Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
AKUREYRARKIRKJA | Helgistund
kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð Jóns-
son. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jóns-
son.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár organista.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Skírn.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur,
organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2018
verður haldinn í Ási, safnaðarheimili
Áskirkju, strax að messu lokinni. Dag-
skrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur
mál. Kaffiveitingar.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl.
11. Kvennakórinn Ljósbrot, sem starf-
ar innan KFUM og KFUK, syngur undir
stjórn Keiths Reed, tónlistarstjóra
kirkjunnar. Meðhjálpari er Sigurður
Þórisson og prestur Kjartan Jónsson.
Hressing á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjón-
ar fyrir altari. Félagar úr Kór Breið-
holtskirkju syngja undir stjórn Arnar
Magnússonar organista. Eftir messu
er létt hressing. Aðalsafnaðarfundur í
safnaðarsal kirkjunnar kl. 12.30.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Bústaðakirkju og kantor
Jónas Þórir. Prestur er Pálmi Matt-
híasson. Messuþjónar aðstoða.
Hressing eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa sunnud. kl. 8.30
á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13
á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga
kl. 18, og mán., mið. og fös. kl. 8,
lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vi-
gilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr.
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjón-
ar. Dómkórinn syngur og organisti er
Kári Þormar. Bílastæði við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl.
11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar
og prédikar. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista. Meðhjálpari er Kristín Ing-
ólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg píla-
grímamessa Garða- og Bessastaða-
sókna kl. 11. Sr. Hans Guðberg flytur
samtalsprédikun með Huldu Guð-
mundsdóttur guðfræðingi og þjónar
ásamt Margréti djákna og öðrum píla-
grímum. Ástvaldur Traustason organ-
isti leiðir sönginn.
GLERÁRKIRKJA | Laugardagur 26.
maí. Fermingarmessa kl. 13.30. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson og sr. Stef-
anía G. Steinsdóttir þjóna. Kór Glerár-
kirkju leiðir söng undir stjórn Valmars
Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Siglfirð-
ingamessa kl. 14 . Sr. Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Arnfríði Guðmundsdóttur
prófessor, sr. Kjartani Erni Sigur-
björnssyni og sr. Díönu Ósk Óskars-
dóttur. Einnig þjóna sr. Eysteinn Orri
Gunnarsson og Snævar Jón Andrés-
son. Ritningarlestrar: Hermann Jónas-
son, Rakel Björnsdóttir, Kristján L.
Möller og Jónas Skúlason. Kór Grafar-
vogskirkju syngur undir stjórn Há-
konar Leifssonar. Einsöngur: Hlöðver
Sigurðsson. Siglfirðingakaffi eftir
messu og hátíðardagskrá kl. 16.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kaffisopi á undan og eftir messu.
Messuhópur 2 þjónar ásamt sr. Maríu
Ágústsdóttur, Ástu Haraldsdóttur og
Kirkjukór Grensáskirkju. Samskot eru
tekin til Hjálparstarfs kirkjunnar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta kl. 11. Innritunarguðs-
þjónusta fermingarbarna 2019. Sr.
Leifur Ragnar Jónsson. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðar-
kirkju syngur. Meðhjálpari er Guðný
Aradóttir og kirkjuvörður er Lovísa
Guðmundsdóttir. Fermingarbörn 2019
eru hvött til að mæta í þessa messu,
fermingarstarfið verður kynnt.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11 í tilefni þess að 150 ár
eru liðin frá fæðingu sr. Friðriks Frið-
rikssonar æskulýðsleiðtoga. Helgi-
stundin og ganga átti að vera við Kald-
ársel á þessum tíma, en vegna
veðurspár verður stundin í Hafnar-
fjarðarkirkju. Sálmar sr. Friðiks verða
sungnir og rifjað verður upp starf hans
meðal barna og unglinga. Hressing í
safnaðarheimilinu á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt hópi messuþjóna. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson. Um-
sjón barnastarfs hefur Inga Harðar-
dóttir. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Bænastund
mánud. kl. 12.10. Fyrirbænaguðs-
þjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Þórdís Emilía Arons-
dóttir og Emilía Rut Kristjánsdóttir
leika konsert eftir Bach fyrir tvær fiðl-
ur undir stjórn Helgu Steinunnar Torfa-
dóttur. Kvennakórinn Vox feminae
syngur undir stjórn Margrétar Pálma-
dóttur. Organisti er Steinar Logi Helga-
son. Prestur er Helga Soffía Konráðs-
dóttir. Grillað í garðinum að
guðsþjónustu lokinni í boði sókn-
arnefndar.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Kór Hjallakirkju leiðir söng und-
ir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur org-
anista. Prestur er Sunna Dóra Möller.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Vorhátíð
kl. 13 sunnudag. Við ljúkum barna-
starfi vetrarins með samveru allrar
fjölskyldunnar. Grillaðar pylsur og gos
fyrir lítinn pening.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs-
kirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová, kantors kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Vorhátíðar-
messa kl. 11, Graduale Nobili syngja
en stjórnandi þeirra er Þorvaldur Örn
Davíðsson. Guðbjörg Jóhannesdóttir
sóknarprestur þjónar, organisti er
Magnús Ragnarsson. Strax eftir
messu er vormarkaður kvenfélagsins
kl. 12-16. Að venju verður boðið upp á
skemmtiatriði, hoppukastali, seldar
verða grillaðar pylsur, kaffi og meðæti
m.a. heitar vöfflur.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa |
Guðsþjónusta 27. maí kl. 11. Prestur
er Guðbjörg Arnardóttir, organisti er
Ingi Heiðmar Jónsson, almennur safn-
aðarsöngur. Aðalsafnaðarfundur að
lokinni guðsþjónustu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Sönghópurinn Veirurnar leiðir tón-
list ásamt Elísabetu Þórðardóttur
organista. Sr. Davíð Þór Jónsson þjón-
ar fyrir altari og prédikar. Kaffi og sam-
vera í safnaðarheimilinu á eftir.
