Morgunblaðið - 23.06.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
K L A P P A R S T Í G 4 4
Vinsælu mjúku mokkasínurnar
komnar aftur... stærðir 36–42.
Dökkblátt - Svart - Kakhi grænn
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jakob Frímann Magnússon, tónlist-
ar- og athafnamaður, mun veita nýju
þróunarfélagi forstöðu. Félagið
hyggst fjárfesta í afþreyingu, upplif-
unar- og ferðaþjónustu fyrir milljarða
króna á næstu árum.
„Eftir tíu stórskemmtileg ár á vett-
vangi miðborgarinnar, þar sem orðið
hafa ótrúlegar breytingar og flestar
til hins betra, hefur mér boðist nýtt
og spennandi hlutverk á nýjum vett-
vangi, sem ég gat ekki hafnað. Ég hef
því tilkynnt stjórn Miðborgarinnar
okkar og borgarstjóra að ég muni
skipta um vettvang í sumar,“ segir
Jakob Frímann sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri miðborgarmála og síð-
an Miðborgarinnar okkar frá 2008.
Áslaug Magnúsdóttir, athafnamað-
ur í New York, er stofnandi nýja þró-
unarfélagsins, ásamt bandaríska
arkitektinum John Brevard o.fl.
Stofnaði stórfyrirtæki
Áslaug starfaði um hríð sem fyrir-
sæta og rak síðan Icelandic Models
ásamt Hendrikku Waage. Hún lauk
meistaraprófi í lögfræði frá Duke-há-
skólanum og MBA-námi frá Harvard-
háskóla. Hún stofnaði fyrirtækið
Moda Operandi árið 2010 í félagi við
Lauren Santo Domingo. Það selur
meðal annars hátískuvarning á netinu
og er metið á um 70 milljarða króna.
„Áslaug er, að Ólafi Ragnari
Grímssyni frátöldum, sá Íslendingur
sem er að líkindum best tengdur á al-
þjóðavettvangi. Hún er gríðarlega
skipulögð, öguð og eldklár.
Við hjónin áttum þess nokkrum
sinnum kost að heimsækja Áslaugu í
New York. Það var lyginni líkast að
allir helstu forkólfar tískuheimsins
féllu að fótum hennar, líkt og drottn-
ing væri á ferð. Auðvitað hefur hún
mjög næmt auga og skynbragð. Og er
óvenjulegum hæfileikum gædd. Hún
er glögg á fólk sem hún velur til sam-
starfs og John Brevard er í hópi allra
fremstu núlifandi arkitekta og með
þeim frumlegustu. Það er mikil gæfa
fyrir okkar samfélag að fá svo flinka
framtíðarþenkjandi einstaklinga til
atfylgis við að byggja upp ný mann-
virki og nýja möguleika á Íslandi,“
segir Jakob Frímann.
Keyptu Össurárdal
Jakob Frímann segir aðspurður að
trúnaður gildi um suma áfanga fyrir-
hugaðrar uppbyggingar. Greint verði
frá þeim síðar. Hann staðfestir hins
vegar að þau Áslaug og Brevard hafi
keypt Össurárdal, rétt norðan við
Höfn í Hornafirði, árið 2016. Svæðið
sé milli Eystrahorns og Vestrahorns
þar sem Hrafna-Flóki nam Íslands-
strendur forðum. Svæðið er austur af
Jökulsárlóni.
„Hugmyndin er að byggja áður
óþekkta tegund af upplifunarmögu-
leikum á Íslandi. Í umhverfi sem er
guðdómlegt og í byggingarstíl sem
hefur ekki sést hér áður og með
möguleikum sem hafa til þessa ekki
staðið til boða á landsbyggðinni.
Fyrsti áfangi er nefndur Álfaland.
Þar á að skapa gríðarlega fallega og
framtíðarlega aðstöðu, heilsu- og
upplifunartengda. Allt miðast við að
göfga líkama og sál. Síðan tengjast
inn í þetta hugmyndir um hátækni-
samfélag. Þar eru með í spilinu helstu
forvígismenn bálkakeðjutækninnar,
eins lykilþátta fjórðu iðnbyltingarinn-
ar svonefndu. Þarna er horft til þekk-
ingar- og menntaseturs og framtíðar-
tónlistar,“ segir Jakob Frímann.
Hann upplýsir að fyrstu verkefnin
séu ráðgerð í Össurárdal en stefnt sé
á frekari uppbyggingu á öðrum stöð-
um á landsbyggðinni og á höfuðborg-
arsvæðinu.
Spurður um kostnað segir Jakob
Frímann áætlað að fyrsti áfangi muni
kosta tæpa fimm milljarða, þ.e.a.s.
Álfalandið og svæðið í kring.
Byrjaði sem hugljómun
Fjármunirnir komi frá innlendum
og erlendum fjárfestum.
Jakob Frímann segir hugmyndina
hafa kviknað 17. júní 2016.
