Morgunblaðið - 26.05.2018, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
Þetta er búið aðvera ofboðslegaskemmtilegt,
við erum að reyna að
efla iðn-, raun- og
tæknimenntun, til
dæmis að efla forrit-
unaráhuga í grunn-
skólum landsins,“ seg-
ir Jóhanna Vigdís
Arnardóttir um nýju
vinnuna sína, en hún á
50 ára afmæli í dag.
Jóhanna Vigdís hefur
verið ein af ástælustu
leikkonum þjóðarinnar
en ákvað að breyta til og er núna verkefnastjóri í mennta-
verkefnum hjá Samtökum iðnaðarins.
„Þetta er mjög fjölbreytt vinna og hún snýst mikið um samskipti,
við erum að efla samstarf milli skóla og fyrirtækja um iðn- og
tæknimenntun og erum í samvinnu við ýmsa aðila, eins og mennta-
málaráðuneytið og Nýsköpunarmiðstöð og fleiri og fleiri. Í dag lýk-
ur t.d. nýsköpunarkeppni grunnskólanna, en við tókum þátt í því
verkefni. Það hafa verið fordómar gagnvart iðnmenntun en við
verðum að breyta því, þar er til dæmis nær ekkert atvinnuleysi og
oft hæstu launin.“
Jóhanna Vigdís er samt alls ekki hætt að koma fram. „Ég er búin
að gera hitt og þetta, ég hef verið veislustýra og sungið á tón-
leikum. Þegar maður er í 100% vinnu í leikhúsinu og tekur þátt í
vinsælum verkefnum þá hefur maður lítinn tíma fyrir annað. Það
er því líka búið að vera gaman að ráða sér sjálfur.“
Afmælisveislunni ætlar Jóhanna Vigdís að fresta um sinn. „Það
eru kosningar og svo erum við að flytja þannig að þetta er ekki
besti tíminn. En ég ætla samt að bjóða mínum nánustu kellingum í
smá „bubble“, eða kampavín. En við maðurinn minn ætlum að
halda sameiginlega afmælisveislu í sumar, en hann varð fimmtugur
fyrir tveimur árum. Við erum að spá í BDSM partí. Hann útskrif-
aðist sem MPM fyrir nokkru og ég sem MBA, en við náðum heldur
ekki að halda upp á það svo við ætlum að halda eitthvert bókstafa-
partí.“
Eiginmaður Jóhönnu Vigdísar er Þorsteinn Guðbjörnsson, húsa-
smíðameistari, viðskiptafræðingur og MPM. Börn þeirra eru Ólafur
Örn, f. 2006, og Þorsteinn Ari, f. 2007. Bónusbörnin, frá fyrra
hjónabandi Þorsteins, eru Vigdís Birna, f. 1996, nemi í hugbún-
aðarverkfræði, og Helgi Hrafn, f. 1998, menntskælingur í MH.
Verkefnastjórinn Jóhanna Vigdís.
Ætlar að efla iðn-
menntun í landinu
Jóhanna Vigdís Arnardóttir er fimmtug
Ó
lafur Tómasson fæddist
á Akureyri 26.5. 1928.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1948,
verkfræðiprófi frá
Edinborgarháskóla 1956 og sótti
auk þess ýmis framhaldsnámskeið í
fjarskiptatækni og stjórnun.
Ólafur var í sveit í fimm sumur
þegar hann var strákur á Akureyri
og vann m.a. í byggingarvinnu á
námsárunum. Hann var verkfræð-
ingur og deildarverkfræðingur hjá
Landssíma Íslands 1956-61, stund-
aði eigin rekstur 1961-63, yfirverk-
fræðingur hjá Pósti og síma 1963-
84, framkvæmdastjóri tæknideildar
1984-86 og póst- og símamálastjóri
1986-97 er stofnuninni var skipt í
Landssíma Íslands hf. og Íslands-
póst hf.
Hvað er nú efst í huga eftir ára-
tuga störf hjá Pósti og síma?
„Það er nú líklega starfsgleðin og
góður starfsandi hjá þessari mann-
mörgu stofnun með allar sínar
deildir. Þarna voru margir frábærir
starfskraftar, karlar og konur sem
Ólafur Tómasson, fyrrverandi póst- og símamálastjóri – 90 ára
Fjölskyldan Ólafur og Stefanía María með börnum. Þau eiga tíu barnabörn og eitt barnabarnabarn, Sóleyju Maríu.
Við góða heilsu og
skreppur enn í golf
Hjónin Það er blómlegt á veröndinni hjá Ólafi og Stefaníu Maríu.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Jónas Elíasson, prófessor
emeritus við verkfræði- og
náttúruvísindasvið Há-
skóla Íslands, er áttræður
í dag. Í tilefni dagsins taka
hann og Kristín Erna Guð-
mundsdóttir, kona hans,
á móti gestum á Sléttu-
vegi 31, veislusal á jarð-
hæð. Eru allir velkomnir
sem vilja samgleðjast
afmælisbarninu.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.