Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 Núverandi meiri- hluti borgarstjórnar Reykjavíkur leggur of- urkapp á að kynna samgönguáætlun sína fyrir okkur kjósendum í aðdraganda sveit- arstjórnarkosninga. Áætlun þessi er annars vegar byggð á svokall- aðri borgarlínu höf- uðborgarsvæðisins, sem áætlað er að kosti minnst 100 milljarða, og hins vegar að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýr- inni eitthvað út fyrir borgina og þá helst í Hvassahraun. Nýr flugvöllur fyrir innanlandsflug sem þjónar samtímis sem varaflugvöllur milli- landaflugs er áætlað að kosti minnst 200 milljarða. Borgarlínan Strætósamgöngukerfi höfuðborg- arsvæðisins, sem hefur fengið nafn- ið „borgarlína“, á að bæta verulega almenningssamgöngur milli sveitar- félaga og borgarhluta og auka áhuga borgaranna á að nota þær. Um 4% íbúa höfuðborgarsvæðisins nota reglulega strætó. Björtustu vonir með borgarlínuna gera ráð fyrir að þessi notkun aukist í 10%. Það þýðir að 90% borgarbúa vilja heldur nota fjölskyldubílinn, sem eftir tíu ár verða flestir umhverf- isvænir rafbílar. Ýmsar útfærslur borgarlínunar hafa verið kynntar eins og lestir á teinum sem og stærri rafstrætóar á hjólum sem keyra á sértökum akreinum. Miðflokkurinn ætlar að endurskoða þessa hug- mynd með borgarlínuna. Þess í stað endurskipuleggja núverandi kerfi almenningssamganga eftir því sem borgin stækkar og íbúum fjölgar og þá fyrst og fremst miða við þarfir og áhuga borgarbúa á að nota slík sam- göngukerfi, ekki síst innan úthverfa borgarinnar þar sem börn sækja skóla, íþróttaæfingar o.fl. Helsta áhugamál núverandi meirihluta borgarinnar hefur verið að gera fólki erfiðara að ferðast milli borgarhluta á fjölskyldubílnum eins og með þrengingu Grensásvegar, Hofsvallagötu, Birkimels, Borgar- túns, Lönguhlíðar o.fl. svo og gælu- verkefnum eins og steinhleðslu með- fram Miklubraut við Klambratún. Þetta hef- ur kostað sitt; nokkra milljarða. Miðflokk- urinn vill aftur á móti koma til móts við sam- gönguþarfir borgarbúa með því að bæta um- ferðina með endurstill- ingu götuljósa og fjölg- un nútímahringtorga. Þá verður lögð áhersla á að Vegagerðin fari í Sundagöng, Sunda- braut og tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi. Það verða forgansverk- efni! Flugvöllurinn í Vatnsmýri Núverandi meirihluti Reykjavík- urborgar hefur lagt ofurkapp á að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni, hvað sem það kostar, því það þarf lóðir til að byggja fleiri íbúðir í mið- bænum í samræmi við þrengingar- stefnu þessara flokka sem vilja gera Reykjavík að Dubai norðursins fyrir ríka alþjóðlega borgara. Lóðir í Vatnsmýri verða mjög dýrar og hvað þá bygging fjölbýlishúsa í botnslausri mýri sem eiga að þola jarðskjálfta 7 á Richter án þess að haggast eða hallast. Verð íbúða í þessum húsum yrði sko ekki fyrir ungt fjölskyldufólk. En þau munu aldrei rísa því flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni! Skoðaðir hafa verið 25 mismun- andi staðir fyrir flugvöll fyrir innan- landsflug í nágrenni Reykjavíkur og seinasta athugun mælti aðeins með einum stað til frekari skoðunar; Hvassahrauni. Þeir flugmenn sem til þekkja segja þann stað alls ekki koma til greina í ljósi einnar aðflugs- línu til Keflavíkurflugvallar, vafa- samra veðurskilyrða og verulegrar ísingarhættu auk þess sem völlurinn yrði staðsettur í hrauni og vatns- verndarsvæði þannig að afísing véla og lendingarbrauta myndi eyði- leggja það. Já, svo er það kostnaður- inn sem er áætlaður yfir 200 millj- arðar króna! Miðflokkurinn svo og 75% þjóðarinnar vilja að flugvöll- urinn verði áfram í Vatnsmýrinni og verði tafarlaust endurbættur til að þjóna betur innanlandsflugi og sem varaflugvöllur millilandaflugs því hann getur núna tekið á móti 24 þot- um í neyðartilvikum. Þá verða lend- ingarbrautir lagfærðar og neyðar- flugbrautin tekin í aftur í notkun. Fjármögnun verkefna Báðar ofannefndar tillögur