Morgunblaðið - 06.07.2018, Qupperneq 26
suðurhimni. Henni er í fersku minni
að um kvöldið voru látnir út diskar
og að morgni næsta dags hafði fallið
á þá aska.
Þeir eru ekki heldur margir sem
sáu skáldið Matthías Jochumsson í
lifanda lífi. „Ég man að ég sá Matt-
hías á götu á Akureyri. Mér fannst
gaman að sjá hann.“ Annað eyfirskt
skáld hitti hún oftar en það var Davíð
Stefánsson sem var góður kunningi
Þóris, eiginmanns Dóru. Hún minnist
þess að hafa heimsótt Davíð og þótti
ekki síður gott að fá hann í heimsókn.
„Ég man að við Þórir drukkum kaffi í
eldhúsinu hjá Davíð.“
Að sjálfsögðu var Dóra spurð um
lykilinn að langlífi og þar kom reglu-
bundin hreyfing til umræðu. Dóra
vann á vöktum hjá Landsímanum við
að afgreiða símtöl og fór gjarnan í
sund fyrir eða eftir vakt. Hún bjó
nyrst við Norðurgötu og gekk í vinn-
una. En það er ekki bara hreyfingin
sem kom Dóru til góða. Hún nefnir
hollan mat í uppvextinum. Nýr fiskur
var gjarnan á borðum og heimamenn
skutu sel, hnísur og fugla. Allt var et-
ið og ekkert fór til spillis. „Það var
alltaf góður matur í Sigtúnum. Bræð-
ur mínir lögðu silunganet og þeir
voru á bryggjunni og veiddu í mat-
inn,“ sagði afmælisbarnið þegar rætt
var við það í byrjun vikunnar.
Þess má að lokum geta að Dóra
hefur prjónað hundruð dýra og gefið
börnum. Hún er enn að prjóna og
hyggst ekki hætta því í bráð.
Fjölskylda
Dóra giftist 15.2. 1943 Þóri Guð-
mundi Áskelssyni, f. á Skugga-
björgum í Dalsmynni í Suður-
Þingeyjarsýslu 18.7. 1911, d. 10.12.
2000, sjómanni og seglasaumara.
Foreldrar hans voru Áskell Hannes-
son, f. á Austari Krókum 29.5. 1875,
d. 29.3. 1953, bóndi, og k.h., Laufey
Jóhannsdóttir, f. á Skarði í Grýtu-
bakkahreppi 6.10. 1877, d. 22.4. 1927,
húsfreyja.
Börn Dóru og Þóris eru: 1) Ása
Drexler, f. 25.11. 1933, húsfreyja og
fv. skrifstofumaður í Bandaríkjunum
og ekkja eftir Heinz Drexler, f. 1923,
og eru börn þeirra: a) Dóra Karen, f.
11.11. 1964, eftirlitsverkfræðingur
með loftgæðum, gift Eric Ruzius
verkfræðingi f. 20.10. 1962, en börn
þeirra eru Eric Thor, f. 20.3 2000, og
Emma, f. 1.2. 2002; b) Hans, f. 28.7.
1967, verktaki, og eru börn hans og
Stephanie Drexler, f. 9.9. 1972, að-
stoðarmanns kennara barna með sér-
þarfir: Lucas, f. 10.10. 2007, og Sid-
ney, f. 30. 6. 2009. 2) Áskell, f. 19.3.
1953, fv. ritstjóri Bændablaðsins og
nú starfsmaður Landgræðslunnar.
Kona hans er Vilborg Aðalsteins-
dóttir f. 9. 10. 1954, kennari, sjúkra-
liði og lyfjatæknir á Landspítala.
Börn: a) Aðalsteinn Arnarson, f.
17.11. 1972, skurðlæknir á Landspít-
ala og Klíníkinni, kvæntur Huldu
Björk Jóhannsdóttur, f. 26. maí 1973,
hjúkrunarfræðingi á Landspítala, og
eru börn þeirra Hákon, f. 12.9. 2001,
Sara Lind, f. 14.8. 2007, og Hildur
Ósk, f. 27.7. 2014. Faðir Aðalsteins er
Örn Bragason, f. 10.2. 1953, deildar-
stjóri; b) Laufey Dóra, f. 27.4. 1990,
deildarlæknir á Landspítala.
Systkini Dóru: Anna Gunnur, f.
1911, d. 1945; Guðríður, f. 1916, d.
2005, húsfreyja á Akureyri; Gunnar,
f. 1917, d. 1991, sjómaður á Akur-
eyri; Baldvin, f. 1919, d. 2015, versl-
unarmaður á Akureyri; Vigfús, f.
1922, d. 2012, framkvæmdastjóri á
Akureyri; Árni, f. 1925, d. 2003,
kennari á Akureyri, og Þóra Soffía,
f. 1931, skrifstofumaður og hús-
freyja í Hafnarfirði.
Foreldrar Dóru voru Ólafur
Gunnarsson, f. 27.7. 1878 á Höfða,
Grýtubakkahreppi, d. 15.1. 1964, út-
vegsbóndi á Kljáströnd, og k.h.
Anna María Vigfúsdóttir, f. 28.11.
1888 á Hellu í Árskógshreppi, d.
10.7. 1973, húsfreyja á Kljáströnd.
Dóra Ólafsdóttir
Soffía Jónsdóttir
húsfr. á Þorleifsstöðum í Svarfaðardal
Halldór Halldórsson
á Brimnesi á Árskógsströnd
Halldóra Halldórsdóttir
húsfr. á Hellu á Árskógsströnd
Vigfús Vigfússon
b. á Hellu á Árskógsströnd
Anna María Vigfúsdóttir
húsfreyja á Kljáströnd
Anna Rósa Þorsteinsdóttir
húsfr. á Hellu á Árskógsströnd
Vigfús Gunnlaugsson
b. á Hellu á Árskógsströnd
Ólafur Hjaltested skólastjóri fyrsta barnaskólans í Rvík og prestur í Saurbæ
Sigurður J.
Ringsted
bankastj. á
Akureyri
Gunnar
Ringsted
tónlistar-
maður og
tónlistar-
kennari í
Borgarnesi
Guðríður
Gunnars-
dóttir húsfr.
í Sigtúnum
á Kljáströnd
Baldvin G.
Ringsted
tannlæknir
á Akureyri
Sigurður
Gísli
Ringsted
verkfr. á
Akureyri
Vilhelm Halldór Vigfússon starfsmaður ÚA
Vigfús Vigfússon sjómaður
Þóra Rósa Vigfúsdóttir Christiansen hatta-
gerðarkona á Akureyri og í Kaupmannahöfn
Guðríður Magnúsdóttir Hjaltested
ljósmóðir í Saurbæ í Hvalfirði,
systurdóttir Hallgríms, föður
Jónasar skálds
Georg Pétur Einarsson Hjaltested
ráðsmaður í Saurbæ í Hvalfirði
Anna Petrea Pétursdóttir Hjaltested
húsfreyja á Kljáströnd
Gunnar Ólafur Gunnarsson
útvegsbóndi á Kljáströnd
Ólöf Magnúsdóttir
húsfreyja í Höfða, dóttir Magnús
ar prests í Steinnesi Árnasonar,
biskups á Hólum Þórarinssonar
Gunnar Ólafsson
pr. í Höfða í Höfðahverfi í SÞing., systursonur Gunnars
Gunnarssonar pr. í Laufási, föður Tryggva Gunnars
sonar og afa Hannesar Hafstein skálds og ráðherra
Úr frændgarði Dóru Ólafsdóttur
Ólafur Gunnarsson
útvegsb. á Kljáströnd
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2018
106 ára
Dóra Ólafsdóttir
90 ára
Bergþóra Magnúsdóttir
Elita Benediktsson
85 ára
Guðrún Margrét Elísdóttir
Selma Guðjónsdóttir
Stefán Bjarnason
80 ára
Arnþór Garðarsson
Þuríður Magnúsdóttir
75 ára
Aðalsteinn Steinþórsson
Ágúst Guðmundsson
Friðbjörn Þórðarson
Gunnar Guðjón Baldursson
Helga B. Yngvadóttir
Höskuldur Erlendsson
Maria Powichrowska
Sóley Anna Þorkelsdóttir
70 ára
Áslaug Bergsteinsdóttir
Eiríkur Trausti Stefánsson
Eyrún S. Jónsdóttir
Guðrún J. Hansdóttir
Guttormur Sigurðsson
Hildur Ása Benediktsdóttir
Hilmar Hjaltalín Jónsson
Hreiðar Þór Sæmundsson
Jóna Kristjánsdóttir
Kristín Kjartansdóttir
Krystyna R. Maszewska
Ólafía J. Hansdóttir
Ólöf Vilhelmsdóttir
Pétur Gunnlaugsson
Sigfús Smári Viggósson
Sigurveig Guðjónsdóttir
60 ára
Alicja Rybkowska
Árni Jónasson
Hörður Ingólfsson
Jónas Baldursson
Jónína R. Guðmundsdóttir
Júlíus Júlíusson
Karl Knudsen
Kristinn Ásbjörnsson
Kristinn Óskarsson
Maríus Sævar Pétursson
Sigurjón Ólafsson
50 ára
Ásdís Halla Bragadóttir
Dagmar Kjartansdóttir
Dariusz W. Synoradzki
Ingvi Már Guðmundsson
Jason Cullen Thompson
Kristjana M. Hilmarsdóttir
Sigríður S. Sigurðardóttir
Sigrún Ragnarsdóttir
Sigurður H. Sævarsson
Tong Chen
40 ára
Guðrún Guðmundsdóttir
Hrafnkell Brynjarsson
Inga Birna Erlingsdóttir
Kristín Hannesdóttir
Óli Freyr Kristjánsson
Petra Björg Kjartansdóttir
Pétur Már Gunnarsson
Sigrún Ósk Arnardóttir
Unnur Eir Arnardóttir
Valgeir Ingason
Þorvaldur Gröndal
Þóra Björg Hallgrímsdóttir
30 ára
Arna Björk Ómarsdóttir
Einar Bergmann Rúnarsson
Erla Heiða Sverrisdóttir
Íris Ösp Símonardóttir
Johan Henrik Fredriksson
Jón Ólafur Kjartansson
Katrín Björk Proppé-Bailey
Kristinn Annel Kristinsson
Óðinn Þórarinsson
Rebekka Hoffmann
Til hamingju með daginn
30 ára Sindri ólst upp á
Hofsósi, býr á Akureyri,
lauk prófi í rafvirkjun og
stundar málmsmíði með
föður sínum.
