Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 ✝ Sindri Einars-son fæddist í Reykjavík 30. mars 1968. Hann lést á heimili sínu 12. maí 2018. Sindri bjó í Dan- mörku til 10 ára aldurs. Hann varð stúdent frá Fjöl- brautaskólanum við Ármúla og stundaði nám í lög- fræði um tíma. Hann var mikið í félagsstörfum og starfaði meðal annars innan Sjálfstæðisflokks- ins. Sindri var sonur Einars Sindrasonar, f. 24. mars 1942, og Kristínar Árnadóttur, f. 11. októ- ber 1945. Hann var elstur þriggja systkina, næstur er Árni Páll, f. 27. júlí 1972, kvæntur Yuki Su- gihara, f. 5. janúar 1976, og eiga þau saman Einar Har- uka, f. 2005, og Est- er Miu, f. 2009. Yngst systkinanna er Ingigerður, f. 8. september 1977, gift Sigtryggi Símonarsyni, f. 11. október 1975, og saman eiga þau Kristínu Ástu, f. 2009, Mikael, d. 2011, og Kolfinnu Líf, f. 2016. Sindri var ógiftur og barn- laus. Útför hans fór fram í kyrrþey að hans ósk. Elsku Sindri, Það er víst komið að hinstu kveðjustund, allt of snemma. Með ást, hlýju og söknuð í hjarta þá kveð ég þig og óska svo innilega að þú sért loksins kominn á góðan stað. Líf þitt var raunaganga þar sem þú hafðir lítið af góðum verkfærum til að takast á við lífsins gangverk. Lífið var þér í raun óréttlátt og það var erfitt fyrir þig að fóta þig þrátt fyrir gott hjarta, góða greind og fal- legt bros. Ég óska þess að þú sért kom- inn á stað þar sem þú hefur fengið betri spil og ylur sólar- innar vermir þig. Þú verður að eilífu í hjörtum okkar stóri bróðir. Eins og George Eliot sagði, þá er í raun enginn dáinn fyrr en hann gleymist. Þinn litli bróðir, Árni. Sindri systursonur minn er látinn einungis fimmtugur að aldri. Ekkert foreldri ætti að þurfa að horfa á eftir börnum sínum í gröfina eins og systir mín og mágur gera nú. Sindri var alskemmtilegasti krakki sem ég man eftir, brosandi, fal- legur, kátur og óvenju skýr eft- ir aldri. Opinn og óhræddur, talaði við hvern sem var og hvar sem var. Og uppátektasamur. Kringluleitur, skælbrosandi í stuttbuxum og tréklossum, þannig man ég hann í Dan- mörku. Hann var aðeins þrjá mánuði að ná dönskunni svo vel að Danir trúðu ekki að hann væri útlendingur. Og þegar mamma hans reyndi að gera sig skiljanlega á sinni vellærðu bókardönsku og skildist ekki kom þessi litli kubbur skæl- brosandi einungis þriggja ára og sagði: „Undskyld, men min mor siger …“ og þá skildu allir. Já, hann var óvenju næmt barn og eldfljótur að læra og eftir- tektarsamur. En það sem okkur hinum fullorðnu þótti prýða hann mest sem barn átti eftir að reynast honum akkilesar- hæll í lífinu. Hömluleysi og hvatvísi reyndust honum oft þrautin þyngri og sú óvenjulega námsfærni sem hann bjó yfir nýttist honum illa. Hann kom víða við í námi og starfi á lífs- leiðinni og mælska hans og rök- festa fleyttu honum oft langt. Hann átti sér þó ætíð þann eina draum að verða lögfræðingur og stjórnmálamaður, en hlaut marga dýfu í þeim sjó. Ómældur stuðningur sem hann hlaut frá foreldrum sínum gegnum árin hjálpaði honum oft að finna sig aftur eftir slíka skelli. Raunbetri foreldra hefði hann ekki getað átt. Sindri var einkar góður og hjartahlýr drengur, það sýndi best samband hans við ömmu sína, ömmu Siggu, sem var ein- staklega fallegt. Nú sér hún, háöldruð, á eftir augasteininum sínum. Við Sindri áttum oft löng símtöl. Hann hafði gaman af að spjalla og var óhemju mál- greindur. Hann var m.a. mikill áhugamaður um stjórnmál, en ekki fór nú sýn okkar á þjóð- málin alltaf saman og ekki tókst honum að