Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 Sundknattleikur Boltinn er víða. Núna ber mest á honum hjá stjórnmálamönnum, sem kosið verður um í sveit- arstjórnarkosningum í dag, en liðsmenn Ármanns bíða spenntir á brún Laugardalslaugar eftir næstu skiptingu. Árni Sæberg Það er eftirsókn- arvert að eiga búsetu í Garðabæ og við Garðbæingar erum stoltir af því. Við bú- um í góðu samfélagi. Það er ekki sjálfgefið. Það þarf fyrirhyggju og metnaðarfulla sýn á hvernig samfélag við viljum skapa. Okkar aðalsmerki hefur verið traustur fjárhagur og áhersla hefur verið lögð á góða þjónustu við bæj- arbúa og framsækni á öllum svið- um. Tækifæri til að gera betur eru til staðar og þau ætlum við að nýta, fáum við til þess umboð. Atkvæði greidd öðrum framboðum eru ávís- un á óvissu. Við viljum vera í forystu sveitar- félaga og láta þann tón óma hærra að Garðabær sé samheldið og þrótt- mikið samfélag þar sem mennskan og gæskan eru í fyrirrúmi. Við vilj- um efla þessi gildi enn frekar og þróa samfélag sem stuðlar að vellíð- an, velferð og þroska allra íbúa. Við viljum áfram vera í forystu þegar kemur að þjónustu og ánægju íbúa. Jafnframt leggjum við þunga áherslu á virðingu fyrir náttúrunni og viljum tryggja að bæjarbúar geti notið friðsældar í þeim náttúru- perlum sem eru í bæjarlandinu. Þau fyrirheit sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ setja fram í stefnuskrá sinni eru margþætt og metnaðarfull. Þessi fyrirheit hafa frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins unnið með þátttöku fjölmargra bæjarbúa sem láta sig hag bæjarins varða. Líkt og áður setjum við fram mark- mið sem við munum standa við. Traust byggist á því að standa við sín fyr- irheit. Það gerum við sjálfstæðismenn í Garðabæ. Bærinn okkar vex og dafnar. Fjölmargir nýir íbúar hafa valið sér búsetu í bænum á síðustu árum. Við bjóðum þá sérstaklega velkomna um leið og við hvetjum alla sem hafa kosningarétt til að nýta sér hann. Við hvetjum líka alla íbúa bæjarins til að fylgjast með því sem er að gerast á hverjum tíma og taka virkan þátt í samtali og sam- ráði um það samfélag sem við búum í. Við sjálfstæðismenn þökkum fyr- ir það traust sem okkur hefur verið sýnt um langt árabil við stjórn bæj- arins. Það er von okkar að við fáum áframhaldandi umboð til þess að vinna að þeim framfaramálum sem sett eru fram í stefnuskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil í þágu allra Garðbæinga. Eftir Gunnar Einarsson » Tækifæri til að gera betur eru til staðar og þau ætlum við að nýta, fáum við til þess umboð. Gunnar Einarsson Höfundur er bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Garðabæ. Í forystu með Garðbæingum Í dag er dagurinn upp runninn. Í dag getum við breytt Reykjavík. Í dag kjós- um við um framtíðina, hvort við viljum óbreytt ástand eða breytta, betri og lifandi borg. Við viljum að Reykjavík standi undir nafni sem höfuðborg, að hún hafi aðdráttarafl bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Sé borg þar sem bæði athafnalíf og menningarlíf geta blómstrað og ólíkt fólk – mislangt komið á ævigöngunni – með ólík áhugamál og hagsmuni, ólík efni og aðstæður, getur búið saman í fjöl- breyttri borg, hver eins og hann fær um ráðið. Við viljum að Reykjavíkurborg sinni öllum íbúum sínum og gestum jafnvel, óháð búsetu, aldri eða öðrum þátt- um. Það blasa ýmis vandamál við í Reykja- vík, en til allrar ham- ingju eru þau alls ekki óleysanleg, þótt sum- um vaxi þau í augum og fallist jafnvel hend- ur. Það er hins vegar skylda okkar stjórn- málamanna að horfast í augu við vandann, finna á honum raun- hæfar lausnir og umfram allt að láta verða af þeim. Hér og nú, ekki ein- hvern tímann seinna í óljósri fram- tíð. Það ætlum við gera. Við munum gera það sem við segjum. Borgin hefur aðeins eitt hlutverk og það er að þjóna íbúum sínum. Hún þarf að veita þeim rými til þess að búa, starfa og lifa, greiða götu þeirra og veita þeim skjól og aðstoð sem höllum fæti standa. Við ætlum að einbeita okkur að þjónustu við borgarbúa, gera hana auðvelda, skiljanlega og skilvirka. Þannig fá borgarbúar best notið sín, þannig vex Reykjavík og dafnar, þannig byggjum við betri borg sam- an. Við búum í frábærri borg með ótal tækifæri, en við verðum að nýta þau. – Það er kominn tími til þess að breyta til í Reykjavík. Eftir Eyþór Arnalds Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Tími til að breyta til í borginni » Borgin hefur aðeins eitt hlutverk og það er að þjóna íbúum sínum. Hún þarf að veita þeim rými til þess að búa, starfa og lifa. Framtíð