núver- andi meirihluta í Reykjavík í sam- göngumálum ganga út frá að fram- kvæmdirnar verði að mestu leyti fjármagnaðar í samgönguáætlun ríkissjóðs en ekki af útsvars- greiðslum Reykvíkinga. Landsmenn allir eiga sem sagt að taka á sig fjár- mögnun þessara dýru samgöngu- gæluverkefna en ekki má gleyma að Reykvíkingar greiða einnig skatta í ríkissjóð. Það er alveg ljóst að það er ekki áhugi á Alþingi Íslendinga fyrir þess- um óskynsamlegu samgöngu- gæluverkefnum Dags því það er tug- ur annarra samgönguverkefna sem er meira aðkallandi um land allt eins og lagning og viðhald vega, fækkun einbreiðra brúa og jarðgöng eins og Sundagöng. Í flugmálum eru einnig meira aðkallandi verkefni tengd ör- yggismálum eins og viðhald og stækkun flugvalla á Akureyri og Eg- ilstöðum vegna alþjóðlegra flug- samgangna og til að þjóna sem vara- flugvellir millilandaflugs með nútíma gps-staðsetningar- og lending- arkerfum, stækkun flughlaða fyrir fleiri og stærri vélar svo og lengingu og fjölgun flugbrauta. Einnig lagfær- ingu minni flugvalla um land allt vegna sjúkra- og útsýnisflugs. Þá er bygging samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll á áætlun. Ofannefnd 300 milljarða sam- göngugæluverkefni núverandi meirihluta Reykjavíkurborgar eru því óskynsamleg, óraunhæf og oflof- orð í aðdraganda borgarstjórnar- kosninga. Hvað finnst þér, kjósandi góður? 300 milljarða samgöngugælu- verkefni Dags B. óraunhæf Eftir Jón Hjaltalín Magnússon » Þessi 300 milljarða samgöngugæluverk- efni núverandi meiri- hluta Reykjavíkurborg- ar eru óskynsamleg, óraunhæf og ofloforð í aðdraganda kosninga. Jón Hjaltalín Magnússon Höfundur er verkfræðingur og fram- bjóðandi Miðflokksins í Reykjavík. jhm@simnet.is Í tilefni framboða til kosninga 2018 sem eru framundan þurfum við að hafa í huga hag samfélagsins í heild. Við þurfum að skoða vel þá sem bjóða sig fram og hverra hags- muna þeir ætla í raun að gæta. Núna herjar áfengisiðnaðurinn á ráðamenn þjóðarinnar, hvort sem er þingmenn eða sveitar- og bæjarstjórnarmenn. Með gríðarlegum þrýstingi vill áfengisiðnaðurinn fá aukin tækifæri til að selja sínar vörur. Áfengi er engin venjuleg neysluvara og und- anfarin ár hefur okkur tekist að standa vörð um samfélagið okkar, sem ekki þarf aukið aðgengi að áfengi eða öðrum vímuefnum. Allar tilslakanir á forvarna/lýðheilsu- stefnu okkar eða sjálfbærni- markmiðum vinna sannarlega gegn hagsmunum samfélagsins á svo marga vegu og er andstætt yfirlýstri stefnu yfirvalda hvort sem er ríkisstjórn- arinnar eða stjórna bæjar- og sveitarfé- laga. Undanfarin ár hefur náðst undraverður ár- angur í forvörnum. Kynslóðir eru að alast upp sem hafa ekki áhuga á að byrja í neyslu. Byrjunaraldur áfengisneyslu hefur hækkað um fjögur ár og 42% framhalds- skólanema eru núna bindindisfólk. Það er horft til okkar forvarna á heimsvísu og þekking okkar flutt út til fjölda landa. Með því að ná hér fram nýjum kynslóðum ungmenna sem hafa áhuga á vímu- efnalausum lífsstíl minnkar hagn- aður áfengisiðnaðarins, sem sækir þess vegna fastar á. Áfengisiðnaður- inn vill fá fleiri viðskiptavini án tillits til afleiðinga þrátt fyrir að æ fleiri rannsóknir tengi áfengisneyslu við ósmitnæma sjúkdóma eins og krabbamein. IOGT á Íslandi leggur sitt af mörkum til að skapa heim þar sem fólk lifir frjálst frá hvers konar fíkn. Starf IOGT er mikil varnarbarátta þar sem ágengi þeirra er mikið sem sjá hag sinn í að sem flestir ánetjist þeirra vöru. IOGT hefur í gegnum tíðina innleitt góð gildi hjá almenn- ingi og ætlar að gera það áfram. All- ir einstaklingar búa yfir einstökum hæfileikum og auðveldasta skrefið til að ná fram þeim hæfileikum sem i okkur búa er að lifa vímuefnalausu lífi. Við viljum sjá ótakmarkað fram- boð á bindindi. Við viljum sjá ótakmarkað framboð á bindindi Eftir Aðalstein Gunnarsson » Allir einstaklingar búa yfir einstökum hæfileikum og auðveld- asta skrefið til að ná fram þeim hæfileikum sem