Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Fram kom hjá Gísla Gíslasyni,
stjórnarformanni Spalar ehf., á aðal-
fundi félagsins í mars 2017, að bygg-
ingarkostnaður nýrra ganga ásamt
tengingu við eldri göng er áætlaður
rúmlega 13,5 milljarðar króna m/
vsk. á núverandi verðlagi. Verktími
var áætlaður 3-4 ár frá ákvörð-
unartöku til þess tíma að hvor
tveggja göngin verða komin í notk-
un.
Samkvæmt skýrslu sérfræðing-
anna frá í vor er kostnaður við gerð
ganganna meiri en Spölur áætlaði,
eða 20.140 milljónir króna. Þetta er
dýrasta útgáfan, enda gert ráð fyrir
mestu öryggi. Stærsti kostnaðarlið-
uninn er áætlaður jarðgangagröftur,
3.905 milljónir, þarnæst sprautu-
steypa, 2.462 milljónir, vatnsklæðn-
ingar 1.723 milljónir og vegskálar,
1.289 milljónir.Verktakakostnaður
er alls áætlaður 15.921 milljón.
Á verðlagi ársins 1998 var beinn
framkvæmdakostnaður við núver-
andi göng 3,3 milljarðar en með und-
irbúningskostnaði, fjármagnskostn-
aði og fleira 4,6 milljarðar,
samkvæmt upplýsingum Gísla Gísla-
sonar. Fært á verðlag með bygg-
ingavísitölu til júlí 2018 gerir það
annars vegar um 10 milljarða og
hins vegar 13,8 milljarða króna.
„Hámarksmeðalumferð (ADU)
fyrir göng sem liggja í halla og
beygjum er 8.000 ökutæki á sólar-
hring skv. gildandi reglum. Með-
alumferð 2016 var 6.436 ökutæki.
Miðað við eðlilega umferðarspá er
mjög líklegt að umferðin fari í 8.000
ökutæki 2019,“ sagði í skýrslu
stjórnar Spalar, sem kynnt var 2017.
Í fyrstu hugmyndum um ný göng
var gengið út frá því að ein-
stefnuumferð yrði í hvorum tveggja
göngunum. Þannig myndi umferð
norður í land fara um nýju göngin en
umferð til höfuðborgarinnar um þau
gömlu. En þar sem hin nýju göng
þurfa að vera talsvert lengri en þau
gömlu myndi aksturslengd aðra leið-
ina til Akraness lengjast um 8 km.
Því telja sérfræðingarnir einstefnu
ekki vera valkost. Nálægð við Akra-
fjall skerðir möguleikana á útfærslu
nyrðri gangamunnans.
Ný göng talin kosta
rúma 20 milljarða
Boltinn er nú kominn á borð stjórnmálamanna
Morgunblaðið/Golli
Sprenging Halldór Blöndal þáverandi samgönguráðherra sprengdi síðasta
haftið í Hvalfjarðargöngunum 1997, 165 metrum undir yfirborði sjávar.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Áætlað er að ný göng undir Hval-
fjörð muni kosta rúma 20 milljarða
króna. Er þá miðað við þau göng
sem sérfræðingar telja hagkvæmast
að grafa undir fjörðinn.
Mannvit hefur í samvinnu við for-
stöðumann jarðgangadeildar Vega-
gerðarinnar, Gísla Eiríksson, skoðað
og borið saman nokkra valkosti fyrir
tvöföldun Hvalfjarðarganga. Var
sagt frá niðurstöðu þeirra í Morg-
unblaðinu s.l. fimmtudag.
Öryggisreglur hafa verið hertar
til muna frá því að núverandi göng
voru hönnuð fyrir rúmum 20 árum.
Ný göng þurfa að vera lengri og
breiðari og með minni veghalla. Þau
yrðu allt að tveimur kílómetrum
lengri en núverandi göng. Þá þarf að
gera ráð fyrir flóttaleiðum.
Undirbúningur að gerð nýrra
Hvalfjarðarganga hófst hjá Vega-
gerðinni í byrjun árs 2017. Göngin
munu verða samhliða núverandi
göngum. Samið var við verk-
fræðistofuna Mannvit um úttektir
og undirbúning vegna ganganna og
var skýrslunni skilað til Vegagerð-
arinnar í apríl s.l.
