Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir
í fötum
Ný sending af
glæsilegum
jakkafötum frá
Frábært úrval!
B E C K
U O M O
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Fjórir íslenskir íþróttamenn hafa
tekið höndum saman með stuðningi
Toyota á Íslandi undir yfirskriftinni
„Start your impossible“. Er mark-
mið þeirra að komast á ólympíumót
fatlaðra í Tókýó í Japan árið 2020.
Íslensku íþróttamennirnir eru
Arna Sigríður Albertsdóttir (hand-
hjólreiðar), Már Gunnarsson (sund),
Stefanía Daney Guðmundsdóttir
(400 metra hlaup & langstökk) og
Patrekur Andrés Axelsson (100 og
200 metra spretthlaup).
Samstarfssamningur
Toyota á Íslandi undirritaði á
dögunum samstarfssamning við
Íþróttasamband fatlaðra, einn þann
viðamesta sem fyrirtækið hefur
tekið þátt í síðustu áratugi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Toyota tekur fyrirtækið þátt í
þessu verkefni vegna þess að ól-
ympíuviðburðir snúast um hreyf-
anleika, burtséð frá aðstæðum og
líkamlegu atgervi þeirra íþrótta-
manna sem þar keppa, og markmið
ólympíuhugsjónarinnar – að nýta
íþróttir í þágu samlyndrar framþró-
unar mannkyns. Þetta slái sameig-
inlegan tón með markmiðum og
gildum Toyota.
Íþróttafólkinu fylgt eftir
Morgunblaðið mun fylgja þessum
fjórum íþróttamönnum eftir næstu
árin, meðal annars með viðtölum
við þau og fréttum á samfélags-
miðlum, í Morgunblaðinu og á
mbl.is. Eins verða sýnd myndbönd
sem gefa dýpri innsýn í heim
íþróttamannanna og hvernig þeim
gengur að ná þeim markmiðum
sem þau stefna að.
Ætla á ólympíumót í Japan
Fjórir fatlaðir íþróttamenn „stefna að hinu ómögulega“ í Tókýó árið 2020
Viðamikill samstarfssamningur Íþróttasambands fatlaðra og Toyota á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ætla á ÓL Íþróttafólkið Már Gunnarsson, Patrekur Andrés Axelsson, Stefanía Daney Guðmundsdóttir og Arna Sig-
ríður Albertsdóttir, sem stefna að þátttöku í ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í Japan eftir tvö ár.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mannanafnanefnd samþykkti um-
sóknina og ég er alsæll,“ segir
Sæmi Rokk. Hann hét lengst Sæ-
mundur og er Pálsson en nú hefur
breyting orðið. Í kringum áttræðis-
afmælið fyrir tveimur árum lét
hann að áeggjan góðra vina á reyna
hvort breyta mætti nafni sínu. Fyr-
ir lá úrskurður mannanafnanefndar
frá 2014 sem heimilaði nafnið
Sæmi. Þar með var málið hálfnað.
Tvistaði til þess að gleyma
Við yfirferð nefndarinnar síðasta
haust reyndist ekkert því til fyrir-
stöðu að heimila nafnið Rokk, enda
félli það að íslenskri málhefð og
beygingarreglum sem er frumskil-
yrði samþykktar og skráningar í
mannanafnaskrá. Niðurstaða: Sæmi
Rokk Pálsson.
En fyrst örlítið um manninn.
Fyrir sextíu árum eða svo, þegar
rokktónlistin fór að hljóma, sté
Sæmi sporin svo aðdáun vakti.
Dansparið Sæmi rokk og Didda,
Jónína Karlsdóttir, voru stjörnur
síns tíma. Þá fór orð af því að þeg-
ar lögregluþjónninn Sæmi mætti á
vettvang hefði lauflétt danssýning
með nokkrum rokkskrefum stund-
um gjörbreytt andrúmsloftinu og
róað mannskapinn. Þá sést Sæma
bregða fyrir í Stuðmannamyndinni
Með allt á hreinu hvar hann hét
reyndar Óliver Tvist sem sagðist
tvista til þess að gleyma.
Breytt í Þjóðskrá
Þessu til viðbótar er Sæmi bygg-
ingameistari að hundruðum húsa á
höfuðborgarsvæðinu en þó best
þekktur sem fylgdarmaður og líf-
vörður skáksnillingsins Bobby Fisc-
her í heimsmeistaraeinvíginu í skák
árið 1972. Þá myndaðist með þeim
vinátta sem lengi varði. Átti Sæmi
mikinn þátt í því að frelsa Fischer
úr fangelsi í Japan en forsenda
þess var íslenskur ríkisborgara-
réttur.
„Já, fólk var alltaf að stinga að
mér að ég ætti að láta breyta nafn-
inu enda þekkja mig flestir sem
Sæma Rokk,“ segir hann. „Þegar
til kom reyndist þetta ekki vera
neitt mál og það var gaman að fá
jákvætt bréf frá mannanafnanefnd.
