Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
8.997
Verð áður 14.995
ECCO KNOXVILLE
HERRASKÓR
Brenndur brie
1 stk. brie
3 cl viský
Efsta lagið af brie-ostinum er
skorið eins þunnt af og hægt er.
Síðan er hann settur á disk/form
sem þolir 180°C.
Síðan er viskýinu hellt yfir og
kveikt í.
Balsamico-hindber
1 box hindber
150 ml vatn
150 ml hvítt balsamik-edik
200 gr. sykur
Nokkur rósapiparkorn
Soðið upp á vatninu, balsamikinu
og sykrinum. Þá eru rósapip-
arkornin mulin út í. Látið kólna al-
veg niður áður en hindberin fara út
í. Best er að láta þau liggja í 4-5
klst.
Stökkt brauð
1 stk. Ciabatta-brauð
1 dl sítrónuolía
Brauðið er skorið í örþunnar
sneiðar, best er að gera það með ör-
lítið frost í brauðinu. Þá er það
penslað með sítrónuolíunni á báð-
um hliðum og bakað í ofni á 160°C í
um það bil 7 mínútur, eða þar til
það er gullinbrúnt og stökkt.
Jarðarberja- og appelsínusulta
3 bollar jarðarber
2 stórar appelsínur
3 bollar sykur
½ tsk. xanthan gum
Jarðarberin skorin, appelsínan
zestuð og síðan djúsuð, sett í pott
með sykrinum. Soðið niður á lágum
hita þar til hún er farin að þykkna
vel. Í lokin er xanthan gum bætt út
í og sultan maukuð.
Djúpsteikur brie
2 stk. brie-ostur – því trúðu mér einn
ostur er ekki nóg!
4 msk. fíkjusulta
Hveiti
Egg
Panko-raspur
Brie-osturinn er tekinn og gat
skorið í miðjuna á honum, gatið er
síðan fyllt með fíkjusultunni. Ost-
urinn er þá frystur í minnsta kosti 3
tíma. Þegar osturinn er frosinn er
hann tekinn og panneraður, en best
er að fara aðeins öfuga leið á hann
til að fá sem stökkasta húð á hann.
Byrjað er á smá eggi, síðan hveiti,
síðan aftur egg og svo panko. Ost-
urinn er síðan djúpsteikur á 190°C
þar til hann er gullinbrúnn, en ost-
urinn þarf helst að vera frosinn
þegar hann fer ofan í djúpsteiking-
arpottinn því annars er séns á að
hann leki í gegnum raspinn út í
pottinn.
Fíkjusulta
400 gr. fíkjur
250 gr. sykur
150 ml vatn
Nokkrir dropar af hvítu balsamik-
ediki.
Fíkjurnar eru skornar smátt og
settar í pott með sykrinum og vatn-
inu, soðið niður á lágum hita vel og
lengi, sultan á að vera vel þykk. Í
lokin er edikið sett út í og látið malla
með í ca. 2 mínútur. Síðan er sultan
maukuð og kæld.
Ananas-salsa
1 stk. ananas
½ stk. rauðlaukur
1 stk. rauður chili
1 dl kóríander
1 stk. lime-zest og safi
Salt
Ananasinn er skorinn smátt, þá er
hann steiktur á pönnu með örlítilli
olíu, en bara rétt aðeins til að ná
fram sætunni í honum, hann á ekki
að verða brúnn eða svartur að lit.
Ananasinn er kældur aðeins niður
og á meðan er laukurinn, chili-inn og
kóríander skorið mjög smátt. Síðan
er öllu blandað saman og smakkað
til með lime-zesti, safanum og salti.
Eldbakaður ostur
Meistarakokkurinn Aníta Ösp Ingólfsdóttir, sem jafnframt
er yfirmatreiðslumeistari á RIO Reykjavík, galdrar hér
fram fyrir okkur tvo einfalda rétti sem eru vísir til að létta
lundina í annars grámyglulegu sumarskammdeginu. Brie
bragðast sérstaklega vel í rigningu, ekki síst þegar búið
er að flambera hann eftir kúnstarinnar reglum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldmeistarinn Aníta Ösp Ingólfs-
dóttir flamberar osta eins og enginn
sé morgundagurinn.
Djúpsteikt dá-
semd Það er fátt
sem toppar þennan
dásemdarrétt.
Bráðinn brie Bræðir bragðlaukana.
Djúsí súkkulaðikaka
2 bollar hrásykur eða venjulegur
1¾ bolli hveiti
¾ bolli ósætt kakó
1½ tsk. lyftiduft
1½ tsk. matarsódi
1 tsk. salt
2 egg
1 bolli mjólk
½ bolli olía (ég notaði kókosolíu)
2 tsk. vaniludropar
1 bolli soðið vatn
Forhitið ofninn í 175 gráður.
Smyrjið kökumótið með smjöri
eða olíu. Annaðhvort má gera eina
væna tertu eða setja deigið í tvö
minni mót og hafa hana tveggja laga.
Í stóra skál skal blandað saman
sykri, hveiti, kakói, matarsóda, lyfti-
dufti og salti. Hrærið þurrefnunum
saman.
Næst fara eggin, mjólk, olían og
vanillan saman við. Hrærið þessu vel
saman. Að lokum fer vatnið saman
við. Deigið verður nokkuð þunnt.
Hellið deiginu í formið eða formin
og bakið 30-35 mínútur eftir þykkt
tertunnar. Gott er að nota prjón eða
tannstöngul til að stinga í tertuna.
Hún er tilbúin þegar prjóninn kem-
ur deiglaus út.
Kælið kökuna í 10 mínútur áður
en kakan er fjarlægð úr mótinu. Lát-
ið tertuna kólna alveg áður en krem-
ið er sett á en það má nota nánast
hvaða kremuppskrift sem er.
Athugið að ef það er einn stór
botn bakaður þarf að baka hann 10-
15 mínútum lengur.
Krem
350 g smjör
350 g flórsykur
250 g rjómaostur
100 g kakó
200 g brætt suðursúkkulaði
2 msk. kaffi, líkjör eða vatn eftir tilefni.
1 tsk. salt
1 msk. rjómi
1 dl saltkaramellusósa – tilbúin eða
heimagerð.
Aðferð:
Þeytið smjörið vel upp (hafið það
við stofuhita þegar þið hefjist
handa).
Sáldrið flórsykrinum rólega sam-
an við.
Bætið rjómaostinum (við stofu-
hita) saman við og þeytið vel.
Takið einn þriðja af kreminu frá.
Bætið við eftirstöðvarnar kakói,
bræddu súkkulaði og vökva.
Kremið sem tekið var frá fær svo
smáaðstoð frá vini sínum salt-
karamellunni. Bætið sósunni varlega
við með sleikju og bætið við salti ef
ykkur finnst vanta. Þetta krem fer
svo á milli botnanna tveggja.
Samsetning:
Gætið þess að kökubotnarnir hafi
kólnað alveg. Það má vel gera þá
með dags fyrir og pakka þeim inn í
plastfilmu eða loftþéttan poka/box
til að tryggja að botnarnir þorni ekki
upp.
Setjið saltkaramellukremið á milli
botnanna. Athugið að þeir eru mjög
þykkir og þola vel af kremi. Því næst
er kakan hulin með súkku-
laðikreminu og skreytt með sköp-
unargáfu og gleði! Auðvelt leið er að
skella glitrandi pappastjörnum á
kökukrúttið.
Vinsæl og veit af því
Vinsælasta súkkulaðiterta matarvefjarins 2017 heldur áfram frægðarför sinni.
Dyggur lesandi sendi okkur þessa fallegu mynd af tertunni í delux-afmælis-
útgáfu með súkkulaði og saltkaramellukremi.
Morgunblaðið/TM
B-O-B-A Þessi kaka
er algjör bomba
enda var hún vin-
sælasta kakan á
Marvefnum í fyrra.