Maki: Kamonlak Nams-
anga, f. 1993, starfs-
maður hjá Kjarnafæði.
Foreldrar: Gunnlaugur
Steingrímsson, f. 1948,
bílasmiður og framkv.stj.
Stuðlabergs og Fjarðar-
stáls, og Valbjörg B. Fjól-
mundsdóttir, f. 1953,
hótelstýra á Fosshóli.
Sindri Víðir
Gunnlaugsson
30 ára Sandra ólst upp á
Þórshöfn á Langanesi,
býr í Kópavogi, er snyrti-
fræðingur, lauk BSc-prófi
í hjúkrunarfræði frá HÍ og
er að detta í fæðingar-
orlof.
Maki: Óðinn Guðmunds-
son, f. 1978, flugmaður
hjá Icelandair.
Sjúpsonur: Haukur Óð-
insson, f. 1999.
Foreldrar: Erla Jóhanns-
dóttir, f. 1953, og Konráð
Jóhannsson, f. 1954.
Sandra Ösp
Konráðsdóttir
30 ára Björn ólst upp á
Dalvík, býr þar, lauk
sveinsprófi í húsasmíði og
farmannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum.
Maki: Sólrún Anna Ósk-
arsdóttir, f. 1996, nemi í
hjúkrunarfræði og starfar
við umönnun.
Foreldrar: Björn Björns-
son, f. 1957, húsasmíða-
meistari og hafnarvörður
á Dalvík, og k.h., Sigríður
Guðmundsdóttir, f. 1964,
glerlistakona.
Björn Már
Björnsson
S: 555 0800 · Fornubúðum 12 · Hafnarfirði · sign@sign.is · facebook.com/signskart
WWW. S I G N . I S
Lýður Bakkdal Björnssonfæddist í Bakkaseli í Bæjar-hreppi í Strandasýslu 6.7.
1933. Foreldrar hans voru hjónin
Valgerður Elín Andrésdóttir, hús-
freyja í Bakkaseli, og Björn Lýðs-
son, bóndi þar.
Björn var sonur Lýðs Sæmunds-
sonar, bónda og trésmíðs í Bakka-
seli, og k.h., Elínborgar Daníels-
dóttur húsfreyju, en Valgerður var
dóttir Andrésar Sigurðsson, bónda á
Þórisstöðum, og k.h., Guðrúnar
Jónsdóttur húsfreyju.
Eftirlifandi eiginkona Lýðs er
Guðbjörg Ósk Vídalín Óskarsdóttir,
f. 1931. Þau eignuðust dótturina Val-
gerði Birnu hjúkrunarfræðing, f.
1959.
Lýður lauk stúdentsprófi frá MR
1954 og BA-prófi í mannkynssögu og
landafræði frá HÍ, auk kennslurétt-
inda þaðan, og cand.mag.-prófi í
sögu og landafræði frá HÍ 1965.
Lýður kenndi við Vogaskóla í
Reykjavík 1957-65, við Verzlunar-
skóla Íslands 1965-76 og við Kenn-
araháskóla Íslands 1976-84. Hann
var dósent við Kennaraháskóla Ís-
lands 1984-85, sinnti stundakennslu
og sagnfræðirannsóknum og var rit-
stjóri sögulegs efnis hjá Genealogia
Islandorum.
Lýður sat um tíma í stjórn Lands-
sambands framhaldsskólakennara,
Félags háskólamenntaðra kennara
1966-69, var varaformaður Sagn-
fræðingafélags Íslands 1973-74 og
formaður þess 1974-75, ritari Stúd-
entafélags Reykjavíkur 1976-78 og
gjaldkeri Hagþenkis 1983-84.
Lýður var afkastamikill rithöf-
undur um sagnfræðilegt efni og ligg-
ur eftir hann fjöldi rita, kennslu-
bóka, ritgerða og greina. Hann
skrifaði m.a. bækur um Skúla fóg-
eta, Hagræna landafræði, Sögu
sveitarstjórnar á Íslandi I-II, Frá
siðaskiptum til sjálfstæðisbaráttu,
Björn ritstjóra, Sögu Kópavogs,
Sögu Hjúkrunarskóla Íslands,
Heimavarnarlið Levetzows og her
Jörundar, Sögu Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og sögu Kaup-
mannasamtaka Íslands.
Lýður lést 25.2. 2015.
Merkir Íslendingar
Lýður
Björnsson