sannfæra gömlu frænku sína. Þá hló hann góð- látlega og sagði: „En við getum þó verið sammála um eitt og það er að vera ósammála“ og svo breyttum við um umræðu- efni. Hann hafði líka mikinn áhuga á andlegum málum og þar gátum við verið sammála um margt. Stuttu fyrir afmælið sitt í vor fékk Sindri hjartastopp en hægt var að koma honum aftur til lífs. Hann var ósáttur við það, sagðist hafa fundið fyrir ólýsanlegum friði og vellíðan og ekki langað til baka til lífsins. Næsta hjartastopp flutti hann alla leið til Sumarlandsins. Ég minnist fimmtugsafmælis hans með hlýju. Hann var svo glaður, fínn og fallegur og við áttum einstaklega opið og ein- lægt samtal um dauðann og lífið eftir dauðann og hans staðföstu trú á að eftir lífið hér á jörðu biði betra líf með hamingju og gleði. Það er huggun þeirra sem eftir standa með sorg í hjarta. Farðu í friði inn í Sumarland- ið, elsku Sindri minn, og skilaðu kveðju til fólksins okkar. Foreldrum, systkinum og fjölskyldum þeirra flyt ég mína dýpstu samúð. Hólmfríður Árnadóttir. Ein af uppljómunum mínum úr æsku var þegar ég áttaði mig á því að systkinabörn mættu giftast. Ég vissi nefnilega þá – reyndar aðeins nokkurra ára gömul – að ég ætlaði að giftast fallega frænda mínum með brúnu augun, sem bjó í útlönd- um. Sindri var einstaklega fal- legt barn og það var einhver ævintýraljómi yfir því að hitta hann á Básendanum hjá afa og ömmu. Í minningunni áttum við þar dásemdartíma, umvafin væntumþykju, hlýju og já- kvæðni í öruggri og traustri umsjón. Ég hlakkaði alltaf til að hitta Sindra þar. Eftir því sem tíminn leið breyttust samveru- stundirnar, en alltaf hugsaði ég til frænda míns með væntum- þykju. Ég minnist skíðaferðar þegar við vorum á fermingar- aldri, þar sem íslensku ungling- arnir héldu þétt hópinn. Ég minnist þess þegar við hófum nám í sama skóla á mennta- skólaaldri, en þá fyrst skynjaði ég að lífið myndi hugsanlega ekki reynast honum Sindra auðvelt. Sem og reyndist rétt. Síðustu árin voru Sindra erfið og lífsganga hans þyrnum stráð. Hann hafði marga góða kosti, sem hann átti ekki auðvelt með að nýta sér við daglegt amstur. Hann batt sína bagga ekki sömu hnútum og aðrir. Ég hitti hann nokkrum vikum fyrir and- lát hans þar sem við ræddum að það væri í raun frábært að verða fimmtugur og fá að eld- ast. Hann undi sér vel með Loð- mundi sínum. Þrátt fyrir að andlát Sindra beri óvænt að hafði ég alltaf á tilfinningunni að hann yrði ekki gamall maður. Fjölskylda Sindra sér á eftir góðum dreng og kveður með trega en þakk- læti fyrir góðu stundirnar, sem standa upp úr í minningunni. Til eru fræ, sem fengu þennan dóm: Að falla í jörð, en verða aldrei blóm. Eins eru skip, sem aldrei landi ná, og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá, og von sem hefur vængi sína misst, og varir, sem að aldrei geta kysst, og elskendur, sem aldrei geta mæst og aldrei geta sumir draumar ræst. Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn, og lítil börn, sem aldrei verða menn. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Ég votta aðstandendum Sindra samúð mína á sorgar- stundu. Kristín Heimisdóttir. Það má nánast segja að við Sindri höfum alist upp saman. Mikill samgangur var alla tíð milli fjölskyldna okkar, en feð- ur okkar voru vinir úr lækna- deild og mæður okkar vinkonur úr hjúkrunarskólanum. Við vor- um samferða sem ungir strákar fyrst heima á Íslandi og svo í Danmörku þar sem foreldrar okkar voru við sérnám og störf. Sindri bjó þá á Barthsgade í Árósum og þar lékum við okkur oft úti í garði og fórum stundum niður að höfn að dorga. Núna um 40 árum síðar bý ég í sama húsi á Barthsgade og það hefur vakið sterkar minningar undan- farið. Eftir að Sindri flutti með fjölskyldu sinni til Álaborgar héldum við góðu sambandi og minnist ég þegar Sindri kom í heimsókn til okkar í Árósum og kom með mér í Íslendingaskól- ann sem var haldinn þar á laug- ardögum. Eitt sinn átti ég von á Sindra í afmælið mitt, en hann hafði verið lagður inn með botn- langakast og tvísýnt að hann kæmist í afmælið. Á síðustu stundu kom hann, einn með lestinni frá Álaborg, og urðu þar fagnaðarfundir. Reyndar heimsótti Sindri mig síðar á fullorðinsaldri fyrir tæpum tveimur áratugum þegar hann var við nám í lýðháskóla í Dan- mörku og ég við nám og störf í Árósum og varð heimagangur hjá mér á Barthsgade og það kom fyrir að við kíktum saman á öldurhús borgarinnar. Við rifjuðum Danmerkurárin upp fyrir ekki meira en tveimur vik- um, þegar við spjölluðum sam- an í síma, og vorum sammála um að árin þar sem ungir strák- ar hefðu verið bestu árin í lífi okkar beggja. Eftir heimkomuna til Íslands hélt vinátta okkar áfram og það voru tíðar heimsóknir til Sindra og fjölskyldu á Skjólbrautina í Kópavogi og síðar Stigahlíð og alltaf var maður velkominn hjá Kristínu og Einari, foreldrum Sindra, og var iðulega heitt kakó á könnunni. Við gáfum á táningsaldri út barnablaðið Rækjuna, en ég var ritstjóri og ábyrgðarmaður og Sindri blaðamaður og auglýs- ingastjóri og lét hann ekki sitt eftir liggja. Hann útvegaði blaðinu bæði einlægt viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Íslands, og nokkrar heilsíðu- auglýsingar fyrirtækja. Mér er minnisstæð skemmtileg ferð okkar með Sindra afa og Sigríði ömmu hans, þeim heiðurshjón- um, á bindindismót í Galtalækj- arskógi snemma á níunda ára- tugnum, en Sindri vann þar sem gæslumaður og var ötull í viðleitni sinni við að halda bind- indismótinu áfengislausu. Þó að leiðir lægju sjaldnar saman hin síðari ár var Sindri alltaf traustur vinur. Sindri var mælskur og fylginn sér og lá ekki á skoðunum sínum, var um tíma ræðumaður í JC-hreyfing- unni þar sem hann m.a. vann til verðlauna. Móðir mín Ásta, sem einnig lést um aldur fram, og Sindri voru náin og var andlát hennar líka mikill missir fyrir Sindra og skrifaði hann fallega minningargrein um hana. Ég heimsótti Sindra ekki alls fyrir löngu í Stóragerðið og lá þá allvel á honum þrátt fyrir undangengna erfiðleika. Hann hafði komið sér vel fyrir og við drukkum kaffi og áttum gott spjall saman. Ég og dætur mínar sendum foreldrum Sindra, systkinum og allri fjölskyldunni innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sindra. Arnar Ástráðsson. Sindri Einarsson Það er afar sárt að sjá á eftir góðum vini sem við mátum mik- ils og nutum þess að eiga sem félaga og sérstakan vin, en það var Ólafur Ásbjörn Jónsson. Óli var alveg ein- stakt góðmenni og við komum til með að sakna hnyttinna innskota hans í umræðurnar og lúmska húmorsins sem aldrei var langt undan. Við kynntumst Óla er við flutt- um í Baugholtið, en þau hjón voru frumbyggjar í hverfinu okkar. Það var ávallt gott að leita til þeirra er við þörfnuðumst einhverrar að- stoðar eins og barnapössunar á okkar fyrstu árum í Baugholtinu . Dætur okkar elskuðu að koma á heimili Óla því hann var mjög mikil barnagæla og hændust þær að honum og ávallt hefur verið sér- stakt samband og kærleikur á milli þeirra. Þegar barnabörnin hans komust á legg sást það enn og aftur hvað