Nú fer þessi breyting inn í Þjóð-
skrána og þá breytist nafnið í öllum
formlegum pappírum. Raunar hafa
margir í minni fjölskyldu látið
breyta nafninu sínu, svo sem dætur
mínar tvær; Sigríður bætti við
nafninu Arna, Hildur heitir nú Vera
að millinafni og Júlía dóttir hennar
setti til viðbótar inn nafnið Hera.“
Dansar og fer í sund
Sæmi verður 82 ára eftir nokkra
daga og er enn í fullu fjöri. Dansar,
spilar bridds og golf og fer í sund.
Á næstunni eru þau Ásgerður Ás-
geirsdóttir kona hans svo á leiðinni
til Alicante á Spáni, „Þar höfum við
lengi átt sumarhús og ætlum nú að
vera þar fram undir jól,“ segir
Sæmi Rokk að lokum.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sveifla Sæmi Rokk stígur dansspor á stofugólfinu heima. Lífsgleðin skín úr augunum og það er engin leið að hætta.
Hann heitir Sæmi Rokk
Mannanafnanefnd gaf jákvætt svar Lífvörður Fischer
og þjóðþekktur dansari fær nýtt nafn 82 ára í góðu formi
Síminn hf. hefur lagt inn frekari
gögn til Samkeppniseftirlitsins í
tengslum við auglýsingasölu RÚV í
kringum HM í sumar. Eins og
Morgunblaðið greindi frá fyrr í
þessum mánuði sendi RÚV auglýs-
ingasamningspakka á fyrirtæki þar
sem þeim var boðið að kaupa „að
lágmarki“ auglýsingar fyrir 10 millj-
ónir króna í júní og júlí. Síminn
kvartaði af þeim sökum til Sam-
keppniseftirlitsins þar sem hann
taldi RÚV hafa brotið lög um aug-
lýsingasölu.
Í kjölfarið sendi Samkeppniseft-
irlitið frá sér frummat þar sem kom
fram að RÚV hefði ekki gerst brot-
legt við samkeppnislög. Símanum
var þó gefið færi á því að leggja
fram frekari gögn í málinu sem hann
hefur nú gert. Meðal gagna sem fyr-
irtækið leggur fram eru tölvupóstar,
sölugögn RÚV og auglýsingasamn-
ingar. Þá bendir Síminn einnig á það
að RÚV hafi það sem af er ári nýtt
sér sérhvern „stórviðburð“ til að
skilyrða um lágmarkskaup auglýs-
inga. Nefnir Síminn í því samhengi
EM í handbolta í janúar, Eurovision
og HM í knattspyrnu.
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri sölusviðs hjá Síman-
um, segist ekki eiga von á öðru en að
Samkeppniseftirlitið úrskurði Sím-
anum í hag enda sé málið að hans
mati fullsannað.
„Það sem við lögðum einna helst
áherslu á voru sölugögn RÚV þar
sem kemur mjög skýrt fram hvernig
þeir þvinga fram lágmarkskaup aug-
lýsinga frá fyrirtækjum. Það á ekki
einungis við um HM í sumar heldur
alla þeirra stórviðburði,“ segir
Magnús. aronthordur@mbl.is
Hafa lagt fram
frekari sannanir
Síminn kvartar undan háttsemi RÚV
Búið var að fella 35 hreintarfa í
fyrradag frá því að veiðar hófust
15. júlí. Sex veiðimenn voru á veiði-
slóð í gær en ekki hafði frést hvern-
ig þeim hafði gengið þegar rætt var
við Jóhann G. Gunnarsson, sérfræð-
ing Umhverfisstofnunar á Egils-
stöðum, í gær. Hann er daglega í
sambandi við leiðsögumenn með
hreindýraveiðum og skráir veiðitöl-
ur sem lesa má á vefnum hrein-
dyr.is.
Veiðin fyrstu daga veiðitímans er
svipuð nú og undanfarin ár, að sögn
Jóhanns. Yfirleitt hefur viðrað
ágætlega til veiða það sem af er
þótt aðeins hafi orðið vart við þoku.
Hreindýrin virðast vera vel haldin
og 1-2 af törfunum sem búið er að
veiða eru yfir 100 kg að fallþyngd.
Heimilt er að veiða allt að 1.450
hreindýr á þessu ári, 1.061 kú og
389 tarfa. Veiði á hreinkúm hefst 1.
ágúst og stendur almennt til 20.
september. Leyft verður að veiða
40 kýr af kvótanum á svæði 8 í nóv-
ember. Jóhann segir mikilvægt að
þeir sem eru með leyfi fyrir
hreinkú nýti tímann vel og dragi
það ekki lengi að fara á veiðar.
gudni@mbl.is
Búið að
fella 35
hreintarfa
Almennt hefur
viðrað vel til veiða