Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 ✝ Kristján PéturGuðmundsson fæddist 3. ágúst 1934 í Reykjavík. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Mörk 29. apríl 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Helgason trésmið- ur, f. 1888 á Hvítanesi í Hval- firði, d. 1965, og Guðrún Sig- ríður Benediktsdóttir, f. 1896 á Eskifirði, d. 1984. Systkini Kristjáns eru Helga, f. 1929, Gísli, f. 1930, Guðfinna, f. 1931, Guðríður, f. 1933, d. 2000, og Hildur, f. 2003. Kristján fæddist og ólst upp á Njálsgötu 59 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá stærðfræðideild Mennta- skólans í Reykjavík 1956 og kandídatsprófi í lyfjafræði frá Danmarks Farmaceutiske Høj- skole 1963. Hann stundaði verknám í Vesturbæjar Apó- teki 1956-57, í Enghave Apo- tek í Kaupmannahöfn sumarið 1959 og í Holte Apotek 1959- 1960. Hann var lyfjafræðingur í Apóteki Austurbæjar 1963- 1964, framkvæmdastjóri Her- mes hf. 1964-1967 og apótek- ari í Nes Apóteki, Neskaup- stað, 1967-1976. Apótekari í Borgarness Apóteki 1976-1988 og í Vesturbæjar Apóteki 1989-1999. Lyfjafræðingur í afleysingum á Siglufirði á ár- unum 1999-2009. Útförin fór fram í kyrrþey 11. maí 2018. 1935, Helgi, f. 1936, d. 2017, Guðríður, f. 1938, og Eðvarð, f. 1939. Eftirlifandi eig- inkona Kristjáns er Kristín Ingiríð- ur Hallgrímsson, f. 1941. Börn þeirra eru: 1) Ásta Júlía, f. 1965, apótekari á Siglufirði, börn hennar eru Sveinn Gunnar Hálfdánarson, f. 1986, og Kristín Ingiríður Hálfdán- ardóttir, f. 1992. 2) Tómas Þór, f. 1966, hjarta- og lungnaskurðlæknir, börn hans eru Kristján, f. 1998, Júlía, f. „Mín mesta gæfa í lífinu var að kynnast honum pabba þín- um,“ sagði mamma oft upp úr eins manns hljóði og ég brosti og játaði því. Ég var svo lán- söm að eiga pabba sem ég leit upp til og gat leitað til um allt milli himins og jarðar, pabba sem var fyrirmynd mín í svo mörgu og gaf mér og bróður mínum ótakmarkaða ást og umhyggju öll þau ár sem hann var með okkur. Hann var glæsilegur maður, hávaxinn, glaðlyndur og mikill húmoristi. Hann var stálminn- ugur, orðheppinn og afbragðs penni. Þótt hann væri ekki mikið fyrir að trana sér fram og sæti oft í rólegheitum við lestur eða eitthvert grúsk, þá fór ekkert á milli mála þegar pabbi var á svæðinu því hann átti það til að reka upp rokna hlátur þegar hann var að lesa eða horfa á eitthvað skemmti- legt. Hláturinn hans var bráð- smitandi og ég þarf ekki annað en að hugsa um hann, þá fer ég að hlæja. Við systkinin fengum að vera með í öllu sem hann gerði og hann deildi með okkur áhugamálum sínum. Hann kenndi okkur að tefla, leysa krossgátur, þekkja plöntur, steina og stjörnur og við fengum að fylgjast með honum í vinnunni að búa til mixtúrur og smyrsli. Hann var greiðvikinn og gerði ekki mannamun, það sá ég svo oft þegar ég á unglingsárunum vann með honum í apótekinu. Á hverju sumri fórum við í veiðitúra, fyrir austan í Vest- urdalsá, í Langá eftir að við fluttum í Borgarnes og síðustu árin í Fróðá á Snæfellsnesi. Pabba var mikið í mun að allir fengju að veiða lax, það skipti hann meira máli en að hann veiddi eitthvað sjálfur. Hann sat gjarnan við skrifborðið í veiðihúsinu með veiðihattinn sinn og skoðaði veiðibókina og