Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Laugar ehf. hafa samið við Mos-
fellsbæ um að fá að byggja 900
fermetra viðbyggingu við Íþrótta-
miðstöðina
Lágafell (Lækj-
arhlíð 1A). Har-
aldur Sverris-
son, bæjarstjóri
í Mosfellsbæ,
segir að samn-
ingurinn við
Laugar feli í sér
góða viðbót við
Íþróttamiðstöð-
ina Lágafell, þar
sem Laugar ehf.
leigi nú aðstöðu fyrir líkamsrækt-
arstöð sína.
„Þeir óskuðu eftir því að fá að
stækka þá aðstöðu sem þeir leigja
af okkur og Laugar munu byggja
þá viðbót sem við höfum samið um
og standa straum af öllum kostn-
aði við framkvæmdirnar,“ sagði
Haraldur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Björn Leifsson, aðaleigandi
Lauga ehf. sem eiga og reka
World Class-líkamsræktarstöðv-
arnar, segir að teikningar að við-
byggingunni séu nú til skoðunar
og umfjöllunar hjá byggingarfull-
trúa Mosfellsbæjar.
„Við vonumst til þess að geta
ráðist í framkvæmdir alveg á
næstunni,“ sagði Björn í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Viðbygg-
ingin er kjallari og jarðhæð, sam-
tals 900 fermetrar. Hún mun rísa í
vestur, við sundlaugarbygginguna.
Á neðri hæðinni, þ.e. í kjallaran-
um, verða tveir leikfimisalir, einn
fyrir „spinning“ og annar fyrir
„hot yoga“.
Á efri hæðinni verður stór leik-
fimisalur, sem verður samnýttur
með skólanum, og nýr búnings-
klefi, sem verður að mestu leyti
nýttur af skólanum yfir daginn í
skólasundið og á kvöldin af okk-
ur,“ sagði Björn.
Björn segir að þessar fram-
kvæmdir geri það að verkum að
hægt verði að stækka tækjasalinn
umtalsvert, því leikfimisalurinn
sem hafi verið hluti af tækjasaln-
um verði rifinn og aukið við tækin
sem því nemur. „Þegar þessum
framkvæmdum okkar er lokið
verðum við með mjög öfluga lík-
amsræktarstöð í Mosfellsbæ,“
sagði Björn.
Laugar eiga og reka fjórtán
World Class-stöðvar um land allt.
Sú fimmtánda er í byggingu á
Völlunum í Hafnarfriði og á að
opna fyrir næstu áramót. Laugar
eru með samnýtingu í sjö sund-
laugum í fimm sveitarfélögum, að
sögn Björns.
Laugar ætla að stækka við Lágafell
World Class og Mosfellsbær hafa samið um liðlega 900 fermetra viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina
Lágafell, sem World Class mun byggja og eiga Aðstaða mun batna til muna, segir Björn Leifsson
Lágafell Aðstaða World Class í Íþróttamiðstöðinni Lágafelli í Mosfellsbæ mun batna til muna með stækkuninni.
Björn
Leifsson
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Nóg framboð er af bóluefni gegn
lifrarbólgu A á Íslandi. Vegna skorts
á bóluefninu var ekki hægt að anna
eftirspurn í sum-
arbyrjun. Ný
sending af efninu
í ágúst hefur
bætt úr því.
Fyrirtækið
Vistor er einn
helsti innflytjandi
bóluefna á Ís-
landi.
Gunnur Helga-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Vistor, segir skortinn á bóluefni
gegn lifrarbólgu A ekki hafa verið
bundinn við Ísland.
Vonar að nóg verði til
„Þetta lítur mun betur út en í vor.
Við erum mjög glöð að sjá fram á að
eiga vonandi nóg með haustinu.
Þetta er flókin framleiðsla með mikl-
um kröfum um gæðaeftirlit. Því er
ekki hægt að lofa neinu en maður
vonar að það verði nóg til,“ segir
Gunnur um framboðið af bóluefni
gegn lifrarbólgu.
„Það kom upp alheimsskortur á
bóluefnum í vor. Framleiðendur
höfðu ekki undan. Það er meðal ann-
ars vegna þess að fólk ferðast miklu
meira en áður og þarf meira á bólu-
setningum að halda. Notkunin hefur
því aukist. Það tók fyrirtækin tíma
að auka framleiðsluna. Við vorum
ekki eina landið sem glímdi við
þennan vanda. Það var líka skortur
annars staðar á Norðurlöndum.
