Morgunblaðið - 26.05.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Í dag er kosið til sveitarstjórnaum allt land. Í samantekt um
fjármál sveitarfélaga, sem Við-
skiptaráð gaf út í vikunni, kemur
fram að tekjur sveitarfélaga á
hvern íbúa yfir
16 ára aldri
nema 104 þúsund
krónum á mán-
uði. Þetta er
gríðarleg byrði
fyrir heimilin í
landinu sem
þyrfti að ræða meira en gert er.
Í samantektinni kemur fram aðskuldir sveitarfélaganna eru
miklar, eða 122% af tekjum hjá
stærstu sveitarfélögunum. Þetta
ætti að vera íbúunum, skattgreið-
endunum, mikið áhyggjuefni.
Útsvar er skattur sem lands-menn verða lítið varir við því
að hann er ekki sundurliðaður frá
tekjuskatti ríkisins á launaseðl-
inum. Þó er það svo að útsvarið til
sveitarfélaganna er hærra er tekju-
skatturinn til ríkisins.
Þegar þetta er haft í huga, aukþess að flest sveitarfélög inn-
heimta hámark leyfilegs útsvars,
vekur furðu hve lítið hefur verið
um þessa skattlagningu rætt fyrir
kosningar.
Þá eru fasteignagjöld sveitarfé-laganna há hér á landi, til
dæmis mun hærri en á hinum lönd-
unum á Norðurlöndum. Og þessi
gjöld hafa farið hækkandi vegna
ört hækkandi fasteignaverðs, sem
meðal annars stafar af stefnu sveit-
arfélaganna sjálfra, ekki síst þess
stærsta.
Ef íbúarnir láta sér þessi mál íléttu rúmi liggja er hætt við
að skattheimtan haldi áfram að
hækka, þó að fullyrða megi að fáir
kjósi í raun þá þróun.
Eru skattarnir
aukaatriði?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 alskýjað
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 26 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 19 heiðskírt
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 19 skýjað
London 17 þoka
París 22 skúrir
Amsterdam 23 léttskýjað
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 19 skýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 25 heiðskírt
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 21 skýjað
Montreal 24 alskýjað
New York 27 skýjað
Chicago 27 heiðskírt
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:39 23:12
ÍSAFJÖRÐUR 3:07 23:54
SIGLUFJÖRÐUR 2:48 23:38
DJÚPIVOGUR 2:59 22:50
Unnað er að ritun og útgáfu Skák-
ævisögu Friðriks Ólafssonar,
fyrsta stórmeistara Íslendinga.
Skáksögufélag Íslands hefur veg
og vanda af útgáfunni og hefur
gert samning við Helga Ólafsson
stórmeistara um að vera aðal-
ritstjóri og höfundur. Honum til
halds og trausts eru í ritnefnd,
auk Friðriks, þeir Jón Þ. Þór og
Jón Torfason, báðir kunnir sagn-
fræðingar og skákmenn góðir.
Áformað er að bókin komi út að
rúmu ári liðnu eða haustið 2019
og verði myndarlegur prent-
gripur, að því er Einar S. Einars-
son, forseti Skáksögufélagsins,
tjáði Morgunblaðinu. Áður hefur
félagið sett upp vefsíðu um skák-
og afreksferil Friðriks Ólafssonar.
Heimasíðan var formlega opnuð
fyrir tveimur árum af Illuga
Gunnarssyni, þáverandi mennta-
málaráðherra.
Um er að ræða upplýsingasíðu
með ótal gömlum blaðafréttum,
viðtölum og greinum um meist-
arann, auk yfirlits um öll þau
mörgu mót sem hann tefldi á, nær
allar skákir hans og helstu mót-
herja. Heimasíðan er ríkulega
skreytt ljósmyndum frá ferli Frið-
riks og úr íslensku skáklífi.
Þá stendur einnig fyrir dyrum
að setja brjóstmynd meistarans á
stall, en nú er verið að steypa
gifsmynd hennar í eir í Moskvu.
Styttan var gerð fyrir aldarfjórð-
ungi af hinum kunna rússnesk/
bandaríska myndhöggvara Peter
Saphiro.
Það var Ólafur Egilsson, fyrr-
verandi sendherra, sem hafði
milligöngu um gerð gifsstyttunnar
á sínum tíma. sisi@mbl.is
Helgi ritar skákævisögu Friðriks
Brjóstmynd
Friðriks
Helgi
Ólafsson
Átta umsækj-
endur voru um
embætti prests
við Tjarn-
arprestakall í
Kjalarnespró-
fastsdæmi. Um-
sóknarfrestur
rann út 22. maí
sl.
Umsækjendur eru í starfrófsröð:
Arnór Bjarki Blomsterberg guð-
fræðingur, Bryndís Svavarsdóttir
guðfræðingur, sr. Gunnar Jóhann-
esson, sr. Hildur Björk Hörpudótt-
ir, Jónína Ólafsdóttir guðfræðingur,
sr. Ólafur Jón Magnússon, sr.
Sveinn Alfreðsson og sr. Ursula
Árnadóttir.
Biskup Íslands skipar í embættið
frá 1. ágúst nk. til fimm ára. Um-
sóknir hljóta umfjöllun matsnefndar
og að fenginni niðurstöðu hennar
fjallar kjörnefnd prestakallsins um
umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því
búnu milli umsækjendanna og skip-
ar biskup Íslands þann umsækj-
anda sem hlýtur löglega kosningu.
Sóknarprestur í Tjarnarpresta-
kalli er sr. Kjartan Jónsson. Tveir
söfnuðir eru í prestakallinu,
Ástjarnarsókn í Hafnarfirði
(Vellirnir) og Kálfatjarnarsókn á
Vatnsleysuströnd. sisi@mbl.is
Átta sækja
um prests-
embætti
Kálfatjarnarkirkja