stúderaði hvar væri vænlegast að fá fisk, kom svo með út í á eða beið eftir okkur í veiðihús- inu og sló á þráðinn til bræðra sinna eða einhverra veiðifélaga til að spjalla á meðan. Hann var yndislegur afi og fylgdist vel með uppvexti barnanna minna. Hann naut þess að ferðast og eftir að hann hætti að vinna kom hann reglulega norður á Siglufjörð til mín og hjálpaði mér í apótekinu. Það var sérstaklega gaman að ferðast með honum í bíl, þá sagði hann manni sögur. Sögur frá námsárunum, lífinu á Njálsgötunni og hernámsárun- um og á stjörnubjörtum kvöld- um skoðuðum við stjörnurnar á leiðinni. Hann var alltaf að leita að Júpíter og gladdist mjög þegar hann birtist á himninum með sín fylgitungl. Pabbi og mamma voru mjög samrýnd og síðustu árin þurfti pabbi mikið að stóla á stóru ástina sína og skiptu þau þá um hlutverk. Pabbi hafði alltaf verið kletturinn. Það síðasta sem ég heyrði pabba segja við mömmu var „mikið ertu dásamlega falleg kona“. Nú er hann farinn, en tíminn sem við áttum saman er eilífðar fjár- sjóðurinn minn. Það er svo sárt að kveðja þig elsku pabbi minn, en það er mín huggun að þú lifir áfram í okkur afkomendum þínum. Takk fyrir allar dásam- legu minningarnar sem ég á um þig, þær eiga eftir að gleðja mig svo lengi sem ég lifi. Í sólkerfi minninga minna ert þú minn Júpíter. Ásta Júlía. Þegar ég nú minnist bróður míns, Kristjáns Péturs, koma í hugann ýmsar minningar frá uppvaxtarárum okkar systkina við Njálsgötuna í Reykjavík þar sem við fæddumst í húsinu nr. 59. Þar eignuðumst við vini og leiksystkin og þurftum við ekki að fara út fyrir Njálsgötu og Barónsstíg í leit að þeim; þeir voru þarna og vinátta nokkurra þeirra hefir haldist alla tíð. Kristján og fleiri vinir fóru snemma að afla sér tekna með því að selja og bera út blöð, gerðust sendlar hjá kaupmönn- um við Njálsgötuna og víðar. Eitt sinn sá Kristján að auglýst var eftir pilti til ýmissa starfa hjá lyfjabúðinni Iðunni við Laugaveginn. Kristján sótti um starfið og fékk það. Þann vetur tók hann þá ákvörðun að fara í landspróf, fara svo í MR og læra síðan lyfjafræði, sem hann gerði. Hann lauk lyfjafræðinámi í Kaupmannahöfn árið 1963 og kom þá heim og vann við afleys- ingar í apótekum um tíma, þar til hann fékk starf sem fram- kvæmdastjóri lyfjaheildsölunnar Hermes. Apótekið í Neskaupstað var laust til umsóknar og þangað fluttist fjölskyldan og áttu þau heimili þar í níu ár. Þá var Borg- arness Apótek laust til umsóknar og var Kristjáni veitt það og þar bjó fjölskyldan í tólf ár. Eftir það var honum veitt Vesturbæj- ar Apótek í Reykjavík. Kristján og konan hans Krist- ín voru mjög gestrisin og á landsbyggðarárum þeirra var oft mjög gestkvæmt á þeirra heim- ili. Móðir okkar, sem þá var orð- in ekkja, hafði ekki haft mörg tækifæri til að ferðast vegna anna á mannmörgu heimili. Hin efri ár voru henni ánægjuleg, hún var heilsuhraust bæði and- lega og líkamlega og hafði hún þá tækifæri til að dvelja hjá börnum sínum; Kristjáni og Kristínu, á landsbyggðinni og eins hjá dóttur sinni og tengda- syni í Svíþjóð. Þau ár, sem Kristján bróðir var við nám í Kaupmannahöfn, skrifaði hann oft heim. Hann hafði mjög gaman af að skrifa og segja fréttir frá skólanum og starfinu í lyfjabúðunum. Við