Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Krónan
mælir með!
599 kr.pk.
Fylltir hamborgarar, 2x120 g
149 kr.pk.
Gestus snakk, 175 g
Gott með
borgaranu
m
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
A
uður Finnbogadóttir er
útskrifuð úr American
Academy of Dramatic
Arts og starfar sem leik-
kona í Los Angeles í
Bandaríkjunum undir listamannsnafn-
inu Audi Finn. Nýlega vann hún til
verðlauna á kvikmyndahátíðinni Festi-
gious sem besta leikkonan í óháðri (e.
indie) kvikmynd. Myndin, No Sur-
prises, hlaut þrenn verðlaun á fyrstu
hátíðinni sem hún tók þátt í. Auður
segir að nú bíði teymið sem kom að
myndinni eftir niðurstöðum frá fleiri
kvikmyndahátíðum. „Kærastinn minn,
sem býr líka hérna úti, skrifaði hand-
ritið og aðalhlutverkið fyrir mig og gaf
mér í Valentínusargjöf. Myndin kom
svo vel út að við ákváðum að senda
hana inn á nokkrar kvikmyndahátíðir.
Vonandi koma bara fleiri verðlaun í
hús.“
Hörð barátta í LA
Auður hefur fengið mörg tæki-
færi í skemmtanabransanum og eru
nú þegar tveir sjónvarpsþættir búnir
að ráða hana í áframhaldandi hlutverk.
„Einn þátturinn er nornaþáttur sem
heitir WitchHaven og hinn heitir The
Let Down og er um fyrrverandi her-
menn.“
Mikil samkeppni er í leiklistar-
bransanum í Los Angeles og segir
Auður að mikilvægt sé að sækja um
sem flest hlutverk. „Helsta vinnan er
að sækja um hlutverk, alla daga. Fara í
prufur, fara á alls konar námskeið og
víkka tengslanetið. Þetta er stöðug
vinna. Stundum fær maður fullt af
prufum og er að vinna alla daga en svo
koma dagar þegar ekkert er að gerast.
Þess vegna er mikilvægt að búa til sín
eigin tækifæri líka.“
Auður bætir við að starfið sé
mjög krefjandi og snúist mikið um að
vera réttur maður á réttum stað.
Dugnaður í að sækja um hlutverk gæti
stundum vegið þyngra en leiklist-
arhæfileikar og þá þurfi að hafa mik-
inn sjálfsaga. „Það er stöðug vinna að
sækja um næstu verkefni. Þetta er
samt svo ótrúlega gaman, því þegar
maður fær hlutverk á maður það svo
innilega skilið, eftir að hafa lagt helj-
arinnar vinnu á sig.“
Kvikmyndir og bíómyndir eru
ekki eina viðfangsefni Auðar, en hún
landaði nýlega hlutverki í söngleik sem
verður sýndur víða. „Við munum
ferðast með sýninguna um Bandaríkin
og Bretland, miðað við hvernig giggin
okkar eru. Þetta verður svaka ævin-
týri.“ Söngleikurinn, Bombshells,
fjallar um kvenímyndir í skemmt-
anabransanum og nokkrar af fræg-
ustu leik- og söngkonum samtímans,
þar má nefna Beyoncé, Donnu
Summer og Tinu Turner. „Þá erum við
að taka frægustu lögin þeirra. Allar
stelpurnar sem eru með mér eru bún-
ar að vera á Broadway og fleira og
eru þvílíkar dívur, það er því mjög
mikill heiður að fá að vinna með
þeim.“ Sýningin er komin í sölu og
stiklan væntanleg.
„Þetta er hlutverkið mitt“
Fjöldi leikkvenna sótti um aðal-
hlutverkin í Bombshells og var sam-
keppnin hörð. Auður ákvað að skella
sér í prufurnar. „Leikstjórinn sagði
að verið væri að leita að dívum og
súperstjörnum. Þetta kveikti í ein-
hverju hjá mér og þannig fór ég í
gegnum fyrstu prufurnar og komst
áfram. Svo fór ég til Íslands að heim-
sækja fjölskylduna mína og fékk þá
símtal um að ég hefði komist í loka-
prufu. Sex stelpur komust í hana en
einungis þrjár þeirra áttu að fá hlut-
verk, þannig að það voru helmings-
líkur á að ég dytti í lukkupottinn.
Lokaprufan átti að vera þremur tím-
um áður en ég lenti aftur í LA. Ég til-
kynnti leikstjóranum það og hann
ákvað að breyta dagsetningunni og
færði lokaprufuna aftur um einn dag,
fyrir mig. Þegar hann gerði það vissi
ég að ég ætti þetta hlutverk. Ég ákvað
að fara í prufuna og hugsa: þetta er
hlutverkið mitt.“ Viðhorfið skilaði sér
greinilega og hreppti Auður hlut-
verkið, ásamt tveimur öðrum leik-
konum.
Auður er vel kunn leikhúsinu og
lék t.a.m. í Borgarbörnum og öllum
Verzlóleikritunum á meðan hún stund-
aði nám þar. Aðspurð segir hún leik-
hús og kvikmyndaleik vera mjög ólík
svið. „Í leikhúsi eru allir áhorfendur
með þér um stund og þá þarf að sjá til
þess að allir í leikhúsinu heyri og sjái
til manns en í kvikmyndum fá áhorf-
endur að sjá leikarana í nærmynd. Þá
er mikilvægt að tjá sig í gegnum aug-
un og smækka líkamstjáningar og
vera náttúrulegri. Svo þarf líka að sjá
til þess að maður gerir sömu hreyf-
ingar frá öllum sjónarhornum sem eru
tekin upp svo að tökurnar passi saman
þegar myndin er klippt.“
Frábært í sólinni
Lífið í Los Angeles er sannarlega
frábrugðið lífinu á Íslandi að sögn Auð-
ar. „Þetta er allt öðruvísi og var í raun-
inni algjört menningarsjokk að koma
hingað. Auðvitað sakna ég Íslands en
það er alveg frábært að vera hérna í
sólinni. Ég er ekki í venjulegri 9 til 5
vinnu þannig ég þarf algjörlega að sjá
til þess að ég setji mér markmið fyrir
hvern dag og stjórna hvenær og hversu
mikið ég vinn daglega. Flestir vinir
mínir eru útskrifaðir úr sama skóla og
ég og vill svo til að við búum flest öll í
sömu blokk. Við stelpurnar deilum íbúð
og strákarnir búa fyrir ofan okkur, við
förum saman í kaffi, tökum tölvurnar
með og förum að vinna. Svo förum við á
ströndina þegar við eigum það skilið.
Sem stendur er ég að reyna að
taka eins mismunandi hlutverk að mér
og ég get til þess að sýna fjölbreyti-
leika. Ég get í hreinskilni bara verið
mjög ánægð með það að geta lifað af
því að leika.“
Lifir á leiklistinni í Los Angeles
Auður Finnbogadóttir
býr í Los Angeles og starf-
ar þar sem leikkona.
Hún hefur tekið að sér
ýmis hlutverk í sjónvarps-
þáttum og kvikmyndum
en nýlega vann hún verð-
laun fyrir leik sinn í kvik-
myndinni No Surprises.
Efnileg Auður hlaut verðlaun á hátíðinni Festigious fyrir leik sinn í kvikmyndinni No Surprises. Hún gengur undir listamannsnafninu Audi Finn í Los Angeles.