Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
margt, alltaf verið til staðar ef
eitthvað bjátaði á og sýnt okkur
ómælda þolinmæði. Alla tíð hef-
urðu gefið svo mikið af þér, sýnt
okkur svo mikla ást og borið svo
mikla virðingu fyrir náunganum
og dýrum. Maður með hjarta úr
gulli og stórkostleg fyrirmynd.
Það er aðeins einn afi Bogi og
hann er sá allra besti.
Við systur kveðjum þig með
mikinn harm í hjarta en á sama
tíma finnum við fyrir einstöku
þakklæti fyrir öll þau yndislegu ár
sem við fengum að njóta þess að
vera saman, elsku afi okkar.
Þínar
Heiðdís, Andrea Elsa
og Birta.
Sæll afi. Við systkinin keyrðum
saman austur í gær og söknuðum
þess að fá símtal frá þér á klukku-
tíma fresti með fréttum af veðri
og færð á leiðinni. Þú hefur ávallt
verið stór hluti af lífi okkar og allt-
af til staðar. Ástarþakkir fyrir all-
ar minningarnar, þitt skarð verð-
ur aldrei fyllt og það er mikill
söknuður að þér. Hvíldu í friði.
Freyr, Hrafn og Björk.
Elsku yndislegi afi okkar. Þau
eru þung tárin sem streyma niður
þegar við stöndum frammi fyrir
því að kveðja þig. En þá eru minn-
ingarnar sem við eigum með þér
svo mikilvægar og það fyrsta sem
kemur upp í hugann er hið mikla
þakklæti. Þakklæti fyrir að eiga
afa eins og þig.
Þakklæti fyrir allar ferðirnar
útum allar trissur í leit að berja-
mó, að skoða hella, finna fallega
steina og keyra um allt í húsbíln-
um. Það var ekkert eins gaman og
að ferðast eða leika sér í húsbíln-
um, ekki vandamálið fyrir ykkur
ömmu að vera kannski með sex
eða sjö barnabörn með ykkur í
einu.
Þakklæti fyrir góðvildina, þú
varst einstaklega góður, hvort
sem það var við okkur barnabörn-
in, litlu kisurnar sem bjuggu í
gamla Bensanum þínum eða kan-
ínurnar á Eyvindará. Þakklæti
fyrir alla þolinmæðina, fyrir að fá
að brasa heima hjá ömmu og afa,
með skemmtarann í botni, leika
með steinasafnið þitt eða horfa á
allar myndbandsupptökurnar.
Þakklæti fyrir að alast upp með
þig og ömmu hinumegin við göt-
una og alltaf vorum við velkomin,
þó það væri klukkan átta á
morgnana eða tíu á kvöldin. Yf-
irleitt spurði maður ömmu um
pönnsur eða hvort þú værir nú
ekki til í að taka Capri Catarinu á
nikkuna. Það hélstu nú! Hápunkt-
urinn var nefnilega harmonikkan.
Maður þurfti ekki annað en að
fara út í glugga heima í Borgar-
landinu, hlusta örlítið og ef maður
heyrði í harmonikkunni þá var
maður rokinn út á dansiball eða
söngstund með ömmu og afa. Því-
lík forréttindi.
Margrét Móeiður og Sigrún Ís-
old minnast þín sem langafa sem
spilaði á harmonikkuna. Þeim
fannst alltaf gaman að koma til
langömmu og langafa, fá súkku-
laðimola og leika með „mömmuna
og pabbann“ og dádýrið góða.
Takk fyrir að vera svona góður við
þær.
Eins sárt og það er að sjá þig
ekki aftur heima í Skógarselinu
þá er gott að geta yljað sér við all-
ar minningarnar um hjartahlýja
og góða afa okkar. Söknuðurinn
verður mikill og við munum gera
það að markmiði að heiðra minn-
ingu þína. Þú átt það svo sann-
arlega skilið. Við lofum að passa
vel upp á ömmu Erlu, sem þú
elskaðir svo mikið.