skrifuðumst á og eru þau bréf hans mér mjög dýrmæt. Hann hafði afar næmt skopskyn og hefi ég ánægju af að lesa þau af og til og haft af mjög góða skemmtun. Í minningargrein um bróður okkar Helga Guðmundsson úr- smið, sem lést hinn 16. október sl., nefndi ég föstudagsmætingar bræðranna á heimili mínu í Reykjavík, þar sem við rifjuðum upp gamlar minningar frá upp- vaxtarárum okkar við Njálsgöt- una og fleira skemmtilegt. Þeirra stunda sakna ég mjög. Kristján var mjög minnugur og var á síðari árum afar áhuga- samur um ættfræði og nýtti sér því Íslendingabók vel. Kristján var orðvar, vandvirkur, trygg- lyndur og afar góður bróðir og vinur. Kristín eiginkona hans var hans trausti lífsförunautur og kom það best í ljós í hinum löngu og erfiðu veikindum hans og börnin þeirra tvö, Ásta Júlía og Tómas, notuðu frístundir sín- ar til að vera hjá föður sínum síðustu mánuðina. Kristján bróð- ir kvaddi þetta jarðneska líf hinn 29. apríl sl. Kristínu, börnunum, barna- börnunum og öðrum ástvinum sendum við systkinin, makar og frændsystkin okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi hann vera á Guðs vegum. Guðfinna. Föðurbróðir minn Kristján P. Guðmundsson hefur kvatt okkur og hafið ferð sína í sumarlandið. Ég veit að þar hefur verið vel tekið á móti honum enda var hann alveg sérstakt ljúfmenni. Þrátt fyrir að ansi mörg ár hafi skilið okkur að þá náðum við alltaf vel saman. Þau voru ófá símtölin sem við áttum en hann átti nú yfirleitt frumkvæði að þeim. Við gátum spjallað um allt milli himins og jarðar en þó að- allega pólitík. Frændi var mikið íhald eins og hann sagði sjálfur en þrátt fyrir það var hann afar gagnrýninn á störf síns flokks og var langt frá því að vera alltaf ánægður með það sem var að gerast í landsmálunum. Við rök- ræddum oft tímunum saman en okkur sinnaðist aldrei. Símtölin enduðu oftast á þann veg að hann sagði: „Þú ættir nú bara að bjóða þig fram til þings, elsku frænka.“ Hann lofaði að minnsta kosti sínum stuðningi alveg sama um hvaða flokk væri að ræða. Já, það er lán að hafa fengið að kynnast Kristjáni. Hann var uppfullur af fróðleik, alltaf reiðubúinn til að gefa góð ráð og þegar heilsunni fór að hraka var gaman að geta glatt hann með góðu spjalli. Í síð- ustu heimsókn minni til hans fyrir jól tók hann afar glaður á móti mér og sagði um leið og hann sá mig: „Nei, er ekki uppáhalds frænka mín komin!“ Mikið gladdi það mig svona rétt fyrir jólin, að geta kallað fram þessa litlu gleði í aðdrag- anda jólanna. Ég vil fyrir hönd fjölskyld- unnar votta Kristínu, Ástu Júl- íu, Tómasi og þeirra fjölskyld- um mína dýpstu samúð. Sandra Eðvarðsdóttir Í litlu húsi innarlega á Njálsgötu rétt við Barónsstíg bjó fjölskylda vinar míns, Kristjáns apótekara. Í þessu húsi, lítill kjallari, hæð og ris, bjuggu 9 mann- eskjur. Hæðin var eldhús, stofa, svefnherbergi og snyrt- ing, ríki foreldranna, en í ris- inu, þrjú herbergi hvert innaf öðru. Þar ríktu börnin, dæt- urnar þrjár, Guðfinna, Helga og Guðríður og synirnir fjórir er seinna urðu Gísli prentari, Stjáni apótekari, Helgi úri og Ebbi kommi sem varð rafvirki. Ótrúlega falleg fjölskylda í þessu litla húsi, lifandi sönnun þess að ekki þarf stórt hús eða mikla fjármuni til að öll