Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Á Landspítalanum
gisti ég í viku fyrir 15
árum og fór strax að
bera verkferla spítal-
ans saman við flæði í
verksmiðjum. Það var
ekki sanngjarnt. Spít-
alinn er gamall og stöð-
ugt verið klastrað við
hann viðbyggingum og
nýjum húsum vítt og
breitt á lóðinni.
Plágur hafa herjað á hann og
miklu eytt í viðgerðir rakaskemmda
og eyðingu myglu. Kristaltært er að
spítali við Hringbraut verður aldrei
sambærilegur við nýjan spítala.
Spítala átti að byggja fyrir hagnað
af sölu Símans. Deilt var, hvort ætti
að byggja við Hringbraut, í Fossvogi
eða á Vífilsstöðum. Illskiljanlegt er
að nokkrum skyldi detta í hug að
halda áfram að klastra við Hring-
brautina, þegar kostur gafst á bygg-
ingu nýs spítala frá grunni. Enn
óskiljanlegra, að „Samtökin Spítal-
inn okkar“ skuli alla tíð hafa lagst
gegn faglegri staðarvalsgreiningu.
Sagt var að í Fossvogi væri ekki
nægilegt pláss. Eftir samanburð á
lóðum komst ég að þeirri niðurstöðu
að í Fossvogi væri meira pláss en við
Hringbraut. Í fávisku minni hélt ég
nóg að sanna að þar væri nóg pláss
fyrir betri spítala og skrifaði fjölda
blaðagreina á sjö ára tímabili.
Hver heilbrigðisráðherrann á eftir
öðrum fékk Hringbrautina í arf.
Enginn þeirra þorði að axla ábyrgð,
þrátt fyrir gjörbreyttar forsendur
fyrir spítala við Hringbraut.
Greinarnar enduðu oft með beiðni
um faglega úttekt og ein seinasta
greinin endaði á: Arkitektafélaginu
og Verkfræðingafélagi Íslands væri
til ævarandi skammar að láta þessa
lausn við Hringbrautina ganga yfir
án þess að kryfja til mergjar á fag-
legan hátt samanburð við Fossvog.
Á fundi um spítalann á Grand
Hótel sagðist Katrín Ólafsdóttir
setja spurningamerki við Hring-
brautina. Gunnar Svavarsson svar-
aði fyrirspurn frá mér á þá leið, að
búið væri að taka ákvörðun um
Hringbraut og því yrði ekki breytt.
Seinna skildi ég að
ákvörðun Gunnars yrði
ekki haggað. Sama
hversu sterk rök mæltu
gegn spítala á Hring-
braut.
Kostir Hringbrautar
voru taldir nálægð við
flugvöllinn, BSÍ og Há-
skólann. Nú vilja sömu
aðilar flugvöllinn burt
og ræða lítið um BSÍ.
Bygging spítala í Foss-
vogi opnar fyrir flutn-
ing Læknadeildar HÍ í
Landspítalannum. Skyldar greinar
og stúdentagarðar gætu fylgt með,
en raungreinar áfram á Melunum.
Þannig myndast samfellt háskóla-
þorp.
Nýting eldri bygginga við Hring-
braut er óhagstæð, því það er svo
mikið dýrara að gera upp gamalt
húsnæði en byggja nýtt. Við það
bætist óhagræði af mörgum húsum á
of þröngu svæði.
Byggingartími á nýju húsi í hæð-
ina er mikið skemmri, en áframhald-
andi bútasamur við Hringbraut. Við
það er minni vaxtakostnaður á bygg-
ingartímanum, sem gerir lægri
rekstrarkostnað spítalans um alla
framtíð.
Fyrrverandi forstjóri Landspít-
alans gerði staðarvalskönnun fyrir
Hringbraut, Vífilsstaði og Ártúns-
höfða, en sleppti Fossvogi og Graf-
arholti, sem ekki var í umræðunni.
Niðurstaðan var að Hringbraut væri
best. Birt voru rök því til staðfest-
ingar, en svo skemmtilega vildi til að
flest öll rökin voru Fossvogi meira í
hag en Hringbraut og sönnuðu þar
með að Fossvogur væri bestur fyrir
nýjan spítala.
Í byrjun árs sagði nýr landlæknir
eitthvað á þá leið, að best væri að
byggja nýjan spítala á öðrum stað en
við Hringbraut, en því miður væri
ekki tími til þess. Það yrði að halda
áfram við Hringbrautina og leita
jafnframt að stað fyrir byggingu nýs
spítala seinna. Þessi orð staðfesta að
„nýr“ spítali við Hringbraut er of lít-
ill og fljótlega verður að byggja aftur
nýjan spítala.
Eftir opinn fund hjá „Lands-
samtökunum Spítalinn okkar“ tel ég
víst, að allur aðbúnaður sjúklinga
yrði betri í Fossvogi. Við Hringbraut
eru hús klesst hvert ofan í öðru. Til
að fyrirbyggja að sjúklingar fái inni-
lokunarkennd og leggist í þunglyndi
af að horfa næsta vegg eða þak er
grænt ljósatrikk, sem á að gefa þá
tilfinningu að horft sé yfir grænar
grundir. Í Fossvogi geta sjúklingar
notið útsýnis yfir Fossvog með
Reykjanesskagann í bakgrunn. Þeir
sem braggast á hótelinu geta farið í
gönguferðir um Fossvogsdalinn.
Á fundinum var kynnt rörakerfi
fyrir sendingu gagna í hólki á milli
hæða og bygginga. Ég hélt að int-
ernetið hefði tekið yfir flöskupóst-
sendingar?
Í lokin var kynnt sú framsýni að
einstakir hlutar bygginga eru þann-
ig tengdir, að auðvelt er að brjóta þá
niður og endurbyggja.
Borgarspítala mætti breyta í
hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þeir
sem liggja á göngum Borgarspítal-
ans flyttu einfaldlega inn í herbergin
þegar nýi spítalinn væri tekinn í
notkun. Það er ekki flóknara en það.
Borgarspítalinn er jafnmikið mið-
svæðis og Lækjartorg var áður.
Skiptistöð fyrir almenningsvagna
væri vel staðsett þar.
Grafarvogur hefur það fram yfir
Fossvog að létta á umferð á Reykja-
nesbraut og Miklubraut. Fossvogur
hefur aftur á móti frárennsli, vatn og
rafmagn Þannig að þar væri hægt að
byrja strax. Byggingartími er helm-
ingi styttri en við Hringbraut og í
Grafarholti.
Ennþá er umferð greiðari að spít-
ala í Fossvogi en að spítala við
Hringbraut. Skynsamlegast væri að
byggja spítalann í Fossvogi og und-
irbúa byggingu í Grafarholti eftir 50-
70 ár.
Nýr spítali – litið til baka
Eftir Sigurð
Oddsson » Borgarspítala mætti
breyta í hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða.
Þeir sem liggja á göng-
um Borgarspítalans
flyttu einfaldlega inn í
herbergin...
Sigurður Oddsson
Höfundur er byggingaverkfræðingur.
Mosfellsbær hefur
byggst upp hratt í
gegnum tíðina. Bæn-
um hefur láðst að
gæta að fötluðum
þegar kemur að sér-
býlum fyrir fatlaða
einstaklinga undir 65
ára aldri. Gæðamæl-
ingum á þjónustu er
ábótavant og oft ekki
gert meira en lög
leyfa. Það nægir
ekki. Það þarf að gera betur.
Aðgengi fyrir
fatlaða í Mosfellsbæ
Á aðalfundi Öryrkjabandalags
Íslands, sem haldinn var 20.-21.
október 2017, var ályktað að
þrátt fyrir ákvæði í lögum um
mannvirki og í bygginga-
reglugerð um aðgengi fatlaðra
væri ekki til staðar virkt eftirliti
sem gætti að því að lögunum
væri fylgt eftir. Þar var m.a. vís-
að í að samningur Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks hefði verið fullgiltur fyrir
margt löngu.