Vorhátíðin Laugarnes á ljúfum nótum
kl. 14.
Miðvikudagur 30.5. Félagsmiðstöðin
Dalbraut 18-20 kl. 14. Helgistund
með sr. Davíð Þór og Elísabetu org-
anista.
Fimmtudagur 31.5. Hásalurinn Hátúni
10 kl. 16, stund með sr. Davíð Þór og
Hjalta Jóni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
20. Guðni Már Harðarson þjónar. Kór
Lindakirkju leiðir söng undir stjórn
Óskars Einarssonar. Boðið verður upp
á altarisgöngu.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA |
Messa kl. 14 sunnudag. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar
Väljaots.
MOSFELLSKIRKJA | Á sunnudag,
27. maí, er hestamannareið hesta-
mannafélagsins Harðar til Mosfells-
kirkju, Mosfellsdal. Guðsþjónusta kl.
14. Hólmfríður Ólafsdóttir, djákni og
hestakona, prédikar. Prestur er Krist-
ín Pálsdóttir. Karlakórinn Stefnir syng-
ur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirs-
dóttur. Organisti er Þórður
Sigurðarson.
NESKIRKJA | Gróðurmessa kl. 11.
Kór Neskirkju syngur. Drengjakór
Reykjavíkur syngur einnig nokkur lög.
Organisti er Steingrímur Þórhallsson.
Prestur er Skúli S. Ólafsson. Á kirkju-
torgi verður markaður kl. 10-13 þar
sem blóm, salat og tómatar verða til
sölu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Fjölskylduguðsþjónusta
sunnudag kl. 11. í Njarðvíkurkirkju. Sr.
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar.
Kirkjukórinn leiðir söng við undirleik
Stefáns Helga Kristinssonar org-
anista.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Djass-
messa sunnudag kl. 14. Sr. Pétur Þor-
steinsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Messugutti er Petra Jónsdóttir.
Árni Heiðar Karlsson spilar og stjórnar
félögum úr Fjárlaganefnd sem leiða
söng og messusvör. Ólafur Karlsson
tekur á móti öllum.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17.
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Ræðu-
maður Haraldur Jóhannsson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng.
Organisti er Douglas A. Brotchie.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíð-
armessa kl. 11. Minnst verður þess
að 150 ár eru liðin frá fæðingu sr.
Friðriks Friðrikssonar. Sr. Kristján
Búason, fyrrverandi dósent, prédikar.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir
altari. Organisti er Friðrik Vignir Stef-
ánsson. Eygló Rúnarsdóttir leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Allir sálmar
messunnar eru eftir sr. Friðrik Frið-
riksson. Kaffiveitingar og samfélag
eftir athöfn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Nytjamarkaður og vöfflusala laugar-
daginn 26. maí kl. 14-16 í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Ágóði rennur í
styrktarsjóð kirkjunnar. Á sama tíma
er Systrafélag Víðistaðasóknar með
árlega blómasölu á kirkjutorginu. Hún
stendur yfir frá 24.-31. maí kl. 11-18
alla dagana.
Helgistund sunnudag kl. 20. Helga
Þórdís Guðmundsdóttir spilar á orgel
og leiðir söng.
Orð dagsins: Kristur
og Nikódemus
(Jóh. 3)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Krosskirkja í Landeyjum.
Enn og aftur
stöndum við
kjósendur í
gamalkunnum
sporum: Hvað á
ég að kjósa?
