Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Hér erum við!
Þú finnur okkur
í frystinum
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Farðu vel yfir öll smáatriði í vinnunni í
dag. Gefðu þér góðan tíma til þess að velta
málunum fyrir þér. Spáðu í það að róm-
antíkin þarfnast bæði svigrúms og umönn-
unar.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ósköp notalegt að finna athygli
annarra beinast að sér. Þú ert komin/n á
beinu brautina í peningamálum, þökk sé
staðfestu þinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert staðráðin/n í að fá þínu
framgengt í vinnunni í dag. Reyndu að forð-
ast að vera of ýtin/n, það kann ekki góðri
lukku að stýra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það sem þú skilur ekki, verður út-
skýrt – seinna. Hlustaðu á innri röddina í
vandamáli sem þú glímir við. Svarið kemur ef
þú hættir að reyna að kreista það fram.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu ekki stíf/ur og leyfðu vinum þín-
um að koma þér til aðstoðar. Einhver sýnir
sitt rétta andlit og þá er þitt að ákveða hvað
þú gerir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Tjáðu ástvini þínum hug þinn og hik-
aðu ekki við að taka áhættu í ástamálunum.
Ekki segja já og amen við öllu sem makanum
dettur í hug.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú vilt skipuleggja alla hluti, sem er í
góðu lagi ef þú reynir um leið að vera sveigj-
anleg/ur þegar það á við. Það eru blikur á
lofti innan stórfjölskyldunnar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er komið að því að þið reynið
eitthvað sem þið hafið aldrei upplifað áður.
Einhver gamall vinur skýtur upp kollinum og
þú gætir ekki verið glaðari.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert sátt/ur við sjálfa/n þig og
við þá stefnu sem líf þitt hefur tekið. Mundu
að flas er ekki til fagnaðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú veitir einhverjum óskipta at-
hygli þína, sem reynist besta gjöfin sem þú
gast gefið. Hvernig væri að skrá sig í ein-
hvern klúbb eða félag?
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allt mun taka lengri tíma í dag en
þú gerðir ráð fyrir. Öllum getur skjátlast, þér
líka. Þú ert ekki af baki dottin/n í leitinni að
hinni sönnu ást.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að taka öll þín mál til endur-
skoðunar. Ferðalög eru framundan fram að
áramótum. Vísaðu kjaftasögum til föðurhús-
anna.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Ber það heiti bær í Ljósuvík.
Á borðinu, sem útı́á gólfi stendur.
Bara eintómt bull er saga slík.
Bersýnilega er sá talsvert kenndur.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Bær mun undir Fótarfæti hér,
ég fætur undir borði vísast tel.
Og enginn fyrir sögu fótur er,
í fótinn hefur þessi náð sér vel.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Fótur hét bær, – nú í bögum.
Við borðfót lá hringaskorðin.
Var fótur fyrir þeim sögum
hjá fótvaltri gæfi sig storðin?
Ég hitti karlinn á Laugaveginum
og lagði fyrir hann gátuna. Hann
velti höfðinu á ská aftur á bak,
horfði upp í Hallgrímskirkjuturn-
inn og tuldraði:
Sólin skín á minn skalla.
Skýjakleggi til fjalla
svo að rignt hann gæti.
Undir Fótarfæti
mér fyndist björgulegt, – varla.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Í Ljósuvík má finna bæinn Fót.
Á fæti útı́á gólfi borðið stendur.
Ei slíkri sögu er fótur fyrir hót.
Fótur er í þeim, sem gerist kenndur
Þá er limra:
Frá á fæti er Tóta
og fljót að eltáuppi þrjóta,
sem þegar í stað
þjóta með hrað,
þegar hún tekur til fóta.
Hér kemur svo ný gáta eftir Guð-
mund:
Úti rignir endalaust,
ákaft skýin gráta,
bráðum komið hrollkalt haust,
en hér er lítil gáta:
Frá henni berst ómur ör.
Orðið haft um vembda kú.
Í henni er mikill mör.
Á miðjum katli jafnan sú.
Gömul vísa í lokin:
Þegar einhver óhöpp sár
aðra veistu græta,
þá er betra að þerra tár
en þínum við að bæta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Oft gjalda fætur óminnis
Í klípu
ÓSKHYGGJA.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG MYNDI SEGJA AÐ ÞAÐ VÆRI
GALLBLAÐRAN EN EF ÞÚ VILT ANNAÐ ÁLIT
SEGI ÉG AÐ ÞAÐ SÉU NÝRUN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þú munt
aldrei víkja frá mér.
LETI ER
SMITANDI
EKKI SATT,
JIM?
JIM? …
HVAÐ ER HANN AÐ
GERA HÉRNA? SVEFNLEYSI!
ÉG VIL FÁ GÖMLU
GILDIN AFTUR.
Víkverji naut sumarfrísins og ferð-aðist um landið. Búið var að
ákveða að þetta yrði sumarið þar
sem ekki yrði haldið til útlanda því
það væri svo agalegt að missa af
þessu dásamlega íslenska sumri sem
er svo stutt. Það má deila um hversu
heppileg þessi ákvörðun var í ljósi
þess hvernig veðrið þróaðist hér.
Grámi og tíu gráður er ekki það veð-
ur sem maður tengir mest við sum-
ar.
x x x
Það er búið að vera ansi þreytandiað fylgjast með Norður-
landabúum á Instagram að lifa lífs-
stíl sem venjulega er takmarkaður
við fólk sem býr á suðlægari slóðum.
Dökka hliðin á þessu er hinsvegar
hvaða áhrif öll þessi sól hefur haft á
ræktun í þessum löndum. Grasið er
sviðið og norskir bændur þurfa að
kaupa hey af íslenskum bændum
fyrir skepnur sínar. Það er samt
ekki það sem er Kaupmannahafn-
arbúum efst í huga þar sem þeir
ganga um borgina sína léttklæddir í
sandölum að skála í rósavíni og
dönskum bjór.
x x x
Það rættist hinsvegar ágætlega úrsumrinu; Víkverji fór norður í
land þar sem veðrið var betra og
eyddi síðan tíma í Borgarfirðinum í
góðu veðri og fékk ágætan D-
vítamínskammt í heita pottinum í
bústaðnum því sólardagarnir voru
nokkrir. Maður tekur allt sem býðst.
x x x
Þar kom samt óboðinn gestur semsetti strik í reikninginn. Hingað
til hefur eitt það besta við íslenskt
sumar verið að hér séu engar mosk-
ítóflugur og að maður þurfi því ekki
að óttast bit á síðkvöldum. Nú er það
breytt með útbreiðslu lúsmýsins.
Það hefur greinilega komið sér vel
fyrir í Borgarfirðinum og sum-
arhúsagestir fengu þónokkur bit þó
Víkverji hafi frétt af mun verri til-
fellum. Það óþægilega er að maður
verður ekkert var við þessar litlu
flugur og Víkverji mun áreiðanlega
hafa varann á í framtíðinni. Þessi bit
eru hvimleið, mann kitlar í þau og
þau eru lengi að hverfa. Burt með
lúsmýið! vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
(Jóhannesarguðspjall 10.9)
Allt um sjávarútveg