í okkur búa er að lifa vímuefnalausu lífi. Aðalsteinn Gunnarsson Höfundur er framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi. Kjörum aldraðra má í fyrsta lagi skipta í tvennt. Það eru þeir sem njóta launa frá Tryggingastofnun og svo þeir sem hafa það háar eftirlaunatekjur að þeir njóta ekki greiðslna frá Trygg- ingastofnun. Eins og nú er geta þeir sem fá laun frá Tryggingastofnun ekki unnið á vinnumarkaðinum nema takmark- að vegna skerðingarákvæða stjórn- valda. Hinir sem ekki njóta greiðslna frá Tryggingastofnun geta aftur á móti unnið. Hafi þeir vilja og getu til þess. Þarna er mik- ið misrétti á milli þessara aðila. Komið hefur fram að sums staðar vantar fólk í vinnu. Það ætti að leyfa öldruðum sem vildu vinna og gætu unnið að vinna án skerðingar. Bæði mundi það hjálpa atvinnulíf- inu og veita þeim félagsskap, meiri lífsfyllingu og stuðla að heilbrigð- ari lífsháttum sem væri til að létta á heilbrigðiskerfinu. Fengju þessir aðilar að vinna án skerðingar- ákvæða stjórnvalda, mundu þessir aðilar að sjálfsögðu greiða skatta af þessum launatekjum sem kæmi sér vel fyrir ríkiskassann. Þetta mundi einnig stuðla að minnkun á svartri vinnu. Fjármagnstekjur valda einnig skerðingu hjá þeim sem njóta greiðslna frá Trygg- ingastofnun. Líka hefur styrkur frá stéttarfélagi valdið skerðingu. Ríkið er með allar klær úti gagn- vart þeim sem minna hafa. Þessu þarf að breyta en til þess þarf vilja. Starfandi stjórnvöld hafa oft fellt tillögur stjórn- arandstöðu til bóta í þessum málum en þegar þeir stjórn- arandstöðuflokkar hafa svo komist til áhrifa hafa þeir ekki fylgt þessum kröfum sínum eftir sem þeir áður fluttu tillögur um. Þarna eru orð án athafna. Að afnema þessi skerðingarákvæði ætti að vera flestum aug- ljóst. Það mundi jafna stöðu þeirra sem njóta greiðslna frá Trygginga- stofnun, auka þátttöku á vinnu- markaði, bæta tekjur ríkissjóðs, gefa öldruðum meiri lífsfyllingu og meiri félagsskap og hafa áhrif til bættrar heilsu. Það hljóta því að vera einhver annarleg sjónarmið sem ráða af- stöðu ráðamanna til þessara mála. Þó afnám þessarar skerðingar hefði einhvern aukinn kostnað í för með sér held ég að það kæmi margfalt til baka. Kjör aldraðra og bar- áttan við stjórnvöld Eftir Óla Stefán Runólfsson » Að afnema þessi skerðingarákvæði ætti að vera flestum augljóst. Það mundi jafna stöðu þeirra sem njóta greiðslna frá Tryggingastofnun og auka þátttöku á vinnu- markaði. Óli Stefán Runólfsson Höfundur er rennismiður og eft- irlaunaþegi. olistef1@simnet.is Fyrir nokkrum dög- um voru opnuð tilboð í lóðir í Úlfarsárdal í Reykjavík og má lesa niðurstöðu þeirra á vef Reykjavíkurborgar. Það sem vekur at- hygli við þetta útboð er hversu há tilboð voru samþykkt í þess- ar lóðir. Umfram- hækkanir virðast vera á bilinu 33-45% í samanburði við verð framreiknað með bygging- arvísitölu frá árinu 2014. Hlutfall lóðarverðs í byggingarkostnaði hækkar við þetta um 3,6 prósentu- stig í fjölbýlishúsum og um 5,9 pró- sentustig í einbýli. Þetta vekur auðvitað sérstaka at- hygli þegar höfð er í huga umræðan um dýrt húsnæði og þá auðvitað um leið spurningar um það hvers vegna borgin telur ástæðu til að stuðla að enn hærra verði íbúðarhúsnæðis en aðrir í byggingarbransanum. Hannarr ehf. birtir kostnaðartölur bygg- inga reglulega og miðar þar við lóðarverð í Úlf- arsárdal (úthverfi Reykjavíkur). Vegna þessara lóðahækkana mun áætlað verð fjöl- býlishúsa hækka um 4,2% við næstu útgáfu þessara talna og ein- býlishúsa um 7,6%. Lóðakostnaður fjöl- býlishúsa er með þessu orðinn 16,3% af byggingarkostnaði og lóðakostnaður einbýlishúsa orð- inn 22,9% af byggingarkostnaði. Lóðarverðið hækkar enn langt umfram annað Eftir Sigurð Ingólfsson Sigurður Ingólfsson » Vegna þessara lóða- hækkana mun áætl- að verð fjölbýlishúsa hækka um 4,2% og ein- býlishúsa um 7,6%. Höfundur er framkvæmdastjóri Hannars ehf. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.