Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Los Angeles. AFP. | Ashley Loring
hefur verið saknað í heilt ár, segir á
síðu á félagsvefnum Facebook, sem
henni er helguð. Loring er af þjóð-
flokknum Blackfeet í Montana. Hún
er námsmaður með fínlega drætti og
alvarlegt andlit.
Ieesha Nightpipe tilheyrir þjóð-
flokknum Rosebud Sioux frá Arizona
og hefur verið saknað í eitt og hálft
ár. Hún var eiturlyfjasjúklingur og
lenti í slæmum félagsskap. Toni,
systir hennar, óttast það versta.
Carolyn DeFord hefur leitað móð-
ur sinnar, Leonu Kinsey, í 18 ár.
„Móðir mín fór út í matvörubúð og
sneri aldrei aftur,“ segir DeFord.
Þessar þrjár konur eru úr hópi
þúsunda kvenna úr röðum indíána,
sem hverfa árlega í Bandaríkjunum.
Í fyrra skráðu bandarísk yfirvöld
5.700 slík mál og á þessu ári eru þau
orðin 2.750.
Vandinn er orðinn svo alvarlegur
að öldungadeild Bandaríkjaþings til-
einkaði 5. maí málefninu til að vekja
Bandaríkjamenn til vitundar um
vandann. Var dagurinn valinn í
minningu Hönnu Harris úr
cheyenne-þjóðflokknum, sem hvarf
2013. Hún fannst síðar látin og hafði
verið nauðgað.
Harmleikur annarrar konu, Sav-
annah Lafontaine, úr Spirit Lake-
þjóðflokknum, var kveikjan að frum-
varpi, sem ætlað er að bæta öflun
gagna og rannsókn þessara mála.
Lafontaine hvarf 21 árs gömul í
Norður-Dakóta og fannst síðar mjög
illa útleikin. Hún var komin átta
mánuði á leið.
Í fyrra kom út kvikmyndin Wind
River þar sem fjöldi listamanna vek-
ur athygli á ofbeldi gegn konum í
samfélögum frumbyggja.
„Þær finnast mjög sjaldan lifandi
og sumar finnast aldrei. Þetta eru
mest morð, en einnig mansal,“ segir
Annita Lucchesi, sem stundar menn-
ingarrannsóknir í Kaliforníu og hef-
ur hafist handa við að skrá morð og
hvörf kvennanna.
Lucchesi er frumbyggi og varð
fyrir kynferðislegri árás. Hún sagð-
ist hafa gert sér grein fyrir því þegar
hún vann að doktorsverkefni sínu að
umfang vandans var ekki ljóst.
Baráttusamtök segja að fyrirliggj-
andi tölur sýni ekki hvað staðan sé
alvarleg vegna þess að mun færri til-
felli séu tilkynnt til lögreglu en eigi
sér stað, einkum vegna tortryggni í
garð yfirvalda.
DeFord rekur upphafið til laga frá
1830 sem leyfðu stjórnvöldum að
semja við frumbyggja um að flytja
þá til landsvæða vestan árinnar
Mississippi í staðinn fyrir lönd
þeirra. Þeir voru þvingaðir til að fara
fótgangandi og létu þúsundir manna
lífið á leiðinni. Síðar voru frumbyggj-
ar lokaðir inni og börn sett í heima-
vistarskóla og bannað að tala tungu
sína.
Með áfallið í erfðaefninu
„Við erum með þetta áfall í erfða-
efninu,“ segir DeFord. „Heimilisof-
beldi er algengara hjá okkur og
sama á við um heimilisleysi og mis-
notkun vímuefna.
Fjórar af hverjum fimm konum úr
röðum frumbyggja, rúmar 1,5 millj-
ónir, eru fórnamlömb ofbeldis sam-
kvæmt könnun rannsóknarstofnun-
ar dómsmálaráðuneytisins frá 2010.
Einni af hverjum þremur konum
hefur verið nauðgað og er það meira
en tvöföld sú tíðni, sem er meðal
hvítra kvenna. Í sumum frum-
byggjabyggðum er tíðni morða á
konum tífalt hærri en landsmeðal-
talið.
Í flestum tilfellum er mökum
kvennanna um að kenna og oftast
eru þeir hvítir, samkvæmt niðurstöð-
um stofnunarinnar. Lögreglu í frum-
byggjabyggðum skortir þjálfun og
bolmagn til löggæslu á víðfemum og
oft afskekktum svæðum.
Kimberley Loring, syster Ashley,
segir að í byggð Blackfeet-þjóð-
flokksins gæti 18 lögreglumenn
6.000 km2 svæðis.
John Anderson, saksóknari í
Nýju-Mexíkó, segir að oft taki of
langan tíma fyrir laganna verði að
skerast í leikinn. Annar vandi sé að
lögregla á landi frumbyggja hafi að-
eins heimildir til að taka á frum-
byggjum, jafnvel þótt verknaður hafi
verið framinn í þeirra lögsögu.
Hverfa þúsundum saman
Svo rammt kveður að ofbeldi á hendur konum úr röðum frumbyggja í Bandaríkjunum að þingið
hefur látið málið til sín taka Tilkynnt um hvarf 5.700 kvenna í fyrra Finnast oftast látnar
AFP
Hvarf og var myrt Savannah Lafon-
taine var komin átta mánuði á leið
þegar hún hvarf. Hún fannst látin
ári síðar og hafði verið limlest.
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Yfir 150 eru sagðir hafa fallið í sjálfs-
vígs- og skotárásum vígamanna Rík-
is íslams í suðurhluta Sýrlands í gær.
Greinir fréttaveita AFP frá því að
vígamenn hafi meðal annars notast
við sjálfsvígssprengjuvesti.
Breskir starfsmenn mannrétt-
indasamtaka sem starfandi eru í
landinu segja fjóra sjálfsvígs-
sprengjumenn hafa sprengt sig í loft
upp í borginni Sweida. Á sama tíma
kváðu aðrar sprengingar við í nálæg-
um þorpum. „Vígamenn Ríkis íslams
ruddust því næst inn í þorp í norð-
austurhluta héraðsins og myrtu þar
fólk inni á heimilum sínum,“ sagði
Rami Abdel Rahman, starfsmaður
mannréttindasamtaka, við AFP. Eru
156 almennir borgarar sagðir hafa
týnt lífi í ódæðinu og 62 særst, sumir
þeirra lífshættulega.
„Þetta er mesta mannfall í hér-
aðinu Sweida frá upphafi átaka,“
bætti Rahman við. Í árásunum féllu
einnig 30 liðsmenn Ríkis íslams,
þeirra á meðal sprengjumennirnir.
AFP
Árás Vopnaðir öryggisverðir á vettvangi sjálfsvígssprengjuárásarinnar.
Mannskæðar sjálfs-
vígsárásir í Sweida
Yfir 150 almennir borgarar týndu lífi