Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 68
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Íslensk stúlka slær í gegn í Köben
2. Íslensk ofurpör
3. Rose kom Arnari á óvart
4. Gæti hangið þurr heilan dag
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leikarinn Björn Thors mun fara
með aðalhlutverkið í leiksýningunni
Bæng! sem verður frumsýnd á Nýja
sviði Borgarleikhússins í apríl á
næsta ári. Leikritið er eftir Marius
von Mayenburg en hann er eitt þekkt-
asta núlifandi leikskáld Þjóðverja.
Í Bæng! segir af undrabarninu
Hrólfi Bæng sem fæðist fullskapaður,
heiltenntur og altalandi og reiðubú-
inn til þess að heilla alla upp úr skón-
um. Ekkert getur hindrað Bæng í að
ná á toppinn, hvorki konur né útlend-
ingar, Evrópusamþykktir né almenn
velsæmismörk og hann mun breyta
heiminum hvort sem fólki líkar það
eða ekki.
Með önnur hlutverk í sýningunni
fara Brynhildur Guðjónsdóttir, Davíð
Þór Katrínarson, Halldór Gylfason,
Hjörtur Jóhann Jónsson og Katla
Margrét Þorgeirsdóttir. Leikstjóri er
Gréta Kristín Ómarsdóttir og þýðandi
Hafliði Arngrímsson.
Morgunblaðið/Ófeigur
Björn leikur Hrólf
Bæng í Bæng!
Enska tónlistarkonan Imogen Heap
heldur tónleika í Háskólabíói 9. októ-
ber næstkomandi ásamt enska tón-
skáldinu og tónlistarmanninum Guy
Sigsworth sem var á árum áður liðs-
maður hljómsveitarinnar Frou Frou.
Heap hefur náð langt í tónlistarheim-
inum upp á eigin spýtur, hefur nýtt
sér möguleika stafrænn-
ar tækni og sam-
skiptaleiðir netsins og
fer léttilega milli tón-
listargreina. Hún hef-
ur hlotið Grammy-
verðlaun og þykir
einkar áhugaverð-
ur lagahöfundur.
Imogen Heap heldur
tónleika á Íslandi
Á föstudag Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning á
Austfjörðum og suðaustantil, en annars skýjað með köflum og
þurrt að kalla. Hiti 9 til 19 stig, svalast á Vestfjörðum og Ströndum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 13-20 m/s og rigning
suðaustantil, en annars 8-13 og rigning með köflum. Snýst í austan
og suðaustan 8-13 og rofar til í kvöld. Hiti 8-18 stig, hlýjast syðra.
VEÐUR
Guðrúnu Brá Björgvins-
dóttur úr GK og Haraldi
Franklín Magnús úr GR var í
gær spáð Íslandsmeist-
aratitlunum í golfi 2018 í
spá sem birt var á golf.is en
mótið hefst í Vestmanna-
eyjum eldsnemma í dag. Er
þetta í sjöunda sinn sem Ís-
landsmótið er haldið í Eyj-
um en þar er að finna
nokkrar af elstu golf-
brautum landsins sem enn
eru í notkun. »1,3
Íslandsmótið
hefst í Eyjum
Fótbolti er dauðans alvara. Þessu
fékk landsliðmaðurinn Hólmar Örn
Eyjólfsson að kynnast þegar lið hans,
Levski Sofia frá Búlgaríu, datt út í
leik gegn Vaduz frá Liechtenstein í
undankeppni Evrópudeildarinnar í
síðustu viku.
Eftir leikinn var
Hólmari og fjölskyldu
hans meinaður útgang-
ur af reiðum stuðnings-
mönnum liðsins. »2
Lokaður með fjölskyld-
una inni á vellinum
„Það hefur verið talað um það að þeir
ætli að styrkja, styrkja og styrkja. En
við erum búnir að fá einn framherja
núna. En mótið byrjar eftir viku þann-
ig að ég veit ekki alveg hvernig þeir
ætla að gera þetta,“ segir Ari Freyr
Skúlason, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, meðal annars í samtali við
Morgunblaðið í dag um stöðu mála
hjá liði hans Lokeren í Belgíu. »4
Einn leikmaður bæst við
hjá Lokeren í sumar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
íþróttum og líkamanum. Eftir að ég
fór í starfskynningu í sjúkraþjálfun í
10. bekk í grunnskóla kviknaði áhug-
inn á sjúkraþjálfun,“ segir Kolbrún
Arna Sigurðardóttir, fagdýrahjúkr-
unarfræðingur og dýrasjúkraþjálfari
á Dýraspítalanum í Garðabæ.
