Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Mix & Match
sundföt
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
ÚTSALA
50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
SUMAR
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
MEIRI OG MEIRI
AFSLÁTTUR
DimmalimmReykjavik.is
Útsala
Útsala
Enn meiri
afsláttur
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
50-60%
afsláttur
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Venus NS, skip HB Granda, vinnur
að löndun á rúmum 600 tonnum af
makríl á Vopnafirði. Er það öllu
minni afli en veiddist fyrir viku, en
þá var makrílaflinn upp á 750 tonn.
Fengust tonninn 600 hjá Venusi í
fimm hollum og er fiskurinn af
sömu stærðargráðu og áður, eða á
bilinu 420-440 grömm. „Það var
svona blettótt veiði og minna að
sjá,“ sagði Kristján Þorvarðarson,
skipstjóri á Venusi NS, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær
og var þá verið að vinna að löndun.
Aðspurður segir Kristján að fisk-
urinn virðist vera að færast austur
með kantinum.
Jóna Eðvalds SF, skip Skinn-
eyjar-Þinganess, kom að höfn í
gærnótt með 550 tonn af makríl,
sem fékkst í tveimur hollum, sagði
Sigurður Bjarnason, skipstjóri á
Jónu Eðvalds SF, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Þetta
var annar túr skipsins á makrílveið-
unum í sumar, en í fyrsta túr feng-
ust 600 tonn. Stefnir skipið aftur út
á miðin síðdegis í dag, segir Sig-
urður aðspurður.
Í gær var Ásgrímur Halldórsson
SF, skip Skinneyjar-Þinganess, við
veiðar suðaustur af landinu og Kap
VE, skip Vinnslustöðvarinnar, var
við veiðar sunnan Vestmannaeyja.
Þá stefndi Hoffell SU, Loðnuvinnsl-
unni, að heimahöfn á Fáskrúðsfirði.
600 tonna afli hjá Venusi NS
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Vertíð Venus NS, skip HB Granda, hefur veitt vel á fyrstu vikum makríl-
veiðanna. HB Grandi er með um 20.000 tonna aflaheimild til makrílveiða.