Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Sprenging, sem varð
í Skatestraum-jarð-
göngunum í Noregi,
vekur spurningar um
hvort heppilegasta
lausnin til að taka á ör-
yggismálum Hvalfjarð-
arganga í eitt skipti fyr-
ir öll sé að grafa frekar
ný hliðargöng undir
fjörðinn í stað þess að
tvöfalda núverandi
göng. Nú fullyrða for-
svarsmenn Spalar að göngin muni
springa 2019 þegar þeir mæla með
tvöföldun þeirra, sem verður bara
ávísun á stóraukna slysahættu. Fram
kemur í umferðarspám að meðalum-
ferð ökutækja um Sundabraut verði
eftir 10-15 ár 32 þúsund bílar á dag.
Tímabært er að forsvarsmenn Spalar
svari því strax hvort Hvalfjarðar-
göngin þoli þennan heildarfjölda
mjög lengi og hvenær álagið sem
eykst alltof mikið verði komið að ystu
þolmörkum, ef þessar umferðarspár
standast. Búið er að leggja fram
frumhönnun nýrra hliðarganga sem
lagt er til að liggi samsíða núverandi
göngum. Þá yrði öryggi vegfarenda
enn betur tryggt í stað þess að þre-
falda slysahættuna sem tvöföldun
ganganna býður upp á. Ég spyr: Er
skynsamlegt að sveitarstjórnirnar á
Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu
láti sig þetta engu varða og horfi að-
gerðarlausar á þegar þungaflutning-
arnir sem eyðileggja vegina aukast
alltof mikið? Þeir sem ákvarðanir
taka án þess að standast
reikningsprófið eiga
mörgum spurningum
ósvarað og vita ósköp
vel að öryggi vegfarenda
verður best tryggt með
því að hafa umferðina á
þessu svæði í tvennum
aðskildum göngum. Eft-
ir öðrum leiðum klárast
dæmið aldrei. Þeir sem
telja ný hliðargöng und-
ir Hvalfjörð óþörf láta
sig öryggi vegfarenda
engu varða, þótt meðal-
umferð ökutækja verði
síðar meir 50 þúsund bílar á dag.
Í norsku Skatestraum-göngunum,
sem eru 1.900 metra löng, losnaði
tengivagn aftan úr olíuflutningabíl og
rakst utan í vegg. Með þessum flutn-
ingabíl voru fluttir 16.500 lítrar af
eldsneyti þegar óhappið varð. Önnur
spurning: Hvað hefðu margir beðið
bana í Hvalfjarðargöngum ef þessi
sami flutningabíll hefði verið þar á 80-
100 km hraða innan um níu þúsund
ökutæki sem meðalumferðin hefur
komist í á einum degi? Nítján manns
tókst að forða sér út úr göngunum í
Noregi án þess að alvarleg slys yrðu.
Þó voru sex fluttir á sjúkrahús eftir að
hafa andað að sér reyk. Árið 2016 kom
upp eldur í flutningabíl sem ekið var
inn í 11-12 km löng veggöng í Noregi.
Það vekur spurningar um hvort
óhjákvæmilegt sé að útbúa flóttaleiðir
með eldvarnarhurðum ef ráðist verð-
ur í framkvæmdir við 13-14 km löng
veggöng undir Fjarðarheiði sem
Seyðfirðingar berjast fyrir. Þriðja
spurning: Er þetta heppileg ganga-
Of mikil slysahætta í
Hvalfjarðargöngum
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
Snemma höfðu Ís-
lendingar iðgjaldafrítt
tryggingakerfi sem
var byggt á hlutfalls-
legri ábyrgð. Fyrsti
varnargarður var
hreppur, annar var
sýsla, þriðji var lands-
fjórðungur og sá síð-
asti var landið allt.
Hlutfallsleg ábyrgð
hefur lengst af haldist
eftir að þjóðfélagið þróaðist og fór
að safna rekstrarfé með þjóðnýtingu
frelsis í einhverri mynd (þ.e. skött-
um). Jafnvel hefur verið vilji til að
hlífa þeim sem verst eru settir, t. d.
með skattaþrepum og jöfnum per-
sónuafslætti svo eitthvað sé nefnt.