„Þetta byrjaði með eins konar hug-
ljómun sem John Brevard fékk. Við
Áslaug vorum viðstödd. Hún átti sér
stað 17. júní 2016. Í kjölfarið var farið
á fullt. Þetta var svo sterk sýn og svo
nákvæm lýsing á því sem verða vildi
að í kjölfarið var hafist handa við að
raungera þessar hugmyndir. Við vor-
um bæði í einhvers konar ljósmóður-
hlutverki að leyfa þessari fæðingu að
eiga sér stað.“
Fimm milljarðar í 1. áfanga Álfalands
Þróunarfélag áformar uppbyggingu nærri Höfn Áslaug Magnúsdóttir er hvatamaður félagsins
Miðborgarstjóri kveður og verður í forystu í þróunarfélaginu Innlendir og erlendir fjárfestar á ferð
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Athafnamaður Jakob Frímann Magnússon hefur haft mörg járn í eldinum.
Þótt Ísland sé kannski ekki meðal
fyrstu staðanna sem koma til hugar
þegar hugsað er um köfun eða
snorklun (gljúfurköfun) er enginn
vafi á að landið verður æ vinsælla
meðal snorklara og kafara. Hér á
myndinni sjást snorklarar njóta
vatnsins í Silfru á Þingvöllum, sem
þykir einn besti köfunarstaður á Ís-
landi og þótt víðar væri leitað. Mik-
ið skyggni er í tæru vatninu í Silfru
og umhverfið stórbrotið jafnt undir
vatnsborðinu sem ofar. Þar má líta
ægifagrar hraunmyndanir í
sprungunni sem aðskilur jarð-
skorpu Ameríku og Evrópu. Vegna
staðsetningarinnar hjá flekaskil-
unum er Silfra líklega eini stað-
urinn í heiminum þar sem jafnvel
óreyndur sundmaður getur synt
milli tveggja heimsálfa.
Köfun á Þingvöllum æ vinsælli enda þykir Silfra einn besti köfunarstaðurinn
Snorklað
milli Evrópu
og Ameríku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gylfi Ólafsson
hefur verið skip-
aður forstjóri
Heilbrigðisstofn-
unar Vestfjarða.
Þetta kom fram í
tilkynningu á vef
Stjórnarráðsins.
Svandís Svav-
arsdóttir heil-
brigðisráðherra
skipaði Gylfa í
embættið í samræmi við niðurstöðu
lögskipaðrar nefndar sem mat
hæfni umsækjendanna, en alls
höfðu þrír sótt um forstjóraemb-
ættið eftir að það var auglýst laust
til umsóknar sl. apríl. Gylfi er
heilsuhagfræðingur og var aðstoð-
armaður Benedikts Jóhannessonar
fjármálaráðherra árið 2017. Hann
útskrifaðist með B.Ed.-gráðu sem
grunnskólakennari úr Háskólanum
úr Akureyri, með mastersgráðu í
hagfræði frá Stokkhólmsháskóla
og hefur stundað doktorsnám í
heilsuhagfræði í Karolinska í
Stokkhólmi.
Gylfi forstjóri heil-
brigðisstofnunar
Gylfi
Ólafsson
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hagnaður Bláa lónsins jókst um
32% á síðasta ári og nam 31 milljón
evra, jafnvirði 3,9 milljarða króna.
EBITDA, eða hagnaður fyrir af-
skriftir, fjármagnsliði og skatta,
nam 39,3 milljónum evra, jafnvirði
ríflega 4,9 milljarða króna og hefur
nær tvöfaldast á síðustu tveimur
árum. Í fyrra nam EBITDA-fram-
legðin 28,2 milljónum evra.
Rekstrartekjur Bláa lónsins
námu 102,3 milljónum evra í fyrra
en það jafngildir tæpum 12,9 millj-
örðum króna á núverandi gengi.
Jukust tekjurnar um 32,4% frá
fyrra ári þegar þær námu 77,2
milljónum evra. Rekstrarkostnaður
jókst úr 26,2 milljónum evra í 36,6
milljónir sem er jafnvirði 4,6 millj-
arða króna.
Eignir fyrirtækisins eru 138,7
milljónir evra, jafnvirði 17,5 millj-
arða króna, og er eiginfjárhlutfall
þess 55,8%.
Aðalfundur fyrirtækisins sam-
þykkti 20. júní að greiða rétt ríflega
helming hagnaðar síðasta árs í arð
til hluthafa eða 16 milljónir evra.
Jafngildir það rétt rúmum tveimur
milljörðum króna.
Líkt og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins 2. janúar síðastliðinn sóttu
1,3 milljónir gesta lónið heim á síð-
astliðnu ári og fjölgaði um 16% frá
fyrra ári. Í tilkynningu sem fyrir-
tækið hefur nú sent frá sér bendir
Grímur Sæmundsen, forstjóri fyrir-
tækisins, á að nú hafi dregið úr
fjölgun ferðmanna til landsins.
„Nú reynir á að fyrirtækin sýni
ábyrgð og aðlagi sig að breyttum
aðstæðum. Mikilvægt er að hvergi
verði slakað á í gæðum upplifunar-
innar né öryggi gesta. Þar þurfa
allir hagsmunaaðilar að axla
ábyrgð, bæði þjónustuaðilar og
stjórnvöld.“
Bláa lónið hagnast vel
Gestum fjölgar milli ára Munu greiða tvo milljarða í arð
Morgunblaðið/Ófeigur
Mikill vöxtur Hagnaðurinn hefur
aukist til mikilla muna frá fyrra ári.