Við vitum að það verður tekið
vel á móti þér. Þið Bergþór þurfið
svo sannarlega að tala um alla
heimsins hluti og Ebba þín er
örugglega byrjuð að steikja klein-
ur handa litla bróður sínum.
Takk fyrir allt, elsku fallegi afi
okkar, við erum svo glöð að hafa
átt þig sem afa og viljum þakka
þér fyrir allar góðu stundirnar
saman. Við munum sakna þín rosa
mikið, öll fjölskyldan – og hvað þá
að heyra þig spila á harmonikk-
una. Takk fyrir að vera alltaf til í
spjall og takk fyrir allar minning-
arnar sem þið amma sköpuðuð
með okkur. Þangað til næst, elsku
afi Bogi.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín barnabörn,
Dagný Erla, Urður Arna,
Helgi Snær og Arnar Bogi
Ómarsbörn.
Bogi var mikill gleðigjafi í lífi
fjölskyldu minnar. Hann var á
vissan hátt bjargvættur föður
míns, saga sem faðir minn sagði
margoft. Þegar Bogi kynnist föð-
ursystur minni, Erlu, eru þau
systkinin undir fjárhaldsmanni
sem gerði þeim fátt gott. Faðir
minn kominn yfir tvítugt varð að
sætta sig við að vera undir fjár-
haldsmanni þar til Erla yrði sjálf-
ráða eftir mörg ár eða þar til hún
gifti sig. Erla aðeins 17 ára hitti
Boga, þau urðu ástfangin og vildu
gifta sig. Það þurfti forsetaleyfi til
því fjárhaldsmaðurinn, blindaður
af eigin hagsmunum, neitaði. Við
þetta gæfuríka hjónaband gat
Erla byrjað að byggja upp líf sitt
aftur eftir að hafa verið svipt því
með snjóflóðinu í Goðdal 11 ára
gömul. Með þessu hjónabandi
fékk faðir minn líka leyfi til að
ráða sínum málum sjálfur og
gleymdi því aldrei að Bogi átti
þátt í því.
Milli hans og Boga varð mikil
og djúp vinátta sem varði á meðan
faðir minni lifði þótt ólíkari menn
væri ekki að finna. Faðir minn fá-
máll og hlédrægur og Bogi hrókur
alls fagnaðar. Vinátta þeirra
byggðist ekki á því að Bogi hefði
bjargað honum undan fjárhalds-
manni sínum heldur á mun traust-
ari grunni. Bogi elskaði Erlu af
öllu hjarta. Faðir minn hafði misst
móður og tvær systur og átti því
aðeins Erlu elstu systur sína sem
hann elskaði af öllu hjarta og vildi
vernda. Hann sá í Boga mann sem
var hægt að treysta fyrir Erlu og
það skapaði ævilanga vináttu milli
hans og Boga.
Þessi virðing og væntumþykja
föður míns í garð Boga smitaðist
að sjálfsögðu á okkur systurnar.
Faðir minn leiðrétti næstum allar
staðreyndavillur mínar þegar ég
var barn en ég fékk að kalla Boga
„Boga frænda“ þrátt fyrir að hann
væri með öllu óskyldur mér. Það
var alltaf gaman þegar Erla og
Bogi komu í heimsókn. Þá sat
Bogi afslappaður og gerði það
sem hann gerði best, að vera
skemmtilegur. Við sátum öll og
hlustuðum og vissum að það óum-
flýjanlega myndi gerast; Erla
frænka myndi toga hann í burtu
með orðunum „Bogi, við verðum
að fara“. Sem betur fer var Bogi
stundum erfiður í taumi og þá
fengum við auka korter eða hálf-
tíma. Ég man eftir klukkutíma
einu sinni. Stundum er maður
heppinn.
Þegar ég sá Boga í síðasta
skipti vissi ég að ég myndi aldrei
sjá hann aftur. Í kveðjuskyni lagði
ég hönd á öxl hans og sagði: „Mér
hefur alltaf þótt mjög vænt um
þig.“ Það voru og eru viðeigandi
kveðjuorð um þann öðling sem
Bogi var, og það eru orð sem öll
mín fjölskylda tekur heilshugar
undir.