Nýlega virðist hafa orðið stefnu-
breyting hvað þetta varðar þegar
sett var nýtt framfærslugólf fyrir
aldraða og að ég hygg öryrkja líka.
Það lítur út fyrir að allir þeir sem
viðkomandi hópum tilheyra hafi um
leið verið skuldfærðir fyrir sömu
upphæð og rétturinn veitti þeim.
Jafnframt virðast öll uppsöfnuð
réttindi sömu tegundar hafa verið
þjóðnýtt neðan frá að svipaðri upp-
hæð sem jafngildir að sjálfsögðu
flötum nefskatti (þ.e. ríkir borga
sömu tölu og flestir
hinna). Þegar kemur
svo að þeim sem ekki
eiga uppsafnaðan rétt
fyrir skuldinni en
hyggjast bæta stöðu
sína með tekjuöflun
keyrir þó fyrst um
þverbak. Upphefst þá
innheimta svo svívirði-
leg að hátekjuskattur
þingmanna og ráðherra
og annarra ofdekaðra
hálaunamanna bliknar í
samanburði og virðist hjóm eitt.
Við, sem höfum haldið því fram að
það sé varasamt að hafa skatta of
háa af því að það dragi úr verð-
mætasköpun og auki undanskot og
jafnvel talið að oft geti skattalækk-
un aukið tekjur ríkisins, hljótum
þess heldur að hafna því að sjálfs-
bjargarviðleitni þeirra, sem mest
þurfa á henni að halda, sé drepin
með miklu hærri hlutfallslegum
álögum en nemur hæsta tekju-
skattsþrepi. Auk þess eru álögurnar
oft svo háar að þegar kostnaður
vegna vinnuþátttöku bætist við er
ávinningurinn af laununum enginn.
Það sjá allir að þetta getur aðeins
leitt af sér þrennt, þ.e. iðjuleysi,
svarta vinnu og þrælahald. Ekkert
þessara atriða telst til bóta fyrir
þjóðfélagið og vil ég því gefa þeim
sem hönnuðu og komu þessu kerfi á
falleinkunn. Næst þegar hátekju-
maður eða við hin vörum við of
háum sköttum munu margir hafa í
huga að þar geti verið á ferðinni of-
launuð afæta að verja hagsmuni
sína. Svo lengi lærir sem lifir.
Í samfélagi sem nýlega gekk í
gegn um efnahagslegt hrun og valdi
að endurlífga gjaldþrota banka með
flóknum og kostnaðarsömum sér-
meðferðum ... í samfélagi sem lét
seðlabanka sinn skapa dúnmjúkar
sérleiðir til að endurheimta fé sem
fjárhirðarnir fluttu úr landi í ferða-
töskum rétt fyrir hrun ... í samfélagi
sem tók sér fyrir hendur að leiðrétta
svonefndan forsendubrest þeirra
eignamanna sem uppvakningar
bankanna voru taldir hafa hlunn-
farið .... í samfélagi sem ætlar að
setja arðinn af orkuauðlindum sín-
um í sjóð sem einhver hugvitssamur
á eflaust eftir að hnupla í framtíðinni
ef að líkum lætur ... í samfélagi sem
telur sig ekki þurfa að nýta sinn
verðmætasta fiskistofn nema á hálf-
um afköstum – hlýtur að vera til
svigrúm til að halda uppi mannsæm-
andi tryggingargólfi án þess að
grípa til þeirra bolabragða sem hér
hefur verið lýst.
Lifið heil.
Skuldfært og þjóðnýtt
Eftir Sveinbjörn
Jónsson
Sveinbjörn Jónsson
» Það sjá allir að þetta
getur aðeins leitt af
sér þrennt, þ.e. iðju-
leysi, svarta vinnu og
þrælahald.
Höfundur er skipstjóri
og ellilífeyrisþegi.
svennij@simnet.is
Hlífar og undirföt
Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á
þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu
og hlýjum án þess að valda kláða.
Hlífarnar eru tilvaldar til hvers kyns útivista og
eins og hjólreiða, útihlaupa eða í golfið.
Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki
Y L F A
ANGÓRA
Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is
n þess að
m þurrum
íþrótta,
Allt um sjávarútveg