Ég er ekki,
frekar en oft áð-
ur á þessum síð-
um, tilbúinn að
svara þeirri
spurningu beint.
Hinsvegar segi ég: Kjósum öll.
Ísland, með öllum sínum
bæjum og sveitafélögum, er
heimili okkar allra. Það er ár-
íðandi að við sýnum að okkur er
ekki sama hverjir stjórna,
hvernig þeir gera það eða hvað
það kostar okkur – beint og
óbeint.
Í Reykjavík
… en þar þekki ég betur til
en víða annars staðar, hefur
sitjandi borgarstjóri og flokkur
hans verið nær einráður. Þar
hefur skuldum verið safnað og
virðist ekki lát á.
Frambjóðendur tala glað-
beittir um borgarlínu og að
setja hluta Miklubrautar í
stokk. Þá er fjölgað fulltrúum
okkar í borgarstjórn með til-
heyrandi kostnaði – sem ekki
aðeins nemur launum þeirra.
Úthlutunarfyrirkomulag lóða
hefur stórhækkað húsnæð-
isverð og nú síðast reyndi borg-
arstjórinn að skjóta sér undan
ábyrgð með því að segja „mark-
aðurinn brást“. Byggingarfyr-
irtæki áttu að byggja smærri
íbúðir á viðráðanlegu verði. Á
móti geta fjárvana kaupendur
og þeir sem flúðu í önnur sveit-
arfélög spurt: Af hverju var það
þá ekki skilyrt við úthlutun
byggingarlóða?
Annars staðar
… eru e.t.v. allt önnur vanda-
mál en hlutfallslega jafn alvar-
leg. Ég vona þó að svo sé ekki.
Það sjá heimamenn á hverjum
stað best. Alls staðar skiptir
máli að heiðarlegir stjórnendur
fáist til að stýra hverri sveit.
Fólk sem af alúð og innsæi
greinir raunverulegar þarfir
sveitunga sinna
frá draumórum
og gæluverk-
efnum sem öðru
hvoru skjóta upp
kollinum í um-
ræðunni. Þá
reynir á „jarð-
samband“ sveit-
arstjórnamanna
og virðingu
þeirra fyrir háum
og lágum, ríkum
og fátækum.
Við kjósendur
þurfum líka að vanda okkur;
ekki gera óhóflegar kröfur
sem mismuna íbúum sveitarfé-
lagsins. Til lengdar mun jafn-
rétti og náungakærleikur skila
okkur meiru en frændhygli og
klíkuskapur.
Frambjóðendur
… eru víða óvenju margir
miðað við það sem áður hefur
tíðkast. Í hópi þeirra eru
margir að reyna fyrir sér í
fyrsta skipti á hálum brautum
stjórnmálanna. Sum þeirra
koma með ferskar hugmyndir,
önnur með nýtt sjónarhorn á
ríkjandi vandamál. Sjálfsagt er
að skoða hugmyndir þeirra
allra.
Svo ég aftur svipist um í
Reykjavík þá verður fyrir mér
nýtt framboð Íslensku þjóð-
fylkingarinnar sem nær ein
hefur ákveðna stefnu í „útlend-
ingamálum“. Löngu er kominn
tími til að taka umræðu um
þau mál af yfirvegun og skyn-
semi. Það ofstæki og illmælgi
sem málshefjendur slíkrar um-
ræðu hafa sætt hefur aftur
leitt af sér mikla þöggun sem
ein og sér er mikil bölvun –
hvert sem ágreiningsmálið er,
og leiðir af sér vandamál en
ekki lausnir eða sátt.
Sjálfstæðisflokkurinn hafn-
ar borgarlínu og öðru peninga-
bruðli núverandi borg-
arstjórnar. Það er gott og
fyllilega tímabært. Sunda-
braut á að koma aftur á dag-
skrá – enda hreint öryggismál
fyrir alla sem búa vestan El-
liðaár. Aldraðir, eldri en 70
ára, þurfi ekki að borga fast-
eignagjöld. Dregið verði úr
stjórnsýslubákni borgarinnar.
Peningum sem þannig sparast
verði varið til menntamála
Framsóknarflokkurinn set-
ur Ingvar Mar Jónsson flug-
stjóra í fyrsta sætið í Reykja-
vík. Það er viðeigandi því fyrr
eða síðar heldur deilan um
staðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar áfram.
Í þriðja sæti listans er Ást-
hildur Lóa Þórsdóttir kennari.
Í allri þeirri umræðu sem verið
hefur um menntamálin – og
vafalaust heldur áfram – kem-
ur kennarareynslan sér vel.
Ásthildur er að auki formaður
Hagsmunasamtaka heim-
ilanna sem í mörg ár hafa bar-
ist fyrir réttlæti til handa þeim
sem fóru illa útúr efnahags-
hruninu 2008.
