Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 1
Íbúð sem kostaði 25 milljónir sumarið 2015 kostar nú um
33 milljónir króna Sala á dýrari eignum hefur margfaldast
25 millj. á höfuðborgarsvæðinu. Til
samanburðar seldust 1.940 slíkar
eignir frá apríl 2014 til mars 2015.
Samhliða seljast fleiri dýrar eign-
ir. Þannig seldist 31 eign á yfir 90
milljónir frá apríl 2014 til mars 2015
en 194 eignir frá mars 2017 til
febrúar 2018. Það er sexföldun.
„Vegna aldursdreifingar þjóðar-
innar eru margir fyrstu kaupendur
að koma á markaðinn. Þá er mikill
aðflutningur erlendra ríkisborgara.
Hvort tveggja ýtir undir eftirspurn
eftir ódýrari íbúðum. Það birtist í því
að eftirspurnin er að færast úr
miðbæ Reykjavíkur yfir á svæði eins
og Kópavog og Helgafellslandið,“
segir Magnús Árni um áhrifin af litlu
framboði ódýrari íbúða. »22
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúðir fyrir fyrstu kaupendur hafa
hækkað mikið í verði síðustu ár.
Íbúðir sem kostuðu 25 milljónir
króna fyrir þremur árum kosta nú 33
milljónir. Lægri vextir og meiri
kaupmáttur skýra þessar verðhækk-
anir að hluta.
Þetta segir Magnús Árni Skúla-
son, hagfræðingur hjá Reykjavík
Economics, og vísar til greiningar
sinnar á markaðnum. Bendir hún til
þess að frá mars 2017 til febrúar
2018 hafi selst 113 fasteignir á undir
Vitnar um hækkanir
» Verðlag hækkaði um 5,8%
frá júlí 2015 til júlí 2018.
» Miðað við hækkun vísitölu
íbúðaverðs hefur 25 milljóna
króna íbúð hækkað um 32%, í
33 milljónir, á sama tímabili.
Fyrstu kaup mun dýrari
F I M M T U D A G U R 2 6. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 174. tölublað 106. árgangur
LIFIR Á LEIKLIST
Í HARÐRI
SAMKEPPNI
HURÐARÁS
UM AXL
HARLEY MILLI
STEINS OG
SLEGGJU
GUNS N’ ROSES 58 VIÐSKIPTAMOGGINN
Mannanafnanefnd veitti Sæmundi
Pálssyni, fyrrverandi lögregluþjóni
og best þekktum sem lífverði
Bobby Fischer, nýlega heimild til
þess að breyta nafni sínu í Sæmi
Rokk, eins og hann hefur verið
kallaður síðan á unglingsárum
þegar hann vakti athygli sem
rokkdansari. Nafnið Sæmi fékk
samþykki nefndarinnar fyrir
nokkrum árum og nú í vetur, þeg-
ar Sæmi sótti um Rokk sem auka-
nafn, þar sem það uppfyllti öll skil-
yrði og reglur varðandi málhefð og
beygingarreglur íslenskrar tungu,
varð nefndin við beiðni hans þar
um.
„Það var mjög gaman að fá já-
kvætt bréf frá mannanafnanefnd,
segir Sæmi Rokk sem verður 82
ára eftir nokkra daga en er enn í
fullu fjöri; dansar, spilar og syndir.
Hann segir að nú verði nafni sínu
á öllum formlegum pappírum
breytt; Sæmundur verður Sæmi og
Rokk er hljómmikið millinafn. »4
Sæmi Rokk
heitir hann
Mannanafnanefnd
samþykkti umsóknina
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Rokkdansarinn Undir nýju nafni
og er orðinn 82 ára gamall.
Nýverið sett-
ist Jóhanna
Bárðardóttir í
stjórn félagsins
Einstakar mæð-
ur. Það gerði
hún eftir að
hafa eignast
soninn Bárð
Breka. Í félag-
inu eru konur
sem valið hafa
að eignast börn upp á eigin spýt-
ur, með tæknifrjóvgun eða í
gegnum ættleiðingu einar síns
liðs.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag
ræðir Jóhanna um aðdraganda
þess að hún eignaðist barnið sem
hún hafði svo lengi látið sig
dreyma um, en það ferli fólst
meðal annars í því að velja sæðis-
gjafa í samnorrænum gagna-
grunni. »46
Lét drauminn rætast
Jóhanna
Bárðardóttir
AUDI FINN Í LOS ANGELES 12
Mannbjörg varð þegar eldur kom upp
í strandveiðibátnum Sólu GK-36 um
átta sjómílur norður af Kögri á Vest-
fjörðum í gærmorgun.
Skipstjóri bátsins, Reynir Gunn-
arsson, var einn í bátnum á handfæra-
veiðum og hafði samband við Land-
helgisgæsluna um klukkan 9.40 og
tilkynnti að kviknað hefði í bátnum.
Að sögn Halldórs Óla Hjálmars-
sonar, hjá svæðisstjórn Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á svæði 7, fór
björgunarskipið Gunnar Friðriksson
frá Ísafirði að flakinu, en þá hafði
Reynir náð að koma sér í gúmmí-
björgunarbát. Honum hafði verið
bjargað þaðan um borð í strandveiði-
bátinn Smára ÍS-144 sem hafði verið
á handfæraveiðum um eina sjómílu
frá slysstaðnum, en nærstaddir bátar
voru beðnir um að halda þegar á stað-
inn. Auk þess voru björgunarskip
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
kölluð út ásamt þyrlu Landhelgis-
gæslunnar.
Að sögn Reynis var báturinn orð-
inn alelda áður en björgunarskipið
kom og sökk þegar tilraun var gerð til
að reyna að slökkva í flakinu. Hann
kveðst telja, í samtali við Morgun-
blaðið, að eldurinn hafi kviknað í stýr-
ishúsi bátsins, en lítill tími hafi gefist
til að hugsa því eldurinn hafi breiðst
hratt út. Ekki gafst tími til að klæða
sig í flotgalla, en honum tókst að losa
og komast í gúmmíbjörgunarbátinn
þar sem hann náði að hringja úr far-
síma sem hann hafði haft í brjóstvas-
anum.
Ljósmynd/Björgunarsveitin Ernir Bolgungarvík
Eldurinn breiddist hratt út
Mannbjörg varð þegar strandveiðibáturinn Sóla GK 36 brann norður af Kögri á
Vestfjörðum Komst í björgunarbát Sökk þegar reynt var að slökkva eldinn
Bruni Reynir Gunnarsson bjargaðist.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson