Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 58
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Síðast þegar ég sá Guns N’ Roses
voru þeir aukanúmer á stórri tón-
leikahátíð í Bretlandi; stigu á svið
í Donington-garði laust eftir há-
degi, þokkalega brattir og hituðu
upp fyrir Megadeth, David Lee
Roth, Kiss og eftirlæti heima-
manna á þeim tíma, Iron Maiden.
Þetta var fyrir réttum þrjátíu ár-
um, í ágúst 1988, og hefði einhver
sagt mér þá að öllum þessum ár-
um síðar ætti bandið eftir að taka
strauið hingað norður í fásinnið og
efna til stærstu tónleika Íslands-
sögunnar hefði ég rekið viðkom-
andi kinnhest og sagt honum að
taka sér tak í þessu lífi.
Ekki svo að skilja að Guns N’
Roses hafi verið með allt lóðbeint
niðrum sig á Donington; þeir
stóðu sig alveg hreint prýðilega.
Það voru bara svo mörg málm-
bönd á þessum tíma sem voru
margfalt líklegri til að sigra heim-
inn og halda flösufeykjum við efn-
ið næstu ár og áratugi. Þetta eft-
irmiðdegi mun þó aldrei deyja en
hluti myndbandsins við Paradise
City var tekið þarna upp; seinni
parturinn sem er í svart/hvítu,
fyrir þá sem þekkja til. Ef vel er
að gáð má meira að segja sjá und-
irritaðan í mannhafinu, sautján
ára og sveittan. Nei, látið mig
ekki bulla í ykkur!
Hvað hefur gerst?
Hinir listamennirnir sem nefnd-
ir voru hér að framan eru allir í
fullu fjöri, líka þýska sprett-
málmbandið Helloween, sem kom
á undan Guns N’ Roses á Don-
ington-hátíðinni. Enginn þeirra
kæmist þó nálægt því að draga á
þriðja tug þúsunda Íslendinga í
Laugardalinn á drungalegu sum-
arkvöldi árið 2018. Iron Maiden
gæti mögulega skrapað saman
átta þúsundum á góðum degi og
sagan hefur kennt manni að van-
meta ekki Kiss. Helloween, Mega-
deth og David Lee Roth myndu
rúmast í Fólkvangi á Kjalarnesi;
ef Dagmar húsvörður myndi þá
nenna að hleypa þeim inn. Fyrst
yrðu þeir alla vega að taka af sér
skóna.
En hvað hefur eiginlega átt sér
stað í millitíðinni? Hvers vegna
gnæfir Guns N’ Roses yfir öll önn-
ur málmbönd á því herrans ári
2018, nema mögulega Metallica?
Stutta svarið er einfalt: Ekkert!
Alltént ef horft er til sköp-
unarmáttar og afkasta. Tvískífan
Use Your Illutions kom raunar út
1991, með óhemjumörgum lögum
og einhverjum smellum, einkum
ballöðum, en síðan hefur af-
skaplega fátt verið að frétta. Ein
pönkábreiðuplata löðrandi í hveiti-
lengjum og ein með frumsömdu
efni eftir lengstu meðgöngu tón-
listarsögunnar. Þá voru allir upp-
runalegu meðlimirnir raunar rokn-
ir burt, flestir með hurðaskellum,
nema söngvarinn sjálfur, W. Axl
Rose. Sú ágæta skífa, Chinese De-
mocracy, sem fagnar tíu ára af-
mæli sínu í ár, sneiddi raunar hjá
öllum nema grjóthörðustu aðdá-
endum bandsins. Ég leyfi mér að
fullyrða að enginn hafi stefnt
skónum í Dalinn í fyrrakvöld sér-
staklega út af því efni.
Ef þetta er ekki uppskrift að af-
dönkun, veit ég ekki hvað. Sam-
kvæmt öllum lögmálum rokksins
ætti Guns N’ Roses að vera horfin
í gleymskunnar dá eða í besta falli
tóra sem fölnaður spéspegill af
sjálfri sér. Svo er ekki. Og býsna
langt frá því.
Kemur þar einkum tvennt til.
Annars vegar hefur frumburður
bandsins og erkiafurð, Appetite
for Destruction, elst betur en
nokkur maður þorði að vona – og
eftir atvikum efni af Use Your Ill-
utions líka. Hins vegar er það
þessi frægasta illdeila rokksög-
unnar; á milli W. Axl Rose og gít-
arleikarans Slash sem eyddu ekki
prívat orði hvor á annan í tvo ára-
tugi. Skyrptu bara slími og drullu
í fjölmiðlum. Það er engin tilviljun
að túrinn sem rann sitt skeið á
Laugardalsvelli í fyrrakvöld er
kallaður Ekki í þessu lífi (Not In
This Lifetime). Allir og meira að
segja amma þeirra, sem þó er vel-
viljuð og friðelsk að upplagi, voru
löngu búnir að gefa upp alla von
um að þeir kumpánar myndu
nokkurn tíma slíðra sverðin. Svo
gerðist það óvænt fyrir rúmum
tveimur árum og heimsbyggðin
sprakk úr áhuga og eftirvæntingu.
Morgunblaðið/Valli
Skraut Þessi ágæti skriðdreki, ellegar skrúðdreki, þandi sig í upphafi.
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Hurðarás um Axl
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Ryðfrí festing eðaWifi
búnaður fylgir með
öllum varmadælum
til ágúst loka