Morgunblaðið - 25.06.2018, Qupperneq 1
Einn ástsælasti handknattleiksmaður Íslendinga, Ólafur Stefánsson, sá um sagnareit í um
klukkutíma í Hafnafirði í gær. Tilefnið var álfahátíðin í Hellisgerði en hátíðin hefur verið hald-
in árlega frá árinu 2012.
Eins og sjá má á myndinni hér að ofan túlkaði Ólafur hlutverk álfsins af mikilli innlifun en
hann er í góðri þjálfun þar sem hann hefur sinnt kennslu í grunnskólum í nokkur ár og er að
eigin sögn farinn að leggja fyrir sig sagnamennsku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álfar vöknuðu til lífsins í Hellisgerði
M Á N U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 147. tölublað 106. árgangur
BYRJAÐI SJÖTUG
AÐ STARFA Á
NÝJUM VETTVANGI Á LÖDU Í FÁNALITUNUM
BÓKAÚTGÁFAN
PARTUS SEM LIST-
RÆNT VERKEFNI
HM Í RÚSSLANDI 4 VALGERÐUR ÞÓRODDSDÓTTIR 26ELSA ÞÓRÐARDÓTTIR LÖVDAL 12
Morgunblaðið/Eggert
Mættur Birkir Bjarnason kominn í
liðsrútuna á flugvellinum í Rostov.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu kom til rússnesku borgar-
innar Rostov-na-Donu síðdegis í
gær eftir 50 mínútna flugferð frá
Gelendzhik við Svartahaf. Í Rostov
mætir íslenska liðið Króatíu í loka-
umferð D-riðils heimsmeistara-
keppninnar annað kvöld.
Liðið æfir á glænýjum leikvangi,
Rostov Arena, í dag en hann er
jafnframt nýr heimavöllur þriggja
af íslensku landsliðsmönnunum sem
leika með liði borgarinnar.
Gríðarleg spenna er fyrir loka-
umferðina en þar berjast Ísland,
Argentína og Nígería um hvert lið-
anna fylgir Króötum áfram í sextán
liða úrslitin. Króatar ætla að hvíla
leikmenn gegn Íslandi en það veit
ekki endilega á gott. » Íþróttir
Íslenska lið-
ið er komið
til Rostov
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
22,4% aðspurðra tíundubekkinga
kváðust hafa notað rafrettur a.m.k.
einu sinni síðastliðna þrjátíu daga,
samkvæmt lýðheilsuvísi Embættis
landlæknis fyrir árið 2018, en rafsíga-
rettunotkun er nú í fyrsta sinn einn af
lýðheilsuvísunum sem alls eru 44 tals-
ins.
Lýðheilsuvísarnir eru safn mæli-
kvarða sem gefa vísbendingar um
heilsu og líðan þjóðarinnar. Markmið-
ið með þeim er að gefa yfirsýn um lýð-
heilsu í hverju heilbrigðisumdæmi
fyrir sig þannig að bera megi saman
við landið í heild.
Nokkur munur á umdæmunum
Samkvæmt lýðheilsuvísunum er
nokkur munur milli umdæmanna á
tilteknum þáttum lýðheilsu. Á höfuð-
borgarsvæðinu meta þannig hlutfalls-
lega fæstir líkamlega heilsu sína
slæma og fæstar fæðingar mæðra
undir 20 ára aldri eru á höfuðborgar-
svæðinu. Þar er þátttaka barna í
skipulögðu íþróttastarfi mest og flest-
ar sérfræðingsheimsóknir á íbúa.
Á Suðurnesjum er gosdrykkja-
neysla bæði barna og fullorðinna
mest á landsvísu og fjölgun íbúa yfir
landsmeðaltali. Dánartíðni kvenna
vegna hjarta- og æðasjúkdóma er
hæst á Suðurnesjum og þátttaka í
skimun fyrir legháls- og brjósta-
krabbameini minnst. Á Vesturlandi
er hlutfall þeirra sem eiga erfitt með
að ná endum saman hæst og streita
fullorðinna minnst á landinu. Þátt-
taka barna í skipulögðu íþróttastarfi
er undir landsmeðaltali á Vesturlandi.
Á Vestfjörðum er einmanaleiki barna
yfir landsmeðaltali og færri börn sem
geta lesið sér til gagns en annars
staðar. Fleiri fullorðnir sofa stutt á
Vestfjörðum en annars staðar á land-
inu.
Á Norðurlandi eru flestir sem meta
líkamlega heilsu sína slæma miðað við
aðra landshluta og flestir á biðlista
eftir hjúkrunarrými á landinu.
Áhættudrykkja fullorðinna er undir
landsmeðaltali. Á Austurlandi er hún
minnst á landinu, hlutallslega flestir
sem meta andlega heilsu sína slæma
og þunglyndislyfjanotkun kvenna yfir
landsmeðaltali.
Á Suðurlandi er streita fullorðinna
undir landsmeðaltali og nýgengi
krabbameina karla einnig. Kannabis-
neysla fullorðinna er yfir landsmeð-
altali.
Taka nú rafrettur
með í reikninginn
22,4% tíundubekkinga notuðu rafrettur í mánuðinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rafrettur Nú er rafrettunotkun
könnuð með tilliti til lýðheilsu.
MKanna lýðheilsu um land allt »9
Að mati Ólafs
Ragnars Gríms-
sonar ættu ís-
lensk fyrirtæki
að njóta góðs af
vaxandi áhuga
stjórnvalda og
stórfyrirtækja
um allan heim á
sjálfbærni, um-
hverfisvernd og
endurnýjanlegri
orku. Aðrar þjóðir horfi til árang-
urs Íslands og vilji læra af okkur.
Sem dæmi um það sem koma skal
nefnir Ólafur hvernig um þessar
mundir er verið að nota íslenskt
hugvit til að byggja upp risavaxið
hitaveitukerfi í Kína með stuðningi
Þróunarbanka Asíu. »14
Skapar mörg og
verðmæt tækifæri
Ólafur Ragnar
Grímsson
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, var endurkjörinn í for-
setakosningum sem fram fóru í
landinu í gær. Hlaut hann um 53%
atkvæða. Þar sem hann hlaut meiri-
hlutastuðning þarf ekki að ganga
til kosninga milli tveggja efstu
frambjóðenda en helsti keppinaut-
ur hans hlaut 31%. Kosningaþátt-
taka reyndist mikil eða um 88%. Á
sama tíma var kosið til þings og
hélt stjórnarmeirihlutinn með 54%
atkvæða á bak við sig. »15 og 16
Erdogan endurkjör-
inn í fyrstu umferð