Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 66
Pétur Ólafsson, Stóru-Tungu:
A Idarminning.
Jón Kristófer Lárusson
(f. 6. nóv. 1878, d. 16. sept. 1949).
Jón var fæddur í Rifgirðingum á Breiðafirði. Foreldrar hans
voru: Lárus Loftsson í Arney og víðar og fyrri kona hans Anna
Marta Friðriksdóttir. Kona Jóns Lofthildur Kristín (d. 21.okt.
1928) Pálsdóttir frá Efri-Brunná, Sigurðssonar. Börn þeirra:
Loftur brunavörður í Reykjavík (látinn), Oskar Breiðfjörð í
Reykjavík, Baldur dó ókvæntur, Halla dó 16 ára, Friðrik
lögregluþjón í Reykjavík, Eggrún (látin) átti Hjálmtý
Einarsson frá Vogi (skildu), Dagbjört átti Þorstein Sigurðsson í
Ólafsvík, Níels Breiðfjörð í Reykjavík (látinn). Sonur Jóns utan
hjónabands: Hjörtur afgreiðslumaður í Reykjavík.
Loftur Jónsson afi Jóns Lárussonar bjó lengi á Hallsstöðum
og Víghólsstöðum á Fellsströndinni og var hreppstjóri. Eins og
fyrr segir var móðir Jóns Anna Marta Friðriksdóttir bónda í
Rifgirðingum og konu hans Frúgetar, dóttur Gísla prests
Ólafssonar í Sauðlauksdal. Jón var fyrsta barn foreldra sinna,
en 3 börn áttu þau alls, tvö dóu ung og lést móðir hans af því
síðasta.
Jón var þá á fjórða ári þegar móðir hans dó. Faðir hans hætti
þá búskap og gerðist lausamaður.
í Rifgirðingum voru tvær systur, sem hétu Halla og Kristín, í
húsmennsku. Hákonardætur skálds í Borkey. Halla og móðir