hann var mikil barnagæla og mikill afi og það var auðséð hvað hann elskaði þau mikið. Óli var okkur ávallt mjög greið- vikinn og var boðinn og búinn að hjálpa þegar á þurfti að halda. Hann var nágranni og vinur eins og þeir gerast bestir og taldi aldrei eftir sér að aðstoða okkur. Þegar dætur okkar fermdust var Óli óstöðvandi í að hjálpa okkur og svo var Óli frábær í að skreyta kransa- kökurnar. Við hjónin ásamt Óla höfðum gaman af því að spila golf og nutum þess að vera með honum bæði hér heima og erlendis. Við dvöldum með þeim hjónum í húsinu þeirra í Ventura og áttum þar frábæran Ólafur Ásbjörn Jónsson ✝ Ólafur ÁsbjörnJónsson fædd- ist 4. janúar 1937. Hann lést 9. maí 2018. Útför Ólafs fór fram 22. maí 2018. tíma í góðra vina hópi, við leik, golf og búðaráp og að finna frábæra veitinga- staði til þess að njóta, enda var Óli mikill sælkeri, er kom að góðum mat. Það verður ávallt dýrmæt minning sem við hjónin eig- um, er við heimsótt- um Óla inn á Land- spítala fáeinum dögum áður en hann yfirgaf okkur. Hann virtist svo hress og brosti alveg hringinn er við komum inn og okkur fannst sem það hlyti að vera einhver vit- leysa að Óli væri alvarlega veikur. Við töluðum um stund saman, en þá var hann tekinn fram úr rúminu og látinn labba um. Það fór góður tími í þessar æfingar og Óli virtist mjög ánægður. Ekki datt okkur annað í hug en að við ættum eftir að sjá Óla fljótlega aftur, en það var ekki rétt ályktun hjá okkur. Við kvöddum Óla, sem var að okkar mati á góðum batavegi, en svona er lífið. Hann gekk hér um að góðra drengja sið, gladdi mædda, veitti þreyttum lið. Þeir fundu best sem voru á vegi hans vinarþel hins drenglundaða manns. Þó ævikjörin yrðu máski tvenn, hann átti sættir jafnt við Guð og menn. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku Emma Hanna, Einar, Ólafía, Nonni og fjölskyldur. Við viljum votta ykkur okkar einlægu samúð. Við vitum að söknuðurinn er mikill og megi góður Guð vera með ykkur í gegnum þetta erfiða sorgarferli. Guðlaug (Gullý), Ómar og dætur.  Fleiri minningargreinar um Ólaf Ásbjörn Jóns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR frá Árbakka, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 8. maí. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 28. maí klukkan 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Eirar, eir.is. Þór Kröyer Martína Sigursteinsdóttir Benedikt Kröyer Kristín Sölvadóttir Þorsteinn Kröyer Ólafía Halldórsdóttir Iðunn Kröyer Eymundur Hannesson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RANNVEIGAR RAGNARSDÓTTUR, Tjarnarlundi 13c, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR hjúkrunarfræðings. Guðný Sif Jónsdóttir Halldór Eyþórsson Tómas Árni Jónsson María Jónsdóttir Helga Aðalheiður Jónsdóttir Guðmundur Vilhjálmsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU MAGGÝJAR HARTMANNSDÓTTUR, Álftamýri 36, Reykjavík. Gunnhildur Gunnlaugsdóttir Bryndís Gunnlaugsdóttir Svanur Kárason Harpa María Gunnlaugsdóttir ömmubörn og langömmubörn Elskulegur mágur minn og föðurbróðir okkar, SIGURÐUR BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON, Eyravegi 5, Selfossi, sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði 19. maí, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju miðvikudaginn 30. maí klukkan 13.30. Friðsemd Eiríksdóttir Þórður Þórkelsson Sigurvin Þórkelsson Sveinbjörn Þórkelsson Eiríkur Þórkelsson Kristrún Þórkelsdóttir Helga Þórkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.