota fyrir gagnaver. Fyrirtækið hefur hug á að koma
þar upp þremur 40 feta gámum í upphafi en tólf gámum þegar starfsemin
hefur náð fullri stærð.
Verkfræðistofan Lota spurðist fyrir um lóðina fyrir hönd Datafarm og
hafði byggðaráð tekið vel í málið en vísað því til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn setur þau skilyrði að fyrirtækið greiði 2 milljónir í stofngjald
og hálfa milljón árlega í afnotagjald. Verði greidd þrjú ár fyrirfram.
Lóðarhafi þarf að ganga frá yfirborði lóðarinnar og girða með mannheldri
girðingu. Þá er ætlast til þess að allir gámarnir verði málaðir í sama lit.
Bjóða lóð undir gagnaver í Búðardal