Morgunblaðið - 06.07.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.07.2018, Qupperneq 10
11 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 ÚTSALA 40% afsláttur af öllum vörum SUMAR fleiri hross í keppni. Jakob telur að það mætti jafnvel fækka aftur í flokkunum. „Þetta er gríðarlega mikið. Það eru 100 hross í hverjum flokki í gæðingakeppninni og þessi sérstaka forkeppni er ofboðslega erfið fyrir hestana. Manni finnst maður vera að taka óþarflega mik- ið út á hestunum svona í byrjun móts. Hann Nökkvi er sterkasti hestur sem ég hef verið með og hann var alveg búinn. Ég hefði kosið að spara orkuna fram á síð- asta dag, en svona getur þetta ver- ið.“ Sérstök forkeppni felst í því að þrír hestar eru inni á vellinum í einu þar sem riðið er eftir fyrir- mælum þular. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Samband hesta og manna hefur löngum verið rætt og rannsakað. Fáir þekkja það betur en verð- launaknapinn Jakob Svavar Sig- urðsson en hann og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili eru ríkjandi landsmótsmeistarar í B-flokki. Þeir eru mættir aftur á landsmót og freista þess að endurheimta titilinn en auk þess að taka þátt í gæðinga- keppninni hefur Jakob Svavar sýnt kynbótahross með góðum árangri. Má segja að þeir Nökkvi og Jak- ob Svavar séu hálfgerðar stjörnur innan hestaheimsins og er Nökkvi m.a.s. með eigin facebooksíðu. Jak- ob Svavar hefur átt farsælan feril sem knapi á hestamótum í gegnum tíðina og varð t.a.m. heimsmeistari í tölti á Heimsmeistaramóti ís- lenska hestsins í Hollandi í fyrra. Hann segist enn ekki hafa ákveðið hvort þeir fari aftur út að keppa á næsta ári. „Ég á rétt á því að fara, sem heimsmeistari í tölti, en við er- um að skoða stöðuna og það er enn óráðið á hvaða hesti ég fer.“ Undirbúningur lykilatriði Þá er Jakob spurður hvernig maður nái svo góðum árangri í hestaíþróttinni. Segir hann undir- búning og góðan hest lykilatriði, ásamt því að hafa ástríðu fyrir hestum að sjálfsögðu. „Það segir sig kannski sjálft en þú verður að lifa fyrir þetta. Ég hef verið í kringum þetta frá barnsaldri. Hvað varðar árangur, þá næst hann ekki nema vera með góðan hest og fá að hafa hann í góðan tíma, því þetta er rosalega mikil vinna. Það er þetta tvennt sem skilar árangri: að fá góðan hest og vera samvisku- samur og hugsa vel um hestinn og þjálfa hann vel. Þetta er smá heppni líka,“ bætir Jakob við og brosir. En hvað gerir Nökkva að afburðahesti í huga Jakobs? „Hann hefur einstakt gangrými og býr yf- ir frábærum gangtegundum, tölti og brokki. Algjörlega óvenjulegt brokk. Við eigum ennþá eitthvað inni á þessu móti að ég tel,“ segir Jakob. Gríðarlega jöfn keppni í ár Nökkvi og Jakob urðu efstir í sérstakri forkeppni í vikunni og í þriðja sæti í milliriðlakeppninni á miðvikudag. Jakob Svavar segir samkeppnina í ár gífurlega harða. „Þetta er náttúrlega landsmót; hér eru allir þeir bestu og allir stefna hingað. Breiddin í hestunum er að aukast og líka knaparnir. Þetta er allt að styrkjast, bæði A- og B- flokkur. Ég hef sjaldan séð svo góða og jafna keppni.“ Í ár er komin upp sú staða að vegna fjölgunar innar hestagrein- arinnar öðlast hestamannafélögin aukinn þátttökurétt og geta sent Að sögn Jakobs eru landsmót í hans huga alltaf ánægjuleg en fyrst og fremst mikil vinna. „Landsmótið þýðir gríðarleg vinna og sér í lagi ef þú ert að keppa með mörg hross. Það er helsti mun- urinn á landsmótum og svo Ís- landsmótum og heimsmeistaramót- um, að þetta er mesta vinnan. En þau eru líka skemmtileg að því leyti að þetta er uppskera; þú ert að sýna alla vinnuna og undirbún- inginn.“ Sækir í ró fyrir keppni Fyrr í vikunni greindi Morgun- blaðið frá lokaverkefni í íþróttum og þjálfun er snýr að líkamlegri heilsu knapa þar sem því er haldið fram að knapar verði að vera í góðu formi til að ná árangri. Jakob Svavar tekur undir það. „Maður reynir að passa upp á sjálfan sig, hugsa um heilsuna. Maður verður að vera í góðu standi líkt og hest- urinn.“ Hann segist jafnframt ekki hafa neina sérstaka rútínu þegar kemur að keppnisdögum en vill þó hafa ró í kringum sig og forðast óþarfa stress. „Það getur verið erf- itt að halda rónni þegar það er mikið álag svo það tekst nú ekki alltaf, oft er allt á síðustu stundu,“ segir Jakob og hlær. Hann og Nökkvi snúa aftur í úrslitum í B- flokki á sunnudag. Landsmót fyrst og fremst mikil vinna  Verðlaunaknapinn Jakob Svavar er mættur aftur á landsmót með Nökkva frá Syðra-Skörðugili Morgunblaðið/Nína Guðrún Geirsdóttir Reynsla Jakob og Gróa frá Grímarsstöðum. Jakob keppir á verðlaunahestinum Nökkva á landsmótinu. Nökkvi var vant við látinn meðan á myndatöku stóð. Morgunblaðið/Eggert Stuð Setningarathöfn Landsmóts hestamanna var í gærkvöldi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir alþingismaður var meðal viðstaddra. Þá er komið að sjötta degi lands- móts og spennan magnast. Dagur- inn hefst með B-úrslitum í B-flokki gæðinga á aðalvellinum. Eftir það taka við B-úrslit í unglingaflokki og barnaflokki. Á kynbótavelli hefst dagurinn á yfir- liti stóðhesta og á skeiðbrautinni fara fram seinni umferðir 150 m og 250 m skeiðs. Um kvöldið verða verðlaun veitt fyrir hryssur á aðal- vellinum kl. 18:30. Beint þar á eftir verða B-úrslit í tölti og kvöldinu lýkur með ræktunarbússýning- unum sívinsælu. Um kvöldið verða kántrítón- leikar með Axel Ó. ásamt Rúnari F. og stórdansleikur í reiðhöllinni með fastagestunum Helga Björns og Reiðmönnum vindanna. Landsmót hestamanna 2018: Föstudagur Landsmót hestamanna 2018 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.