Er ekki á samgönguáætlun
Undirbúningi að nýjum Hval-
fjarðargöngum er lokið í bili af hálfu
Vegagerðarinnar, samkvæmt upp-
lýsingum G. Péturs Matthíassonar
upplýsingafulltrúa. Boltinn sé nú
kominn til stjórnmálamanna. „Eng-
ar ákvarðanir hafa verið teknar og
það liggur hjá stjórnmálamönnunum
að taka þær,“ segir G. Pétur.
Tvöföldun Hvalfjarðarganga hef-
ur ekki verið á samgönguáætlun og
það mun koma í ljós í haust hvort
verkefnið verður á nýrri samgöngu-
áætlun, sem þá verður kynnt. Ný
Hvalfjarðargöng er heldur ekki að
finna á jarðgangaáætlun.
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna
hefur enn ekki komið saman til að
ræða mál Hjartar Júlíusar Hjartar-
sonar, sem sendur var heim af
heimsmeistaramótinu í Rússlandi í
sumar. Ástæða heimfararinnar var
sögð óæskileg hegðun Hjartar með-
an á mótinu stóð og ákvað atvinnu-
rekandi hans, Sýn, að senda hann
heim. Fram kom í frétt sem birtist í
Morgunblaðinu 5. júlí sl. að taka ætti
málið fyrir á allra næstu vikum. Frá
þeim tíma er nú liðinn rúmur mán-
uður en að sögn Eiríks Stefáns Ás-
geirssonar, formanns Samtaka
íþróttafréttamanna, hafa sumarfrí
innan stéttarinnar sett strik í reikn-
inginn. Hann segir þó að málið verði
tekið upp hjá samtökunum og á því
verði tekið. „Það hefur töluverður
fjöldi verið í sumarleyfi og þess
vegna hefur ekki gefist tími til að
taka þetta fyrir. Við munum hins
vegar kalla saman fund sem verður
að öllum líkindum haldinn undir lok
þessa mánaðar,“ segir Eiríkur.
Mál af þessu tagi hefur ekki komið
inn á borð hjá samtökunum áður en
fram kom í frétt sem birtist fyrr í
sumar að samtökin hygðust ráðfæra
sig við Blaðamannafélag Íslands um
næstu skref.
Hjörtur Hjartarson hefur verið
meðlimur í Samtökum íþróttafrétta-
manna frá árinu 2015. Hann óskaði
eftir því að hætta störfum hjá vinnu-
veitanda sínum, Sýn, í kjölfar fyrr-
greindra atvika. Hjörtur sendi í
framhaldinu frá sér yfirlýsingu á Fa-
cebook þar sem hann sagðist skilja
vel þau hörðu viðbrögð sem komu
fram vegna hegðunar hans í Rúss-
landi. Þá ætlaði hann að einbeita sér
að því að bæta framkomu sína gagn-
vart nákomnum og öðrum.
aronthordur@mbl.is
Mál Hjartar verði
rætt á næsta fundi
Samtök íþrótta-
fréttamanna ráðgera
að funda á næstunni
Morgunblaðið/RAX
Hjörtur Mál hans verður rætt á
fundi Samtaka íþróttafréttamanna.
Starfsmenn Meitils – GT tækni á
Grundartanga unnu að því í nótt að
þétta sprungur í múrklæðingu ofar-
lega í Hvalfjarðargöngum norðan-
verðum. Þetta er meðal lagfæringa-
og endurbótaverkefna sem Spölur
sinnir undir lok rekstrartíma síns
áður en félagið afhendir ríkinu
göngin til eignar. Sprungur er hér
og þar að finna í klæðningunni og
tekur nokkrar nætur að fara yfir
svæðið allt og ljúka verkinu.
Göngin eru opin fyrir umferð
meðan á þessu stendur. Hafist er
handa eftir miðnætti þegar fáir eru
á ferð. Varðliðar eru úti fyrir ganga-
munnum beggja vegna fjarðar,
stöðva bíla og biðja ökumenn að fara
gætilega um vinnusvæðið. Meitils-
menn standa þannig vel að málum
og ökumenn fara ljúfmannlega að
tilmælum þeirra, segir á vef Spalar.
Ljósmynd/Spölur
Hvalfjarðargöng Starfsmenn Meitils-GT tækni í körfubíl munduðu spraut-
ur uppi undir lofti ganganna og fylltu upp í sprungur hratt og örugglega.
Göngin fínpússuð
fyrir afhendingu