„Mér fannst ekki áhugavert að
vinna með fólk og leitaði leiða til
þess að sameina áhuga minn á dýr-
um og sjúkraþjálfun og komst að því
að hægt væri að læra dýra-
sjúkraþjálfun. Öll kennsla fer fram
erlendis og tekur námið tæp sex ár
en hluta starfssamningsins gat ég
tekið í Dýralæknamiðstöðinni,“ segir
Kolbrún sem þurfti fyrst að mennta
sig annaðhvort sem dýrahjúkr-
unarfræðingur eða dýralæknir.
„Ég valdi hjúkrunarfræði vegna
þess að sem slík kem ég oft á tíðum
meira og oftar að meðhöndlun á dýr-
inu en dýralæknir gerir og er í mikl-
um samskiptum við dýrið og eiganda
þess,“ segir Kolbrún sem er að sögn
sú eina á Íslandi sem er sérhæfð í
sjúkraþjálfun hunda og katta.
„Ég starfa við dýrahjúkrun fyrir
hádegi og sinni sjúkraþjálfuninni eft-
ir hádegi. Sjúkraþjálfunardeildin tók
til starfa haustið 2017 en ég var
byrjuð með ráðgjöf fyrr. Við erum
að komast yfir vaxtarverkina sem
fylgja sívaxandi ásókn í dýra-
sjúkraþjálfun. Enn sem komið er er
ég eini starfsmaðurinn.“
Dýr í yfirþyngd meðhöndluð
Að sögn Kolbrúnar er Dýraspít-
alinn í Garðabæ sjúkrahús með
skurð- og rannsóknarstofu, heilsu-
gæslu, bráðamóttöku og sjúkraþjálf-
un fyrir hunda, ketti, nagdýr og
fugla. Kolbrún segir að vöntun sé á
menntuðum dýraheilbrigðisstarfs-
mönnum.
„Verkefnin eru fjölbreytt og ég
veit aldrei hvað vinnudagurinn ber í
skauti sér. Í sjúkraþjálfuninni er ég
að meðhöndla dýr sem eru í yfir-
þyngd eða með meðfædda galla og
þurfa tímabundna eða viðvarandi
meðhöndlun. Hunda og ketti sem
hafa lent fyrir bíl, slitið krossbönd í
hné eða þurfa að læra að nota útlim
að nýju eftir slys,“ segir Kolbrún og
bætir við að sjúkraþjálfun vegna
gigtar hjá hundum og köttum geti
aukið lífsgæði þeirra verulega, sér-
staklega hjá eldri hundum.
„Það erfiðasta við starfið finnst
mér að þurfa að viðurkenna fyrir
sjálfri mér að ég geti ekki bjargað
öllum. Það koma upp tilfelli þar sem
búið er að reyna öll úrræðin án ár-
angurs og það eina í stöðunni er að
svæfa dýrið,“ segir Kolbrún og bæt-
ir við að starfið gefi meira en það
taki.
„Að horfa á dýr sem búið er að fá
bót meina sinna og ánægðan eig-
anda þess er það sem gefur starfinu
gildi.“
Dýrasjúkraþjálfun í Garðabæ
Hundar, kettir,
fuglar og nagdýr
Slitin krossbönd
Morgunblaðið/Valli
Busl Golden retriever-hvolpurinn Þór glímir við liðasjúkdóm og líður vel í sjúkraþjálfun hjá Kolbrúnu Örnu Sigurð-
ardóttur. Hann getur ekki beðið eftir að komast í sjúkraþjálfun með eigandanum Jóhönnu Björk Gylfadóttur.