Margir misstu þá heimili
sín, atvinnu og sparifé. Það er
Reykvíkingum sem búa við fá-
tækt og öryggisleysi mikill
fengur að fá einstakling með
reynslu og yfirsýn Ásthildar á
vettvang stjórnmálanna.
Ég læt hér staðar numið en
hvet lesendur til að skoða
stefnuskrár hinna ýmsu fram-
boða og umfram allt að taka
þátt í kosningunum.
Til að geta veitt aðhald og
fylgst með efndunum er sjálf-
sagt að geyma stefnuskrárnar.
Sjálfsagt er svo á næstu árum
að láta í sér heyra ef mis-
brestur verður – eða
„gleymska“ hrjáir þessa trún-
aðarmenn okkar.
Til þess eru margar leiðir
opnar: Hringja, senda bréf,
senda tölvupóst eða senda
stutta grein um efnið til ein-
hvers dagblaðs.
Munum loforðin
– skoðum efndirnar
Eftir Baldur
Ágústsson »Ég hvet les-
endur eindregið
til að skoða stefnu-
skrár hinna ýmsu
framboða og um-
fram allt að taka
þátt í kosningunum.
Baldur Ágústsson
Höfundur er fv. forstjóri,
flugumferðarstjóri og forseta-
frambjóðandi.
baldur@landsmenn.is
Fyrir skömmu
lá leið mín inn í
stóra forn-
bókaverslun. Þar
sem ég stóð við
hillurnar með
hundruðum bóka
um trúmál og
andlega auðlegð,
tjáði af-
greiðslumaðurinn
mér að salan á slíkum bókum
hefði aukist mikið eftir efna-
hagshrunið 2008. Það kom
mér ekkert á óvart að fólk
skyldi leita í andlega næringu
– hið lifandi orð. Ég var svo
lánsamur að finna þarna
gamla bók á gjafverði, sem átti
eftir að færa mér aukinn frið á
sál og líkama. Efnahagshrunið
skall yfir Íslendinga vegna
ójafnvægis í lífshlaupi þeirra
manna sem ábyrgir voru fyrir
því. Veraldarmunaðurinn var
farinn að þvælast fyrir fót-
unum á þeim og græðgin í
glingrið fipaði þá á hlaup-
unum. Lífið þarf á jafnvægi að
halda. Ójafnvægi er vottur um
óheilbrigði og ástand sem er
sjúklegt. Ég
fann fjársjóð í
þessari gömlu
bókarskruddu.
Hún kostaði
mig lítið. Það
var sem hún
biði þarna eftir
mér, svo ég
gæti vísað þjóð
minni á leið út
úr þeim ógöng-
um, sem hún
virðist vera að
komast í aftur
af völdum misindismanna. Þar
stóð þetta m.a., sem ég vil
deila ókeypis með andlegum
öreigum landa minna, því mér
finnst það eiga svo brýnt er-
indi til þeirra: „… allar guð-
sgjafir lífsins þarfnast engrar
veraldlegrar aðstoðar.“ (My
Letters From Heaven eftir
Winifred Graham, bls. 14). Ég
minntist þá einnig orða Jesú
Krists sem hann beindi til
fræðimanna síns tíma, og voru
þessi: „Þér villist, því þér
þekkið ekki ritningarnar“
(Matteus 22:29) og gaf í fram-
haldi samtíð sinni gullna sam-
félagsreglu, sem er einföld og
ódýr lausn á samfélagshörm-
ungum nútímans: „Þú skalt
elska náungann eins og sjálfan
þig“ (Matteus 22:39). Einmitt
þannig auður mun koma á
stöðugleika í lífi fólks á hinum
nýju andlegu krepputímum á
Íslandi. Það er komið nóg af
gagnslausum hagfræði-
útúrsnúningum í bili. Nú þurf-
um við á himneskri ráðgjöf að
halda, alvöru meðferð og for-
varnarstarfi, sem virkar á
timburmenn velferðarfyllirís-
ins og getur leitt fólk á veg
réttvísinnar og heiðarleikans í
samskiptum við náungann.
Kristur sagði: „Ef þér elskið
mig munuð þér halda boðorð
mín“ (Jóhannes 14:15). Þannig
verður þjóðin rík.
Fjársjóðir og þjóðarauður
Eftir Einar
Ingva
Magnússon
Einar Ingvi Magnússon
» Það er komið
nóg af gagns-
lausum hagfræði-
útúrsnúningum í
bili. Nú þurfum við
á himneskri ráðgjöf
að halda.
Höfundur er áhugamaður um
kristni og þjóðfélagsmál.
einar_ingvi@hotmail.com