börn komist til manns eftir að hafa lifað ríka og hamingjusama æsku. Það sannaðist á börnum þessa húss. Nú eru tveir þessara bræðra látnir með stuttu millibili, Helgi úri og vinur minn Krist- ján apótekari. Við kynntumst þegar við báðir vorum í landsprófi í Gaggó Aust, báðir að leggja í menntaveginn, þá skrykkjóttu og margbrotnu götu með öllum þeim skemmtilegu útúrdúrum sem það æviskeið býður uppá. Þar með hófst vinskapur tveggja einstaklinga, annars af Njálsgötu, hins af Grettisgötu, sem stóð í um sextíu ár, gagn- kvæm virðing, mörg ævintýri en umfram allt taumlaus ánægja og takmarkalaus greiðasemi. Kristján vinur minn var í senn mikill námsmaður og ná- inn vinur vina sinna, vinnu- samur og duglegur en jafn- framt góðmenni og hjálpsamur, sem aldrei mátti aumt sjá. Hann var þriggja apóteka maður, fyrst í Neskaupstað, svo í Borgarnesi og loks í Vesturbæjarapóteki. Í þann tíma voru apótekarar leyfis- hafar og eigendur apóteka og báru fulla ábyrgð á lyfjadreif- ingu í landinu. Við félagarnir göntuðumst stundum með að það þyrfti að verða landsfýsiker, Íslands- apótekari en þróunin varð í hina áttina. Kristján var mikill náttúru- unnandi og laxveiðimaður. Oft birtast í huga mér myndir frá bökkum Langár á Mýrum þeg- ar sveiflað var flugunni „Kalla Lú special“ sem var stærsta freisting fyrir laxa í ánni, ómótstæðilegt apótekaraagn. Ekki má gleyma hlýjum sum- ardögum við Fróðá á Snæfells- nesi og setrinu fína á þeim bæ. Kristján var gæfumaður í einkalífinu með eiginkonu sinni Kristínu Hallgrímsson en þau eignuðust tvö börn, dótt- urina Ástu Júlíu, lyfsala á Siglufirði, og soninn Tómas, skurðlækni á Landspítala. Fimm barnabörn voru á vappi í kringum afa sinn og ömmu og voru öll þátttakendur í ríku og hamingjusömu fjölskyldulífi. Við Anna Sigríður kveðjum þennan góða og trygglynda vin og samhryggjumst eiginkonu og fjölskyldu hans. Knútur Bruun. Kristján Pétur Guðmundsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elskulegur eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, DAVÍÐ GUÐMUNDSSON bóndi, frá Glæsibæ, Hörgársveit, verður jarðsunginn frá Möðruvalla- klausturskirkju mánudaginn 28. maí klukkan 14. Jarðsett verður í Glæsibæjarkirkjugarði. Sigríður Manasesdóttir Valgerður Davíðsdóttir Magnús S. Sigurólason Rúnar Davíðsson Jakobína E. Áskelsdóttir Hulda Davíðsdóttir Heiða S. Davíðsdóttir Michael V. Clausen Eydís B. Davíðsdóttir Atli R. Arngrímsson afa- og langafabörn Okkar ástkæra, HJÖRDÍS EMMA MORTHENS, lést 19. maí á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför hennar fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristinn Rúnar Morthens Guðmundur Þorkell Þórðarson Þorlákur Víkingur Morthens Þórður Guðmundsson Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, SIF SIGURÐARDÓTTIR kennari, Kvisthaga 27, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 10. maí verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 29. maí klukkan 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Atli Heimir Sveinsson Sjöfn Blöndal Auðunn Árni Blöndal Stefanía Björg Eggertsdóttir Edda Lúvísa Blöndal Páll Hólm Sigurðsson Sigurður Samúel Sigurðsson Christine Sigurðsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.