Morgunblaðið - 06.07.2018, Blaðsíða 24
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Álfheimar 15, Reykjavík, fnr. 202-1182 , þingl. eig. Þórjón Pétur
Pétursson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 10. júlí
nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
5. júlí 2018
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl.
16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir, s: 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl.
14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti
boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vita-
torg sími: 411-9450.
Garðabær Jónshús/félags- og íþróttastarf, sími: 512-1501 virka daga
kl. 9 -16. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur fer frá Jóns-
húsi kl. 10.
Gjábakki Kl. 20 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, bridge kl. 13, pútt kl. 13 og eftirmiðdagskaffi
kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, boccia kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, Hæðar-
garðsbíó kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri,
nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum Skóla-
braut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30, bridge í Eiðismýri kl. 13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23,
hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Bækur
BÓKBAND
Tökum að okkur allar gerðir
handbókbands.
Upplýsingar veitir Eggert
Ísólfsson bókbindari í s. 8992121
Bókbandsstofan Steinegg,
Höfðabakka 3, 110 Reykjavík
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarhús
Sumarbústaðalóðir til sölu
í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi . Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Heima er bezt tímarit 5. tbl. 2018 -
Þjóðlegt og fróðlegt
Tryggðu þér áskrift
www.heimaerbezt.net
Til sölu
Olíuskiljur - fituskiljur
- einagrunarplast
CE vottaðar vörur.
Efni til fráveitulagna.
Vatnsgeymar 100-50.000 lítra.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Bílar
Toyota Corolla til sölu
Árg. ‘98. Liftback. Skoðaður '18.
Topp eintak. Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863 7656.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2018
✝ Steinþóra Sum-arliðadóttir
fæddist á Siglufirði
16. september 1939.
Hún andaðist 28.
júní 2018 á hjúkrun-
arheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði.
Foreldrar henn-
ar voru Sumarliði
Hallgrímsson vél-
stjóri, f. 2 júní 1904,
d. 24. júní 1978, og
Aldís Björg Ágústsdóttir hús-
móðir, f. 25. mars 1912, d. 26.
september 1995.
Steinþóra ólst upp í foreldra-
húsum á Siglufirði ásamt þremur
systkinum sínum: I) Fanneyju, f.
9. júlí 1937, maki Ásgeir Sumar-
liðason, d. 3. ágúst 1993, II)
Ágústu, f. 11. ágúst 1945, maki
Guðjón Örn Pétursson og III)
Jónasi Frey, f. 10. júní 1952.
Örn og Steinþóra eignuðust
eina dóttur, Aldísi Björgu, f. 18.
ágúst 1960, maki
Kári Ellertsson.
Börn þeirra Arna
Þóra, f. 6. janúar
1977, maki Örvar
Hilmarsson, og Ell-
ert, f. 2. nóvember
1998. Barnabarna-
börnin eru þrjú, þau
Aþena Líf, Atlas
Ingi og Alexandra
Ylfa.
Steinþóra lauk
gagnfræðaprófi á Siglufirði.
Steinþóra og Örn fluttust til Ak-
ureyrar og hófu þar búskap
1959. Þar bjuggu þau til ársins
1999 þegar þau fluttu í Hlíðar-
hjalla 44 í Kópavogi. Steinþóra
starfaði mest við verslunarstörf
ásamt húsmóðurstörfum. Síðast
vann hún í Smáraskóla í Kópa-
vogi.
Útför Steinþóru fer fram frá
Garðakirkju í dag, 6. júlí 2018,
og hefst athöfnin kl 13.
Steinþóra Sumarliðadóttir
tengdamóðir mín kvaddi okkar
heim 28. júní.
