Læknablaðið - 01.03.2018, Page 32
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
148 LÆKNAblaðið 2018/104
Nýjar leiðbeiningar um greiningu og
meðferð sortumeina liggja nú fyrir
og eru það læknarnir Gunnar Bjarni
Ragnarsson krabbameinslæknir, Þórir S.
Njálsson lýtalæknir og Elísabet Reykdal
húðlæknir á Landspítala sem hafa unnið
þær í samstarfi við Embætti landlækn-
is og aðra sérfræðinga í húð-, lýta- og
krabbameinslækningum.
Í samtali við Læknablaðið segja höf-
undarnir að tilgangur leiðbeininganna sé
að samræma nálgun allra lækna að grein-
ingu, meðferð og eftirliti. „Þeim er ætlað
að vera læknum til leiðbeiningar um að
greina sortumein á réttan hátt strax í upp-
hafi og koma því síðan í farveg til með-
ferðar hjá sérfræðingum,“ segir Þórir.
Elísabet bætir því við að sortuæxli séu
að greinast hjá mörgum og mismunandi
læknum og að samræmt verklag sé mjög
mikilvægt.
„Þetta er sjúkdómur sem á að vera
hægt að lækna á frumstigi og það er mjög
mikilvægt að greina hann rétt í upphafi
og hafa skýrar leiðbeiningar um hvað eigi
að gera næst. Eitt af því mikilvægasta er
Nýjar leiðbeiningar um greiningu
og meðferð sortuæxla
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Einstaklingsmiðuð meðferð og traust, fagleg
þjónusta stuðla að góðum árangri dvalargesta
við endurhæfingu, forvarnir og aðlögun að
daglegu lífi eftir áföll, veikindi eða sjúkdóma.
Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er háð því skilyrði að læknir
sendi inn beiðni fyrir dvöl. Dvalartími er 3-6 vikur. Nánari upplýsingar
um læknisfræðilega endurhæfingu á heilsustofnun.is/endurhaefing
Læknisfræðileg
endurhæfing
Á Heilsustofnun bjóðast þér margvísleg tækifæri til að efla heilsu þína
í rólegu umhverfi í nálægð við náttúruna. Með einstaklingsmiðaðri
endurhæfingu, faglegri þjónustu, hreyfingu við hæfi, reglulegu og hollu
mataræði, góðum svefnvenjum og andlegu jafnvægi nærð þú árangri
að bættri heilsu.
• Langvinnir verkir og vefjagigt
• Gigtarsjúkdómar
• Offitu- og innkirtlasjúkdómar
• Hjartasjúkdómar
• Krabbamein
• Bæklunarsjúkdómar
• Taugasjúkdómar
• Geðsjúkdómar
• Streita og kulnun
• Öldrun
Læknisfræðileg endurhæfing á Heilsustofnun:
Grænumörk 10 - 810 Hveragerði
Sími 483 0300 - heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun NLFÍ