Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 52
50
BREIÐFIRÐINGUR
var hún talin XVI hundruð, en nú nær XI hundruð, og er hálf
Snóksdals kirkju jörð, en hálf bóndaeign.
Hörðadalr: Sá dalr gengr upp frá Hvammsfirði að
sunnanverðu, syðstr af Breiðafjarðardölum; standa tólf bæir í
dalnum, er svo heita: Hörðaból, Þorgeirsstaðahlíð,
Hrafnabjörg, ytri og fremri, Hlíð, Túnga, Seljaland, Hóll,
Geitastekkur, Hamar, Blönduhlíð og Bugðustaðir, eru tveir
hinir fyrst töldu bæir í Miðdala hrepp, en tíu í Hörðadalshrepp.
Dalrinn dregr nafn af Herði, sem bjó á Hörðabóli, og átti dalinn,
að gjöf Auðar djúpuðgu; hefir það nafn haldizt við hann síðan,
nema hvað það á seinni tíðum hefir bjagazt þannig, að
Hörðudalr er kominn fyrir Hörðadal, og á seinustu tíu árum eða
tólf árum hafa fáeinir menn farið að rita Harðardal, líklega til að
lagfæra hið forna heiti hans, sem hann hefir haft nærri óbreytt
lengr en um hálfa tíundu öld.
Hörðadalsá, hún heitir svo enn, og rerinr til útnorðrs eptir
Hörðadal, og svo saman við Miðá, áðr þær falla út á
Lækjarskógsfjörur; helztu upptök árinnar eru Laugadalsá, sem
fellr út Laugadal, og Vífllsdalsá, sem kemr úr Vífilsdal.
Ketilstaðir, sá bær heitir svo enn í dag, og dregr nafn af Katli,
er Auðr gaf land milli Hörðadalsár og Skraumuhlaupsár; bygði
hann þá bæinn, þar sem enn er hann; hann stendr undir
hálsinum, upp frá Hvammsfirði, vestan til við Hörðadals-
mynni; jörðin var fyrum talin XXIV hundruð, en nú nálægt
XVIII hundruðum. Ketill er sagt að grafinn sé í Ketilshól
innanvert við Skraumu.
Knappafellsheiði.Þ að er f)allið,sem nú almennt kallast Fossar
og Fossabrekkur, þegar suðr af því hallar ofan í Knappadalinn.
Ekki veit eg, af hverju heiðin hefír dregið nafn, þar ekkert fell er
á fjallinu, og ekki niðri í Knappadalnum, er svo heitir; er því
líklegra, að hún hafi heitið Knappadalsheiði, og hefði það máske
getað misritazt í handritinu af Bjarnarsögu. Ekki liggr þar yfir