Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 7
BREIÐFIRÐINGUR
5
Daði var sýslumaður, lögréttumaður og bóndi í Snóksdal frá
1523 til æviloka, en hafði bú á 3-4 stórbýlum öðrum. Daða er
lýst svo að hann hafi verið afarmenni að burðum en ekki mjög
virðingagjarn. Var talinn harðdrægur og heimaríkur, enda
gerðist hann auðmaður mikill.
Kona hans var Guðrún Einarsdóttir prests og skálds á Stað á
Ölduhrygg (nú Staðarstað). Dóttir þeirra var Þórunn kona
Björns Hannessonar lögsagnara. Þau giftust 1545.
Eitthvað af afkomendum Daða í Snóksdal munu hafa búið á
Sauðafelli svo sem Anna Björnsdóttir dótturdóttir hans, en hún
átti Árna lögréttumann Björnsson á Melstað Jónssonar biskups
Arasonar og síðar sr. Jón Vigfússon sem einnig bjó á Sauðafelli
og var prestur í Miðdalaþingum. Þau síra Jón voru lítt
ráðdeildarsöm segir Páll E. Olason (sjá Isl. ævisk.) seldu og
sóuðu öllum jarðeignum Önnu. Sr. Jón var síðast dæmdur á
framfæri prestsetra. Anna andaðist 1642 níræð að aldri.
Verða nú taldir nokkrir af afkomendum Daða í Snóksdal er
búið hafa á Sauðafelli eða hafa haft eignarhald á jörðinni.
Ólafur Hannesson síðar í Bár í Eyrarsveit er talið að búið hafi
á Sauðafelli, en hann var sonur Hannesar Björnssonar
sýslumanns í Snóksdal. Þá bjó á Sauðafelli sr. Vigfús Eiríksson
prestur í Miðdalaþingum (f. 1670 d. í Stórubólu 1707), enkona
hans var Halldóra Þórðardóttir frá Snóksdal Hannessonar.
Árið 1703 er Gísli Jónsson á Reykhólum eigandi Sauðafells,
en hann var sonur Jóns biskups Vigfússonar að Hólum
(Bauka-Jóns), en faðir Magnúsar amtmanns. Fljótlega mun
jörðin þó hafa komist í eigu Breiðabólstaðamanna og þá um leið
afkomenda Daða í Snóksdal. Sigurður Pálmason lögréttumaður
sem lengi bjó á Breiðabólstað í Sökkólfsdal var sonur Pálma
Hinrikssonar lögréttumanns og síðari konu hans Ragnheiðar
Eggertsdóttur lögréttumanns í Snóksdal Hannessonar. Við
fráfall Pálma Sigurðssonar lögréttumanns á Breiðabólstað 1730