Árið 2010 ritaði Reynir Smári
Atlason, þá BA-nemi við iðnhönn-
un við Curtin University of
Technology í Ástralíu, skýrslu
um aðgengi fatlaðra í Mos-
fellsbæ. Einhverjar úrbætur voru
gerðar en átta árum síðar hefur
ekki fjölmargt verið framkvæmt
það sem hann lagði til og ekkert
eftirlit með því né eftirfylgni.
Fegrunaraðgerðir nægja ekki
heldur þarf stöðugt eftirlit og
sett ströng skilyrði um að fylgt
sé eftir þeim lögum og reglum
sem í gildi eru hverju sinni.
Benda má á brunavarnaeftirlit,
sbr. það sem fram kom í fram-
angreindri ályktun af aðalfundi
Öryrkjabandalagsins á síðasta
aðalfundi þess.
Meirihlutinn í Mos-
fellsbæ hefur sofið á
vaktinni fyrir fatlaða
einstaklinga of lengi
og setið aðgerðarlaus
hvað þetta varðar.
Notendastýrð
persónuleg aðstoð
Það er hverjum
einstaklingi mikil-
vægt að finna til eig-
in sjálfstæðis í
ákvörðunum og eigin
lífi í stað þess að láta einhvern
hafa vit fyrir sér og sínum mál-
um.
Með því fyrirkomulagi sem
felst í NPA eru notanda þjónustu
fengnir fjármunir og velur hann
sjálfur aðstoðarfólk sitt, sér um
verkstjórn varðandi aðstoð sem
hann þarf á að halda og ákveður
sjálfur hvað hann vill gera og
hvernig aðstoðarfólk nýtist
hverju sinni.
Nýlega hefur NPA verið fært í
lög en áður aðeins verið nokkurs
konar tilraunaverkefni. Miðflokk-
urinn mun leitast við að taka upp
þá samninga í Mosfellsbæ sem
fyrir eru og meta þá m.t.t. nýrra
laga og þeirra reglugerða sem
eru í smíðum, en ný lög taka
gildi 1. október næstkomandi.
Við viljum bæta við gæðastýr-
ingu á alla þjónustu við fatlaða
þar sem gæðaviðmið verða mótuð
með Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalagi Íslands.
Sérstök deild fyrir ein-
staklinga undir 65 ára aldri
Í dag er mikilvægt að allir sem
eru undir 65 ára aldri, þ.e. ungir
fatlaðir einstaklingar, fái þjón-
ustu sem tryggir þeim bæði auk-
ið sjálfstæði og rými þar sem
þeir finna sig á þeim aldri sem
þeir eru. Þetta snýr m.a. að mat-
arvenjum og því að ungir vilja
umgangast unga einstaklinga en
ekki endilega vera í sambýli með
góðu fólki á efri árum.
Matarvenjur eru aðrar og
áhugamál eru önnur og til að
svara þessu er mikilvægt að nýr
hjúkrunarheimilakjarni rísi neð-
an við Eirhamra, þ.e. við Boga-
tanga, eins fljótt og nokkur kost-
ur er auk þess sem tryggð yrði
sérstök deild fyrir yngri fatlaða
einstaklinga.
Eftir máttleysi meirihlutans í
Mosfellsbæ varðandi það að
halda heilsugæslunni hér opinni á
kvöldin og um helgar óttast mað-
ur að hann geti ekki beitt sér við
að ná fram úrbótum fyrir fatlaða
á næstu árum enda snýr lausnin
að ráðuneyti velferðarmála rétt
eins og heilsugæslan.
Miðflokkurinn í Mosfellsbæ er
þekktur fyrir að taka á svona
málum af festu og afgreiða þau.
Það tekur á og það kostar eft-
irfylgni innan hins opinbera.