Steinþóru og Erni kynntist ég
fyrst fyrir nær 45 árum þá aðeins
fimmtán ára gamall. Ég hafði á
þeim tíma kynnst dóttur þeirra
hjóna, Aldísi, við skíðaiðkun í
Hlíðarfjalli og urðum við fljótt
góðir vinir. Það var langt á milli
heimila okkar og ég fljótt ansi oft
langsetinn í heimsókn að mati
Steinþóru. Auðvitað var reynt að
hrekja mig á brott frá einkadótt-
urinni en allt kom fyrir ekki.
Engu tjónki var komandi við
kauða og nokkrum árum síðar
var ég orðinn partur af þessari
yndislegu litlu fjölskyldu í Ein-
holti 3 á Akureyri. Í Einholtinu
bjuggu þau hjón í 34 ár eða þar til
þau rifu sig upp og fluttu á suð-
vesturhornið til að vera nálægt
sínum nánustu.
Steinþóra og Örn fluttu inná
Akureyri árið 1959, árið sem ég
fæddist og ári áður en Aldís kom í
heiminn. Þau voru bæði Sigl-
firðingar inn að beini, bæði ættuð
þaðan og voru dugleg að heim-
sækja allt sitt skyldfólk og vini
þar út við hjara veraldar, að mínu
mati þá allavega. Samheldni,
virðing og ást þeirra hjóna var
ætíð eins og maður las um í
skáldsögum sem unglingur, sem
voru nefndar rauðar ástarsögur.
Steinþóra og Örn héldu uppá
58 ára brúðkaupsafmæli nú í vor.
Steinþóra var þá orðin alvarlega
veik af Alzheimer og hafði sjúk-
dómurinn ágerst hratt. Tengda-
faðir minn Örn sinnti ávallt konu
sinni af fullri alúð og kærleika
þar til yfir lauk. Yndislegt að sjá
þótt erfitt væri bæði honum og
okkur hinum. Ég get ekki annað
en tekið ofan fyrir þessum ynd-
islegu hjónum sem hafa sinnt
hvort öðru af sannri fullkomnun
ásamt því að vera yndisleg öllum
öðrum sem til þeirra hafa leitað á
lífsleiðinni. Steinþóra Sumarliða-
dóttir hafði mikla mannkosti, fal-
leg og yndislega kona, eiginkona,
móðir og amma. Hún hafði til að
bera einstaka hógværð og lítil-
læti. Hún vildi aldrei láta hafa
fyrir sér en vildi allt fyrir alla
gera. Hún var ákveðin, réttsýn
og hlý manneskja. Hún gerði
ekki miklar kröfur, elskaði sitt
fólk takmarkalaust. Einstaklega
bóngóð og hjálpsöm við öll sín
skyldmenni. Henni leið ávallt
best með sínu fólki og nánustu
vinum. Hún elskaði náttúruna og
útiveru og voru gönguferðir í
uppáhaldi. Einnig var hún sér-
legur dýravinur. Elskaði góðar
bókmenntir og falleg íslensk ljóð.
Hún reyndist mér einstaklega
vel, það tók smá tíma að komast
inn fyrir í hlýjuna en þegar þang-
að var komið var maður ævinlega
undir hennar verndarvæng.
Aldrei eitt neikvætt orð úr henn-
ar munni þótt kannski maður hafi
til þess unnið á 45 ára tímabili, en
augnaráðið gat verið hvasst og
það skildi maður vel. Ég vil
þakka tengdamóður minni Stein-
þóru samfylgdina og þakka henn-
ar hlýjan faðm og alla ást og um-
hyggju.
Hvíl í friði.
Guðbergur Kári.
Elsku Steina amma mín.
Þú hefur verið til staðar fyrir
mig frá barnæsku og sýnt mér
hvernig lífið leikur við mann.
Varst alltaf tilbúin að gefa meira
frá þér til annarra og gleðja fólk í
kringum þig sem þóknaðist þér
vel.
Ég mun ávallt muna eftir góð-
mennskunni, kærleikanum og
ástinni sem fylgdi þér hvert sem
leiðir lágu og ekki má gleyma
óaðfinnanlega matnum sem mað-
ur fékk þegar komið var í heim-
sókn.
