Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
„Við reyndum við þetta í júní en
hættum svo,“ segir Gunnar Berg-
mann Jónsson, framkvæmdastjóri
IP útgerðar sem gerir út bátinn
Hrafnreyði KO á hrefnuveiðar. Sex
hrefnur veiddust áður en veiðunum
var hætt en Hafrannsóknastofnun
telur óhætt að veiða 217 dýr á ári.
Gunnar segir að stækkun á frið-
uðu svæði á Faxaflóa geri hrefnu-
veiðimönnum erfitt fyrir. „Við þurf-
um að sækja miklu lengra út en áður.
Til þess þurfum við fleiri réttinda-
menn um borð og það eykur kostn-
aðinn,“ segir Gunnar um ástæður
þess að veiðum var hætt. Hann segir
að núverandi sjávarútvegsráðherra
virðist ekki ætla að breyta friðunar-
svæðinu sem forveri hans stækkaði.
„Það er erfitt að vera í eltingarleik
við annan hvern ráðherra sem sest
inn í ráðuneytið. Það er þreytandi að
þurfa alltaf að synda á móti straumn-
um,“ segir Gunnar og vísar til þess
að friðunarsvæðið hafi áður verið
stækkað.
Gunnar segir að kjötið af 6 dýrum
dugi ekki lengi á markaðnum hér og
segir að til greina komi að halda
áfram innflutningi frá Noregi.
Útgerðin er að huga að öðrum
verkefnum fyrir Hrafnreyði.
Aðeins sex hrefn-
ur veiddar í sumar
Dýrt að sækja út fyrir Faxaflóa
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hrafneyður Möguleikinn á að gera skipið út á sæbjúgu og skel er í athugun.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
innbyggðum gufugleypi
SpAnhellubORðmeð
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
lOSnAðu Við hÁfinn
Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til
margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru
með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu
hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest
um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni.
ÞÝSK VeRðlAunAhönnun
Sjámyndbönd á friform.is
5 ára ábyrgð á öllum raftækjum
fRÁbÆR
nÝjung
enginn hÁfuR
eKKeRtVeSen
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Lokað á laugardögum í sumar
að framleiða kindakjöt fyrir erlenda
markaði. Skýrsluhöfundar telja
mikilvægt að koma á jafnvægi milli
framboðs og eftirspurnar kindakjöts
og nefna að skoða þurfi leiðir til að
minnka framleiðsluna.
Útttektin nær til virðiskeðjunnar
„frá bónda í búð“. Það þýðir að fjallað
er um flutning sláturfjár, slátrun,
vinnslu kjöts, dreifingu og birgða-
hald. Hin eiginlega sauðfjárrækt er
þar fyrir utan sem og heildsala og
smásala afurðanna.
Niðurstöðurnar benda til að arð-
semi afurðastöðva sé óásættanleg.
Þannig var afkoma fimm fyrirtækja
af sjö neikvæð árið 2016. Í fyrra batn-
aði staðan eitthvað og var við núllið
hjá þeim afurðastöðvum sem skilað
hafa ársreikningum.
Skýrsluhöfundar segja að margt
bendi til að sláturhús séu of mörg og
þeim þurfi að fækka til að auka hag-
ræði í greininni. Fækkun afurða-
stöðva gæti aukið arðsemi ef slátur-
húsin sem eftir verða hefðu svigrúm
til að auka sjálfvirkni í framleiðsl-
unni.
Úrelding styrkt
Sá möguleiki er nefndur að stjórn-
völd stuðli að hagkvæmni með ein-
hvers konar ívilnunum, til dæmis
úreldingarstyrkjum. Ef ríkið hjálpaði
til við fækkun væri skynsamlegt að
huga að landfræðilegri legu slátur-
húsanna til að flutningur sláturgripa
verði ekki óhóflegur.
Þá er vakin athygli á miklum
kostnaði við birgðahald. Einnig er
getið um það að skoða mætti sam-
starf milli afurðastöðva um útflutning
til að hámarka verð, líkt og Skotar
hafa gert. Áður en farið verði að
framleiða til útflutnings þurfi að
komast á jafnvægi á milli framleiðslu-
kostnaðar og þess verðs sem fæst á
erlendum mörkuðum.
Borgar sig ekki að flytja út kjöt
Morgunblaðið/RAX
Kjötvinnsla Þörf er talin á því að fækka sláturhúsum til að hagræða í slátr-
un og vinnslu og skapa svigrúm til að auka sjálfvirkni og fækka starfsfólki.
Í úttekt ráðgjafarsviðs KPMG á virðiskeðju kindakjötsframleiðslunnar kemur fram að mikilvægt er
að draga úr framleiðslu Lagt er til að sláturhúsum verði fækkað til að auka hagræði í greininni
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framleiðslukostnaður kindakjöts
hér á landi er hærri en fæst fyrir vör-
una á erlendum mörkuðum að meðal-
tali. Því borgar sig ekki að framleiða
kjöt til útflutnings. Þetta kemur með-
al annars fram í niðurstöðum úttekt-
ar ráðgjafarsviðs KPMG á afurða-
stöðvum í sauðfjárrækt. Úttektin var
gerð fyrir atvinnuvegaráðuneytið.
Talið er mikilvægt að minnka fram-
leiðsluna og auka framleiðni, meðal
annars með fækkun sláturhúsa.
Fram kemur í skýrslunni að
ástæða offramleiðslu í greininni sé
bæði aukin framleiðsla á kindakjöti
og minnkandi neysla á hvern íbúa
landsins. Umframframleiðslu hefur
verið mætt með auknum útflutningi.
Það er ekki talið hagkvæm starf-
semi. Miðað við meðalverð í útflutn-
ingi og kostnað við flutning, slátrun
og greiðslur til bænda borgi sig ekki
Stjórnvöld munu fylgja því eftir
að hagræðing náist í virðiskeðj-
unni, að sögn Kristjáns Þórs Júl-
íussonar landbúnaðarráðherra,
enda beri skýrslan með sér að
mikil tækifæri séu til hagræð-
ingar. Niðurstöður skýrslunnar
verða notaðar við endurskoðun
búvörusamninga. Ráðherra segir
að leita þurfi leiða til að ná jafn-
vægi á milli framboðs og eftir-
spurnar kindakjöts.
Fylgt eftir
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA