Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 55
BREIÐFIRÐINGUR
53
fremra Vífílsdal. Menn segja, að leiði hans sé í hinu forna túni,
nærri út við gilið, sem rennr fyrir vestan forna bæinn. Fyrrum
var öll jörðin XL hundraða, en síðar var henni skipt í tvær jarðir,
og var fremri Vífilsdalr XXIV hundruð, en neðri Vífilsdalr XVI
hundruð; báðir bæirnir stóðu vestanvert við ána. Opt hljóp
bæjargilið í fremra Vífilsdal þar á túnið, og eyðilagði mikið af
því, einkum 1849, svo að bænum þótti ekki óhætt, ef hann stæði
kyrr í sama stað, og var hann þá fluttr sama ár austr yfir ána, og
bygðr þar á holti, gagnvart forna bænum; því var jörð þessi, sem
þá þótti túnlaus, metin svo lágt við hið nýja jarðamat, sem fram
fór sama ár og bærinn var færðr; er því jörðin talin hálft
hundrað, en neðri Vífilsdalr freklega X hundrað, í hinni nýju
jarðabók.
II Örnefni eptir alþýðusögum.
Gautastaðir, Gautahóll; sagt er, að Gauti hafi heitið sá sem
byggði á Gautastöðum, í þann tíma sem Ketill byggði á
Ketilstöðum, sem áðr er getið; þá hafi annaðhvort heitið, eða
verið auknefndr Selr sá, sem bjó í Selárdal, og hafi allir þessir
þrír nábúar verið vinir, og mælt svo fyrir, að grafa skyldi þá alla
hvern nálægt öðrum, svo þeir gæti fundizt og talað saman, en þó
hvern í sinni landareign, og þetta hafi verið gjört; liggi Ketill í
Ketilshól, innanvert við Skraumu, Gauti í Gauthól, þar móts
við, utanvert við ána, og Selr í Selhól, sem er framanvert við
Hafradalsá, móti Gauthól; þessir hólar sýnast tilbúnir af
náttúrunni, og engin mannaverk sjáanleg á þeim. Líka er mælt
að Ketill hafi mælt svo fyrir, að frá haug sínum sæist að
Ketilstöðum, fyrir handan fjörð, því þar er sagt hann hafi haft
annað bú; þetta stendr og heima, að af Ketilhól sést að
KetilsstÖðum í Hvammsveit.
Helgufell, Helguhóll, Helgusœng. Helgufell stendr á
landamærum milli Dúnkar og Hítardals, eðr milli Dúnkárdals