Þingmenn Miðflokksins sem og
við sem bjóðum okkur fram hér í
Mosfellsbæ munum bæta hag
fatlaðra. Málefni fatlaðra eru for-
gangsmál.
Fatlaðir einstak-
lingar í Mosfellsbæ
eiga betra skilið
Eftir Svein Óskar
Sigurðsson
Sveinn Óskar
Sigurðsson
»Meirihlutinn í Mos-
fellsbæ hefur sofið á
vaktinni fyrir fatlaða
einstaklinga of lengi og
setið aðgerðarlaus hvað
þetta varðar.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í
Mosfellsbæ.
www.facebook.com/
MidflokkurinnMoso
Kýstu Dag sem tók af-
stöðu gegn ótvíræðum
þjóðarhag í Icesave-máli
og snuðar Reykvíkinga
um milljarða framlag
ríkisins til mislægra
gatnamóta?
Dagur B.: „Mér finnst
algert ábyrgðarleysi af
stjórnarandstöðunni að
þvælast fyrir Icesave-
málinu“! Margt skrifaði
hann í sama dúr, hamrandi á greiðslu-
skyldu! (afhjúpað hér: thjod-
arheidur.blog.is).
Sami Dagur beitti sér ekki aðeins
gegn lagarétti okkar í Icesave-máli,
heldur og gegn borgarbúum með því
að svipta þá mislægum gatnamótum
sem brýn þörf var á (ríkið borgar 80%
kostnaðar stofnbrauta). Afleiðing:
langar biðraðir á álagstímum í stað
greiðrar umferðar! Til að gera illt
verra var sett hraðahindrun og göngu-
ljós á Miklubraut við Klambratún. Þá
beita vinstrimenn sér fyrir galinni
þrengingu gatna . Allt þetta hægir á
umferð og eykur útblástur að sama
skapi; bíll í hægagangi mengar mest.
Samtök iðnaðarins lögðu mat á
tímasóun í umferð, fundu út að ferða-
tími á álagstíma úr Grafarvogi til mið-
borgar jókst á sex árum um 40%. Tap-
aðar vinnustundir nema 5,5 milljón
klst. á ári. Reiknast þeim til að tímasó-
un vegfarenda jafngildi 2% af heildar-
vinnutíma.
Með setu í ófaglegri
Rögnunefnd vann Dag-
ur að því að rústa NA/
SV-flugbraut Reykja-
víkurflugvallar. Stefna
hans er að losna við völl-
inn. Flugvöllur á lakari
stað, Hvassahrauni,
myndi kosta 350 millj-
örðum meira ef hann
yrði alþjóðaflugvöllur.
Vinstrimenn juku á
fjórum árum skuldir
borgarinnar um milljarð
á mánuði, alls 50 ma.
kr.! Samt minnkuðu þrif garða og
túna, sorphirða, götuviðgerðir, sópun
gatna o.fl.
Dagur ber sér á brjóst, vill setja
Miklubraut „strax“ í stokk, með 21
milljarðs kostnaði, auk Borgarlínu (70
ma.)! Fé vantar í verkin; borgin er
næstskuldugasta sveitarfélag á hvert
nef. Ríkið og Vegagerðin draga ekki
Dag að landi næstu ár, það er staðfest.
Bjarni Jónsson verkfræðingur segir
Borgarlínu úrelta skipulagshugmynd
sem baki vandræði. Borgarbúar eru
ekki ginnkeyptir fyrir ógnar-lántöku,
ef borgin telst þá lánshæf, og heldur
ekki að axla tveggja milljóna gjald á
hverja fjölskyldu vegna verksins.
Með játningu Helgu Völu Helga-
dóttir í pistli í Morgunblaðinu 11/5
kom í ljós að vanræksla Samfylkingar í
samgöngumálum byggist á andstöðu
þeirra gegn „einkabílnum“. HVH seg-
ir að ekki eigi að byggja mislæg gatna-
mót, göngubrýr eða græn (bylgju)
umferðarljós svo að bílar komist hrað-
ar á milli, heldur verði að fækka
einkabílum. Þetta er þeirra stefna,
sem þau hafa framfylgt; það skýrir
margt.
