Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 52

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 52
50 BREIÐFIRÐINGUR var hún talin XVI hundruð, en nú nær XI hundruð, og er hálf Snóksdals kirkju jörð, en hálf bóndaeign. Hörðadalr: Sá dalr gengr upp frá Hvammsfirði að sunnanverðu, syðstr af Breiðafjarðardölum; standa tólf bæir í dalnum, er svo heita: Hörðaból, Þorgeirsstaðahlíð, Hrafnabjörg, ytri og fremri, Hlíð, Túnga, Seljaland, Hóll, Geitastekkur, Hamar, Blönduhlíð og Bugðustaðir, eru tveir hinir fyrst töldu bæir í Miðdala hrepp, en tíu í Hörðadalshrepp. Dalrinn dregr nafn af Herði, sem bjó á Hörðabóli, og átti dalinn, að gjöf Auðar djúpuðgu; hefir það nafn haldizt við hann síðan, nema hvað það á seinni tíðum hefir bjagazt þannig, að Hörðudalr er kominn fyrir Hörðadal, og á seinustu tíu árum eða tólf árum hafa fáeinir menn farið að rita Harðardal, líklega til að lagfæra hið forna heiti hans, sem hann hefir haft nærri óbreytt lengr en um hálfa tíundu öld. Hörðadalsá, hún heitir svo enn, og rerinr til útnorðrs eptir Hörðadal, og svo saman við Miðá, áðr þær falla út á Lækjarskógsfjörur; helztu upptök árinnar eru Laugadalsá, sem fellr út Laugadal, og Vífllsdalsá, sem kemr úr Vífilsdal. Ketilstaðir, sá bær heitir svo enn í dag, og dregr nafn af Katli, er Auðr gaf land milli Hörðadalsár og Skraumuhlaupsár; bygði hann þá bæinn, þar sem enn er hann; hann stendr undir hálsinum, upp frá Hvammsfirði, vestan til við Hörðadals- mynni; jörðin var fyrum talin XXIV hundruð, en nú nálægt XVIII hundruðum. Ketill er sagt að grafinn sé í Ketilshól innanvert við Skraumu. Knappafellsheiði.Þ að er f)allið,sem nú almennt kallast Fossar og Fossabrekkur, þegar suðr af því hallar ofan í Knappadalinn. Ekki veit eg, af hverju heiðin hefír dregið nafn, þar ekkert fell er á fjallinu, og ekki niðri í Knappadalnum, er svo heitir; er því líklegra, að hún hafi heitið Knappadalsheiði, og hefði það máske getað misritazt í handritinu af Bjarnarsögu. Ekki liggr þar yfir

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.