Ásdís Bergþórsdóttir.
Að leiðarlokum er mér ljúft að
minnast í fáum orðum vinar míns
Boga Ragnarssonar. Við Bogi
kynntumst sumarið 1974, þegar
ég tók við starfi heilsugæslulækn-
is í Djúpavogshéraði og flutti
austur með eiginkonu og börn.
Engan þekktum við á staðnum,
höfðum aldrei komið þar áður. Við
hittum Erlu, eiginkonu Boga, í
kaupfélaginu en hún er alúðleg og
drífandi kona. Fengum við hjá
henni ýmsar hagnýtar ráðlegg-
ingar varðandi lífið í afskekktu
sveitarfélagi. Síðar kynntumst við
Boga, sem var píparinn á Djúpa-
vogi og einnig vel að sér á mörg-
um öðrum sviðum. Skemmst er
frá því að segja að þau hjónin
studdu við bakið á okkur frá byrj-
un og reyndust okkur á allan hátt
vel. Samskipti okkar voru mikil á
því tæplega eina og hálfa ári sem
við bjuggum á Djúpavogi og tókst
með okkur vinskapur, sem haldist
hefur alla tíð síðan.
Fyrir okkur, sem fluttum frá
Reykjavík austur á Djúpavog,
voru viðbrigðin mikil, aðallega
hvað varðaði mannlífið og afþrey-
ingu: Ekkert samkomuhús né bíó
og sjónvarpssendirinn yfirleitt
bilaður, sveitasíminn opinn hluta
úr degi. En þá sannaðist hið forn-
kveðna: „Maður er manns gam-
an.“ Í skammdeginu var tekið í
spil og voru þau Bogi og Erla vel
liðtæk í þeim efnum. Minnisstæð
eru mörg skemmtileg spilakvöld
með þeim og Steingrími pósthús-
stjóra og Kristínu eiginkonu hans.
Upp í hugann koma einnig minn-
ingar um harmonikkuleik Boga,
sem var okkur til mikillar ánægju
og hreinlega mannbætandi.
Bogi var hugmyndaríkur, alltaf
til í að ræða málin og gefa góð ráð.
Sérstaklega komu sér vel ráðlegg-
ingar varðandi ferðalög á slæmum
sveitavegum þess tíma á gamla
jeppanum mínum, þegar vitja
þurfti sjúklinga að vetrarlagi og
stundum um langan veg að fara.
Ég fylgdi leiðbeiningum Boga
með góðum árangri og allt fór á
endanum vel.
Á Djúpavogi var Bogi á heima-
velli, þekkti allt og alla. Ég var
vanur störfum á sjúkrahúsum
höfuðborgarinnar en þar var yf-
irleitt um ákveðin og afmörkuð
vandamál sjúklinga að ræða, sem
gengið var í að leysa. Ég minntist
á það við Boga, að ég vissi stund-
um ekki hvað amaði að sumu eldra
fólki sem til mín leitaði á Djúpa-
vogi og væri þess vegna ekki með
á hreinu hvað ég ætti að skoða.
Bogi benti mér á að gamla fólkið
væri trúlega mætt til að skoða
nýja lækninn og spjalla. Þar hitti
hann vafalítið naglann á höfuðið.
Ég á í fórum mínum steinhellu,
sem er mér kær. Hana gaf Bogi
mér sem minjagrip um útilegu í
Hofsdal í ágúst 1975. Á hana hefur
hann haglega rist staðarnafn,
dagsetningu og mynd af þrem
tjöldum en með okkur í þessari
eftirminnilegu ferð voru sæmdar-
hjónin Hjörtur heitinn kaup-
félagsstjóri og Erna eiginkona
hans.
Að undanförnu hefur Bogi ekki
verið heill heilsu. Við höfum af og
til verið í símasambandi og rifjað
upp gamlar og ljúfar endurminn-
ingar frá Djúpavogi. Það voru
ánægjuleg samtöl.
Að lokum þakka ég Boga allan
þann stuðning, sem hann ásamt
Erlu eiginkonu sinni veitti mér og
mínum á mikilvægu tímabili í lífi
okkar. Fyrir það verður seint full-
þakkað. Blessuð sé minning hans.