Hefði aldrei getað óskað mér
betri ömmu því engin amma gæti
hugsað eins vel um mann og gert
það sem þú hefur gert fyrir mig
þessi 19 ár sem ég hef notið í ynd-
islegu samveru þinni.
Þú ert ofuramma sem mun
alltaf eiga stóran stað í hjarta
mínu fram til æviloka.
Elska þig mest.
Ellert Kárason.
Elsku amma.
Ég kveð þig með miklum
söknuði en á sama tíma gleðst ég
yfir því að þú hafir fengið hvíld
frá veikindum þínum. Þú varst
mér allt í senn, amma, móðir og
góð vinkona og var ég svo heppin
að fá að alast upp hjá ykkur afa
til sjö ára aldurs. Þú varst mér
alltaf svo góð og ert búin að vera
svo stór partur af lífi mínu öll
þessi ár. Ég mun sakna allra
samverustundanna okkar en þær
voru ófáar. Við hittumst flesta
daga og oft í viku kom ég í kaffi
og ristað brauð til þín og við sát-
um og spjölluðum saman um lífið
og tilveruna. Þú varst líka alltaf
að hjálpa mér með börnin, heim-
ilið og þvottinn, og sást eiginlega
alveg um að brjóta saman fyrir
mig síðustu árin. Ég naut þess að
vera í kringum þig og oft fórum
við á kaffihús eða bæjarrölt. Þú
varst alltaf gangandi og við löbb-
uðum mikið saman með hundana
okkar í gegn um árin. Þú naust
þess að fylgjast með langömmu-
börnunum þínum þremur vaxa
og dafna, fjölskyldan var þér allt.
Ég veit að þú vakir yfir okkur öll-
um núna.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson)
Arna Þóra Káradóttir.
Steinþóra
Sumarliðadóttir
Nú er Edda fall-
in frá en eftir
standa fallegar
minningar um góða
konu. Það eru nokkrir áratugir
síðan ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi að komast í sveit til
þeirra heiðurshjóna Lúðvíks og
Eddu. Dvölin var ævintýri lík-
ust og var dýrmæt lífsreynsla
fyrir mig, borgarbarnið, að
komast í kynni við sveitastörfin.
Lífsgleði Eddu og kímnigáfa er
mér minnisstæð en sérstaklega
sú umhyggja sem hún bar
ávallt í brjósti fyrir hag ann-
arra, hvort sem um menn eða
málleysingja var að ræða. For-
eldrar mínir héldu góðu sam-
bandi við þau heiðurshjón í
marga áratugi og einnig fylgd-
ist Edda vel með mér og seinna
með minni eigin fjölskyldu. Á
erfiðum tímum var umhyggja
hennar og tryggð alltaf huggun
og hjálp. Ragnheiði, Magnúsi
og fjölskyldum þeirra votta ég
samúð mína.
Er vorið kemur sunnan yfir sund
með söng í hjarta, gneistaflug um
brár,
þá breytast öll hin löngu liðnu ár
í ljósan dag, í heiða morgunstund.
Við fjallsins rætur á ég lítinn lund
og leyndardóm, sem er hreinn og
skær
og heillað getur svip þinn, nær og
nær,
og nafni þínu gefið hold og blóð,
laugað í dögg og dagsins
morgunglóð.
Sú fegurð öll, sem fyrir sjónir bar
á förnum vegi, birtist vinum tveim,
sem ennþá muna yndislegan heim –
sem einu sinni var.
Og endurfundum fagna sálir tvær,
sem frjálsar teyga angan þína, jörð,
og seltuna við silfurbláan fjörð.
Við stöðvum tímans vald og vængja-
blak –
eitt andartak, eitt andartak.
(Davíð Stefánsson)
Klara Björg Jakobsdóttir.