Hafnar- fjarðar er björt. Undanfarin ár hefur mikill viðsnúningur átt sér stað í rekstri sveitarfélagsins og góður grunnur verið lagður fyrir áfram- haldandi uppbyggingu á ýmsum sviðum. Við sjálfstæðismenn höf- um sýnt það á kjör- tímabilinu að við erum traustsins verð. Við höfum staðið við það sem við boðuðum fyrir síðustu kosningar. Þar ber hæst að hafa tekið fjármálin og rekstur sveitarfélagsins í gegn, en skuldahlutfall bæjarins hefur ekki verið lægra í 30 ár. Traustur rekstur og fjárhagur er grundvöllur þess að geta bætt þjónustuna og byggt upp á sem flestum sviðum sveitarfélagsins. Og vegna þess hve fjárhagsleg staða bæjarins hefur batnað hefur verið svigrúm til að efla þjónustuna, halda gjöldum í lág- marki, lækka skatta eins og útsvar og fasteignaskatta, setja af stað fjöl- mörg, ný góð verkefni og ráðast í framkvæmdir. Þessu verki er hvergi nærri lokið og mikilvægt að nýta vel þau tækifæri sem fram undan eru. Við viljum halda áfram á sömu braut og styrkja þann góða grunn sem hefur verið lagður á kjörtíma- bilinu. Í kosningunum í dag þarf Sjálfstæðisflokkurinn að fá skýrt umboð til að verða forystuaflið við myndun nýs meirihluta og halda áfram að byggja upp okkar góða bæjarfélag af metnaði og ábyrgð. Það er mikilvægt að nýta tækifærin og þau hagstæðu skilyrði sem nú eru fyrir hendi í Hafnarfirði og að ár- angrinum verði ekki glutrað niður. Höfum látið verkin tala Í kosningunum í dag verður kosið um fram- tíð Hafnarfjarðar. Það verður kosið um það hvort haldið verði áfram á braut ábyrgrar fjármálastjórnunar og skynsamlegrar uppbyggingar líkt og undanfarin fjögur ár eða ekki. Við sjálfstæðismenn höfum látið verkin tala. Mikilvægt er að Sjálfstæð- isflokkurinn haldi fimmta bæj- arfulltrúanum í bæjarstjórn og því brýnt að allir sjálfstæðismenn nýti kosningarétt sinn. Tryggjum áfram- haldandi uppbyggingu Hafn- arfjarðar með góðri kosningu D- listans. Höldum áfram og komum Hafnar- firði í allra fremstu röð. Kjósum reynslu, farsæld og fram- farir í Hafnarfirði Eftir Rósu Guðbjartsdóttur Rósa Guðbjartsdóttir » Við viljum halda áfram á sömu braut og styrkja þann góða grunn sem hefur verið lagður á kjörtímabilinu. Höfundur er formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Í dag göngum við að kjörborðinu til að kjósa sveitarstjórnir til næstu fjögurra ára. Sjálfstæðisflokk- urinn býður fram í 34 sveitarfélögum um allt land, ýmist einn og sér eða í samstarfi við óháða. Enginn annar stjórn- málaflokkur á Íslandi býður fram jafnmarga framboðs- lista, í litlum byggðarlögum sem stórum. Síðastliðna daga höfum við í for- ystu Sjálfstæðisflokksins ferðast vítt og breitt um landið, setið fundi og heimsótt vinnustaði. Bar- áttan gengur vel og almennt skynjum við mikla bjartsýni hjá fólkinu í landinu. Þar sem sjálfstæðismenn eru í meirihluta hafa íbúar kynnst styrkri og góðri stjórn, ábyrgð í fjármálum, hóflegum álögum og framúrskarandi þjónustu. Sjálf- stæðisstefnan er hófsamleg og borgaraleg framfara- stefna, enda vitum við að velgengni fólks og fyrirtækja helst í hendur. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur á að skipa einvalaliði um allt land, sem býður fram krafta sína til að stuðla að enn betra samfélagi í sveitarfélögum lands- ins. Frambjóðendur flokksins eru þannig reiðubúnir til þjónustu fyrir um- bjóðendur sína – kjósendurna. Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins og þar er löngu orðið tímabært að kjósa breytingar til hins betra. Að auka grunnþjónustu við íbúana þannig að þjónustan sem þeir njóta sé sambærileg við það sem gerist og gengur, svo sem á leikskólum borgarinnar. Að gera fjárhag borgarinnar burðugan á ný svo hægt sé að minnka álögur. Það þarf að búa svo um hnútana að ungt fólk geti sest að í Reykjavík, auka fjölbreytni í búsetuháttum, skipuleggja ný hverfi og leysa húsnæðiskreppuna sem núverandi borgarmeirihluti bjó til af ásettu ráði. Það er kominn tími til að breyta í Reykjavík. Og nú er komið að því að við nýtum kosningaréttinn, dæmum um verk liðinna ára og leggjum okkar af mörkum til þess að móta samfélagið næstu fjögur ár. Lát- um ekki okkar eftir liggja, mætum á kjörstað og tryggjum góðan sig- ur sjálfstæðisfólks um allt land. Þannig gerum við lífið betra. Sjálfstæðisflokkinn til forystu Eftir Bjarna Benediktsson » Þar sem sjálfstæðis- menn eru í meiri- hluta hafa íbúar kynnst styrkri og góðri stjórn, ábyrgð í fjármálum, hóf- legum álögum og fram- úrskarandi þjónustu. Bjarni Benediktsson Höfundur er fjármála- og efnahags- ráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.