Frambjóðendur skömmtuðu bólu-
efnin eins og þeir gátu inn á mark-
aðina til að sinna þessu eins og hægt
var,“ segir Gunnur. baldura@mbl.is
Eiga nú bóluefni
gegn lifrarbólgu A
Morgunblaðið/Eggert
Heilsugæsla Nú er aftur hægt að fá
bóluefni við lifrarbólgu A.
Gunnur
Helgadóttir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Hátt í 300 manns mættu á málstofu um
myglu sem Rannsóknarstofa bygging-
ariðnaðarins (RB) við Nýsköpunar-
miðstöð Íslands hélt í gær.
Yfirskrift fundarins var: Raka-
skemmdir og mygla. Íslenski út-
veggurinn og reynsla Svía.
Ólafur H. Wallevik, prófessor og for-
stöðumaður RB við Nýsköpunarmið-
stöð Íslands, segir að kynntar hafi ver-
ið nýjar aðferðir við að herma útveggi í
tölvulíkani til að meta raka- og mygluá-
hættu.
„Íslenski útveggurinn fór í slíka
hermun og var niðurstaðan sú að hann
er mikill skaðvaldur þegar kemur að
raka og myglu í íslenskum húsum.
Gæði málningar og vatnsfælni skiptir
líka mjög miklu til að fyrirbyggja raka-
myndum. Við erum langt á eftir hinum
Norðurlandaþjóðunum þegar kemur
að rannsóknum á orsökum myglu,“
segir Ólafur og bætir við að 20% Svía
glími við heilufarsvandamál tengd raka
og myglu.
„Hin Norðurlandaríkin hafa barist
við myglu og raka jafnt og þétt og lagt í
mikla rannsóknarvinnu til þess að
bæta byggingarmáta og reglugerð í
kringum húsbyggingar. Lengi vel var
þetta ekki sama vandamálið hjá okkur.
Við bjuggum í stærra húsnæði og bað-
herbergið var eina votrýmið í húsinu
en nú er eldhúsið einnig skilgreint
þannig. Auk þess voru eldhús meira
lokuð af en nú er. Fólk er sjaldnar
heima að degi til og gluggar ekki nógu
oft opnaðir eða þeir eru of þéttir,“ segir
Ólafur.
Hópur verkfræðinga frá ýmsum
verkfræðistofum, háskólum og RB
hafa tekið sig saman undir yfirskrift-
inni Betri byggingar og leita nú fjár-
mögnunar til að hefja alvöru rannsókn-
ir á ástæðum rakaskemmda og myglu.
„Við erum með vel yfir 10 kenningar
um það hvað valdi því að mygla og raki
er verulega meira áberandi nú en áður.
Áður fyrr voru útveggir einangraðir að
innan með plasti og múraðir en það
kom greinilega fram á málstofunni að
betra er að einangra að utan. Einnig
var byrjað að einangra með steinull að
innan. Með lektum og gifsplötum út-
bjuggum við kjörskilyrði fyrir raka-
myndun,“ segir Ólafur, sem bendir á
að gifsplötur séu efst á matseðli mygl-
unnar.
„Í gifsplötum er pappír sem er líf-
rænn matur. Mygla þarf næringu, vatn
og rétt hitastig til þess að þrífast.
Mygla getur skapast á mánuði eða tek-
ið lengri tíma,“ segir Ólafur.
Þekkingarleysi á nýjungum, skortur
á rannsóknum og viðhald sem er
ábótavant er stór hluti raka- og myglu-
vandamálsins að sögn Ólafs.
„Á málþinginu kom fram að þök eru
mjög mikið vandamál þegar kemur að
raka og myglu og það er mun meira
vatn í íslenskri steypu en erlendri
vegna þess að íslenskir steinar eru með
miklu meira holrými,“ segir Ólafur og
bendir á að annars staðar á Norður-
löndunum þurfi meira viðhald og að
oftar þurfi að kalla til fagmenn sem
meti hús áður en þau fara á sölu.
„Ég er þeirrar skoðunar að við þurf-
um að nota náttúrulega loftræstingu í
húsum þar til við höfum innleitt góðar
vélrænar lausnir,“ segir Ólafur.
Gifsplötur eru efst á
matseðli myglunnar
20% Svía með heilsufarsvandamál tengd myglu og raka
Ljósmynd/Rannsóknarstofa byggingariðnaðarins
Húsfyllir Margir sýndu áhuga á ráðstefnunni um rakaskemmdir og myglu.
Morgunblaðið/Eggert
Raki og mygla Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður RB, vill vinna að lausnum.