Nú er hún Edda á Krossi
horfin frá okkur en svo var hún
ávallt kölluð. Ætli hún hafi
ekki verið um fjögurra ára
þegar ég (Jakob) kom fyrst á
bú foreldra hennar að Sand-
hóli, í sumarvist en sumrin
urðu alls fjögur. Hún var mikil
pabbastelpa og vildi helst vera
Eyrún
Rannveig
Þorláksdóttir
✝ Eyrún Rann-veig Þorláks-
dóttir fæddist 20.
desember 1934.
Hún lést 23. júní
2018.
Útför hennar fór
fram 30. júní 2018.
að bardúsa í úti-
verkunum með
honum og það var
gaman að sjá hana
trítla við hlið föður
síns sem var mað-
ur hávaxinn. Mér
er minnisstætt
þegar hún slasað-
ist illa á fingri við
að fikta í prjónavél
sem þá gekk á
milli bæja. Þetta
gerðist á fyrsta ári hernáms
Englendinga hér á landi. Þor-
lákur var þá snöggur að koma
henni til Hveragerðis í herbúð-
ir þeirra en þar var herlæknir
sem bjargaði henni frá því að
missa fingurinn. Í hvert skipti
sem hún fór til að láta skipta á
umbúðum var hún leyst út með
framandi sælgæti enda dáðist
herlæknirinn að því hversu
hörð þessi litla stúlka var af
sér. Var hún öfunduð af okkur
hinum börnunum en eins og
henni var líkt þá deildi hún
þessum „fjársjóði“ með okkur.
Annað sem mér er minnisstætt
var atvik þegar við vorum á
leið heim af engjunum með
hesta í taumi og þrumuveður
skall á með miklum látum. Var
hún hin rólegasta þrátt fyrir
mikinn hamagang sem þessu
fylgdi. Ég rifja þessi atvik upp
vegna þess að þau bera vott
um þann kjark og styrk sem
hún sýndi strax í bernsku og
nýttist henni síðar á ævinni í
erfiðum aðstæðum. Samband
mitt (Jakob) við Sandhólsfólkið
var náið rétt fyrir og í byrjun
heimsstyrjaldarinnar síðari en
urðu minni næstu áratugina
vegna náms og síðar starfa er-
lendis. Tengsl okkar Eddu end-
urnýjuðust síðar þegar við vor-
um bæði komin með okkar
eigin fjölskyldur. Okkur var
alltaf tekið opnum örmum þeg-
ar við hjónin heimsóttum þau
Eddu og Lúðvík og var okkur
Vilhelmínu alltaf sérstaklega
hlýtt til þeirra hjóna. Yngri
dóttir okkar naut síðan góðs af
þegar hún fór í sveit til þeirra
og hefur hún sérstaklega góðar
minningar frá þeim tíma. Þau
hjónin voru einstaklega ósér-
hlífin og tóku öllum verkefnum
af æðruleysi og dugnaði og sem
dæmi má nefna það mikla starf
sem þau lögðu í viðhald á Kot-
strandarkirkju og kirkjugarði.
Þau voru ætíð stolt af börnum
sínum sem reyndust þeim mik-
ill styrkur og þá sérstaklega
Eddu núna síðustu árin eftir að
Lúðvík kvaddi. Við sendum að-
standendum Eddu okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Dr. Jakob Magnússon
og fjölskylda.
Kæri Örn. Ég vil minnast þín í
örfáum orðum og þakka þér allt
það sem þú hefur gert fyrir mig,
ég veit að ég get ekki þakkað þér
nógsamlega fyrir alla aðstoðina,
Jón Örn
Gissurarson
✝ Jón Örn Giss-urarson fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 29. sept-
ember 1939. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
nesja 6. júní 2018.
Útför hans fór
fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju 15.
júní 2018.
ferðirnar ykkar
Binnu vestur til mín
voru ekki beint af-
slöppunarferðir fyr-
ir þig. Þín verður
sárt saknað. Ég bið
algóðan Guð að
geyma þig. Sjáumst
þó síðar verði.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð.
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Þín mágkona,
Bjarghildur
(Bobbý).