Það tók Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóra Bílgreinasambandsins,
dagstund að benda Helgu á að losun
fólksbíla af gróðurhúsalofttegundum
er ekki nema 4% af heildinni. „Hvernig
er þá hægt að fá það út eins og Helga
Vala heldur fram að einkabíllinn sé
stærsti sökudólgurinn?“ Hún stendur
uppi eins berstrípuð og keisarinn í æv-
intýri sínu! Það sem verra er: Á þess-
um bábiljum grundvölluðu Dagsmenn
sinn antibílisma og samgöngustefnu,
öll vanrækslan þar var viljaverk hinna
villuráfandi!
En hvernig áttu þau að vera til leið-
sagnar í borginni þegar þau réðu ekki
einu sinni við að prenta leiðabók stræt-
isvagna?
Um húsnæðisvanda Dagsmanna að-
eins eitt nú: Skortstefna í framboði
lóða og hækkun lóðagjalda um 508%
meira en byggingarvísitala á sama
tíma (Viðskbl. 1.10. 2015) innleiddi ok-
urstefnu, húsnæðisverðbólu og erf-
iðleika við að eignast og leigja íbúð.
Vandamál bundið við Reykjavík!
Fúsari eru vinstri valdamenn að
hópa hingað hælisleitendum og flótta-
fólki og úthluta því félagslegri borg-
aríbúð en að sinna eigin fólki sem skylt
er þó í neyð. Það fær sízt úrlausn, vík-
ur jafnvel úr húsi fyrir útlendingi.
Ekki hrósar Þjóðfylkingin hraklegri
meðferð Dagsmanna á Hjálpræð-
ishernum sem veitti mörgum skjól (og
nýttur bæði af lögreglu og félagsmála-
yfirvöldum). Samhjálp hvítasunnu-
manna rak athvarf útigangsmanna;
Dagsmenn töldu sig geta það á hag-
kvæmari hátt; það þveröfuga kom í
ljós og kostaði borgarbúa tugi millj-
óna!
Vinstrimenn í borgarstjórn amast
við kristni og Nýja testamentinu í skól-
um. Hitt kjósa þau að gefa músl-
imahópi fría lóð á glæsistað við Suður-
landsbraut og Miklubraut og leyfi til
mosku sem yrði svo dýr að lítill söfn-
uður hefur ekki bolmagn að reisa hús-
ið. Viðbúið er, ef lingeðja borgarstjórn
á í hlut, að tilboði Sádi-Araba um
hundraða milljóna styrk verði tekið.
Því mun fylgja kredduföst boðun
ímama þaðan, sjaríalög og harðlínutrú
á þeim vettvangi.
Nú þarf borgarfulltrúa með bein í
nefi, andvíga íslamsvæðingu, sem
byrjar rólega, en færir sig upp á
skaftið; það sýnir sig víða. Sá eini
flokkur sem einarður er í þessum
málum og á kost á kjöri borgarfull-
trúa er Íslenska þjóðfylkingin. Með
atkvæði til ÍÞ styðja menn líka þá
sem vinstriflokkar vanvirtu í sam-
göngu- og húsnæðismálum. Við skul-
um markvisst ná niður íbúðaverði
(sjá x-e.is og thjodfylking.blog.is),
liðsinna ungu fólki, gefa því frítt í
strætó, hjálpa til að það geti með
sparnaði eignazt þak yfir höfuðið!
Þetta er tími breytinga!
Þetta er tími breytinga
Eftir Jón Val
Jensson »Nú þarf borgarfull-
trúa með bein í nefi,
engar liðleskjur!
Jón Valur Jensson
Höfundur skipar 4. sæti á lista
Íslensku þjóðfylkingarinnar í
borgarstjórnarkosningunum.
jvjensson@gmail.com