Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 146. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Líkamsleifarnar af Arturi 2. Tíu ára þunguð eftir nauðgun ... 3. Spá óvenjumikilli úrkomu 4. Úr fangelsi í framboð  Færeyska víkingamálmsveitin Týr mun koma fram á þungarokkshátíð- inni Eistnaflugi sem haldin verður í Neskaupstað 11.-14. júlí. Hljómsveitin var stofnuð árið 1998 af fjórum Fær- eyingum og eru flest laga hennar sótt í færeyskan og norskan sagnaarf. Víkingamálmsveitin Týr á Eistnaflugi  Kristinn Sig- mundsson bassi og Tómas Tómas- son barítón eru í aðalhlutverkum í tónleika- uppfærslu Rai-hljómsveitar- innar í Tórínó á Hollendingnum fljúgandi eftir Richard Wagner nú í vikunni. James Conlon stjórnar og í öðrum aðalhlutverkum eru Amber Wagner og Sarah Murphy. Lokaflutn- ingur er í kvöld og sendur út beint af evrópskum útvarpsstöðvum. Tómas og Kristinn í Hollendingnum  Skoski tónlistarmaðurinn Midge Ure mun koma fram með Todmobile og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á tónleikum í Eldborg 2. nóvember næstkomandi. Ure var forsprakki hljómsveitarinnar Ultravox sem var á hátindi frægðar sinnar á níunda áratugnum og einn skipuleggjenda Live Aid-tónleikanna 1985 og Live 8 árið 2005. Midge Ure á tón- leikum Todmobile VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 5-13 m/s eftir hádegi, bjartviðri um landið norðaustanvert en talsverð úrkoma sunnan- og vestantil fram á kvöld. Hiti yfirleitt 6 til 13 stig. Á sunnudag Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast með suðvesturströndinni. Skýjað og rigning sunnan- og vestanlands, jafnvel talsverð um tíma en úrkomulítið austanlands. Hiti breytist lítið. Hiti 10-18 stig austantil en 5 til 13 stig um landið vestanvert. Á mánudag Minnkandi rigning á vestanverðu landinu en stöku skúrir austantil. „Það sem er heimskulegt er að Sara hafi verið sett í þá stöðu að hennar hrausti líkami væri farinn að gefa sig fyrir mikilvægasta leik tímabilsins. Það skrifast á þá sem stýra liðinu,“ skrifar Sindri Sverrisson meðal ann- ars í viðhorfsgrein sinni í dag um frammistöðu Söru Bjarkar Gunn- arsdóttur í úrslitaleik Meistara- deildar Evrópu. »4 Ábyrgðin þeirra sem stýra álaginu „Fyrsta árið í atvinnumennsk- unni er alltaf erfitt og maður þarf að finna sína eigin upp- skrift sem virkar. Slíkt getur tekið tíma og ég þykist vita að Ólafía (Þórunn Krist- insdóttir) sé í slíku aðlög- unarferli,“ segir einn sig- ursælasti kylfingur sögunnar, Annika Sörenstam, en hún er tekin tali í viðtali í íþróttablaði Morgun- blaðsins í dag. »2 Aðlögunarferlið getur tekið tíma „Helstu kostir mínir sem knatt- spyrnukonu felast í styrk og hraða. Ég hugsa að það sé frá strákunum komið, þeir eru sterkari líkam- lega og ég þurfti að vera sterk til þess að standa al- mennilega í þeim á æf- ingum í gamla daga,“ segir Eva Lind Elí- asdóttir, leikmaður knattspyrnuliðs Selfoss, sem ólst upp í strákafót- bolta í Þorláks- höfn. »2-3 Hefur styrkinn og hraðann frá strákunum Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég var svo heppinn að Jón Ólafs- son bauð mér og Davíð syni mínum á þessa tónleika með Rolling Stones sem voru þeir fyrstu við upphaf Evróputúrs þeirra nú í vor, en þeir fóru af stað með þetta prógramm í fyrrahaust. Tónleikarnir voru í Dublin á Írlandi á risaleikvangi þar sem mættu sjötíu þúsund manns til að berja goðin augum og njóta tón- listarflutningsins,“ segir Magnús Kjartansson tónlistarmaður sem fór fyrr í þessum mánuði á sína aðra tónleika um ævina með hinum einu sönnu Rolling Stones. Magnús segir að þeir feðgar hafi fengið miða í afar góð sæti á tón- leikunum og einnig aðgang að sér- stöku hólfi eða pytti, eins og hann kallar það, sem var fremst, alveg uppi við sviðið. „Við vorum því í sjö til fjórtán metra fjarlægð frá hljómsveitinni. Þetta var í fyrsta skipti sem ég gat séð gítarstrengina á svona risa- tónleikum hjá heimsfrægri hljóm- sveit,“ segir Magnús sem hefur að- eins einu sinni áður verið á tónleikum með Rolling Stones, en það var fyrir margt löngu. „Ég fór fyrir um tuttugu árum á tónleika með þeim á gamla Wemb- ley-leikvanginum í London, en þá var ég fararstjóri með rúmlega 300 Íslendinga sem fylltu heila júmbó- þotu. Ég naut því þeirra tónleika ekki að fullu, með alla þá ábyrgð sem fylgir því að halda utan um stóran hóp. Núna var ég aftur á móti þarna fyrir sjálfan mig, sem var allt önnur upplifun, og auk þess fengum við VIP-meðhöndlun. Við vorum með „friends and family“, konu Keiths Richards og dætrum þeirra tveimur sem og barnabörn- um, og líka dóttur Micks Jaggers. Ég lét mér detta í hug að ég væri að dansa við þessar yngismeyjar þar sem ég var með þeim í pyttinum beint fyrir framan hljómsveitina, og þær að vinka til pabba og afa á svið- inu,“ segir Magnús og hlær. Jane Rose passar upp á Keith „Þetta var mikið dekur, í her- berginu sem við fengum á leikvang- inum var matur og drykkur eins og hver gat í sig látið. Og þar voru líka frægir írskir leikarar, meðal annars úr Game of Thrones, svokallað „sel- eb“ sem sonur minn bar kennsl á. Okkur var boðið í mat á hótelið þar sem hljómsveitarmeðlimir Stones gistu, en við fengum ekki að hitta þá sjálfa. Aftur á móti fengum við meðal annars að hitta umsjónar- konu Keiths Richards, hana Jane Rose, hún borðaði með okkur og spjallaði heilmikið við okkur. Jane er búin að passa upp á Keith í ára- tugi, hún er í fullu starfi við það. Hún var áður aðstoðarkona Micks Jaggers, en þegar horfði ekki vel með Keith vegna lífernisins fékk Jagger vin sinn Keith til að sam- þykkja að flytja Jane yfir til hans, því hann treysti henni til að vera ekki meðvirk með Keith. Og þetta samstarf hefur gengið vel.“ Sá gítarstrengina í fyrsta skipti  Magnús Kjartansson var í pyttinum með dætrum Jaggers og Richards FÓLK Í FRÉTTUM Gleði Magnús Kjartansson (lengst t.v.) við stóra sviðið í Dublin með Jóni Ólafssyni, Mörtu mágkonu Jóns, Friðriki bróður hennar og Guðleifi bróður Jóns. MDaglegt líf »12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.