Samúðarkveðjur sendi ég Erlu
og aðstandendum öllum.
Gestur Pálsson.
Ástkær dóttir, systir, mágkona og
föðursystir,
ÞÓRA KJARTANSDÓTTIR,
Skógarbæ, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 14. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju
mánudaginn 20. ágúst klukkan 15.
Anna Elín Hermannsdóttir
Hermann Kjartansson
Valgeir Kjartansson Lísa Björk Bragadóttir
Kjartan Bragi Valgeirsson Ævar Valgeirsson
Þórir Steinn Valgeirsson Hjalti Valgeirsson
Elsku mamma mín, dóttir okkar, systir
og frænka,
EDDA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR,
Lyngmóum 8, Garðabæ,
andaðist á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 12. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Vidalínskirkju í Garðabæ mánudaginn
20. ágúst klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á bankareikning dóttur hennar;
318-18-550033, kt. 120311 2550.
Fanney Ósk Eiríksdóttir
Lára Björnsdóttir Gunnar Sæmundsson
Björn Jóhann Gunnarsson
Anna Lára B. Björnsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 11. ágúst.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 23. ágúst klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Alzheimersamtökin.
Eiríkur Jónsson
Bryndís Eiríksdóttir
Ólafía J. Eiríksdóttir Hjalti Lúðvíksson
Jón Eiríksson Hólmfríður Kristjánsdóttir
Magnús Eiríksson Unnur Fanney Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
EDDA ÖNFJÖRÐ MAGNÚSDÓTTIR,
Hólavangi 24, Hellu,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
miðvikudaginn 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 22. ágúst
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Lund á
Hellu; 440375-0149 0308-13-300709.
Hjalti Oddsson
Anna Sigríður Hjaltadóttir
Helga Oddný Hjaltadóttir Ingvi Reynir Berndsen
Oddur Smári, Davíð Steinn, Bríet, Hulda og Eiríkur
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
ZOILA GLORIA GUERRERO
frá Columbiu,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 14. ágúst.
Útförin fer fram frá St. Jósefskirkju í
Hafnarfirði þriðjudaginn 21. ágúst
klukkan 13.30
Julia Estella Muñoz
Esther Vanessa Muñoz, Bjarni Thoroddsen
Estefania Villegas Muñoz, Sindri Rafn Guðmundsson
Paula Andrea Rivera Guerrero, Miguel Reyes Domingo
Helga Viktoría Bjarnadóttir Thoroddsen
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA SÓLBJÖRT ÓLAFSDÓTTIR,
Hrafnistu Njarðvík,
áður Hornbjargi,
lést á Hrafnistu í Njarðvík að morgni
fimmtudagsins 9. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 21. ágúst
klukkan 13. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að styðja við Krabbameinsfélagið.
Arnbjörn Ólafsson
Lára Hulda Arnbjörnsdóttir Þorleifur Ingólfsson
Anna Jóna Arnbjörnsdóttir Sigurður Leifsson
Ólafur Arnbjörnsson Halldóra Júlíusdóttir
Gylfi Arnbjörnsson Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
Arnbjörn H. Arnbjörnsson Stefanía Helga Björnsdóttir
Ellert Arnbjörnsson Sigrún Alda Jensdóttir
Ágúst Þór Skarphéðinsson Helga Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg sambýliskona, móðir,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
MARGRÉT BJÖRNEY
GUÐVINSDÓTTIR,
Hólavegi 22,
Sauðárkróki,
sem lést 10. ágúst, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 24. ágúst klukkan 14. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki og
Krabbameinsfélag Skagafjarðar.
Haukur Björnsson
Óskar Guðvin Björnsson Erla Kjartansdóttir
Guðni Ragnar Björnsson Anna Marie Stefánsdóttir
Lovísa Birna Björnsdóttir Vigfús Vigfússon
Björn Jóhann Björnsson Edda Traustadóttir
Stella Guðvinsdóttir
ömmubörn og langömmubörn